

Þrjú landshlutaráð Viðreisnar hafa ákveðið að nota uppstillingu við skipan á framboðslista. Enn á eftir að taka ákvörðun um hvernig skal raðað á lista í tveimur kjördæmum.
Viðreisn stendur fyrir opnum fundi um biðlistavandann, kostnaðinn sem honum fylgir og mögulegar lausnir. Stjórnmálaflokkurinn segir að ríkisstjórnin hafi gert talsverðar breytingar á heilbrigðiskerfinu sem engum dyljist að hafi mikil áhrif á notendur og starfsfólk. Þar séu óljós markmið og slakur undirbúningur sérstaklega gagnrýnd.
Gunnar Smári Egilsson veltir fyrir sér inntaki greinar Friðjóns Friðjónssonar sem hann segir ástarjátningu og heróp.
Lögregla telur að skotið hafi verið á skrifstofur Viðreisnar, Sjálfstæðisflokksins, Samtaka atvinnulífsins og nú Samfylkingarinnar á einu ári. Talið er að notast hafi verið við loftriffil í öllum tilvikum.
Svo virðist sem endurtekið sé skotið á skrifstofur íslenskra stjórnmálaflokka hér á landi. Starfsmenn á skrifstofu Samfylkingarinnar sáu göt á rúðum skrifstofu flokksins í Sóltúni. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu fundust litlar byssukúlur á vettvangi.
Þingflokksformaður Viðreisnar segir óljóst hvernig stjórnvöld ætli að bregðast við vanda ferðaþjónustunnar takist ekki að bólusetja meirihluta þjóðarinnar fyrir sumarið. Ferðamálaráðherra segir stjórnvöld standa með ferðaþjónustunni en þróun í faraldursins í öðrum löndum ráði einnig miklu.
Það gerist reglulega að dómar í kynferðisbrotamálum eru mildaðir í Landsrétti vegna dráttar á málsmeðferð. Þingmaður Viðreisnar segir ástæðuna vera aukinn málafjölda og skort á starfsfólki hjá ákæruvaldinu.
Guðmundur Gunnarsson fyrrverandi bæjarstjóri á Ísafirði hefur gengið í raðir Viðreisnar og sækist eftir sæti á lista flokksins í Norðvesturkjördæmi.
Fyrrverandi varaþingmaður Viðreisnar, sem sat á Alþingi þegar Landsréttarmálið var afgreitt snemmsumars 2017, segist alltaf hafa séð mjög eftir því að hafa greitt atkvæði með málinu. Þá segir hann Sjálfstæðisflokkinn hafa beitt aðra stjórnarflokka miklum þrýstingi í málinu á sínum tíma og lýsir hótunum um stjórnarslit „við minnsta tilefni“.
Ummæli Lilju þar sem hún tengdi gagnrýni Hönnu Katrínar á framgöngu ráðherrans í jafnréttismálum við fjölskyldu formanns Viðreisnar, féllu í grýttan jarðveg.
Alma Möller, landlæknir lýsti þeirri skoðun sinni í dag að kórónuveirufaraldurinn hafi dregið fram veikleika heilbrigðiskerfisins.
Ekkert mál er stærra sem stendur en heimsfaraldurinn. Þingflokkur Viðreisnar óskaði fyrir helgi eftir því að heilbrigðisráðherra gefi þinginu hálfsmánaðarlega skýrslu um sóttvarnaraðgerðir, forsendur þeirra og sviðsmyndir. Upp á þetta hefur vantað.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, segir að það hafi verið óafsakanlegt af hennar hálfu að fara í golf í dag á golfvellinum í Hveragerði, þrátt fyrir tilmæli þess efnis að kylfingar frá höfuðborgarsvæðinu sæki ekki í golf á völlum utan höfuðborgarsvæðisins
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, var gagnrýnin á ríkisstjórnarinnar í ræðu sinni í eldhúsdagsumræðum á Alþingi í kvöld.
Forsætisráðherra segir að ekki verði hjá því komist að einhver fyrirtæki í ferðaþjónustu verði gjaldþrota á næstu mánuðum en aðgerðum ríkistjórnarinnar sé þó ekki lokið.
Daði Már Kristófersson var kjörinn nýr varaformaður Viðreisnar á landsþingi flokksins sem lauk í gærkvöldi.
Formaður Viðreisnar sagði í setningarræðu á landsþingi flokksins í dag að heimsfaraldur kórónuveirunnar hefði leitt til þess að allt í einu væru tvær þjóðir í landinu. Þjóðin sem kreppan biti fast á og þjóðin sem kreppan léti enn sem komið væri í friði.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, var endurkjörin á landsþingi flokksins á fimmta tímanum í dag.
Stjórn Viðreisnar heldur þriðja landsþing í dag klukkan 16. Þingið verður alrafrænt og er áætlað að það standi til klukkan 18:30.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, sækist ein eftir því að gegna formennsku í flokknum en framboðsfrestur rann út í dag fyrir landsþing flokksins sem fram fer á föstudaginn. Tíu sækjast eftir sæti í stjórn flokksins.
Benedikt Jóhannesson fyrsti formaður Viðreisnar hyggur á framboð til Alþingis í einu þriggja stærstu kjördæmanna á suðvesturhorninu. Hann minnir á að bæði hann og Jóna Sólveig Elínardóttir þáverandi varaformaður hafi boðið sig fram í landsbyggðarkjördæmum í kosningunum 2016 og náð kjöri.
Benedikt Jóhannesson reimar á sig kosningaskó og hvetur félaga í Viðreisn til dáða.
Viðreisn boðaði til blaðamannafundar í morgun þar sem lagðar voru fram tillögur að efnahagsaðgerðum vegna kórónuveirufaraldursins. Segja ríkisstjórnina svifaseina.
Síðasta sumar komst fátt annað en þriðji orkupakkinn að í stjórnmálaumræðunni hér á landi. Umræðan var bæði löng og hávær, endalaus uppspretta gífuryrða, dylgja og samsæriskenninga.
Ábyrgð þeirra sem gefa sig að stjórnmálum er mikil, ekki síst þeirra sem halda um stjórnartaumana hverju sinni.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, og Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar furða sig á því að ríkisstjórnin hafi ekki gert áætlanir um framhald aðgerða vegna kórónuveirunnar hér á landi. Skoða þurfi hin ýmsu sjónarhorn og taka mið af fleiri þáttum en ferðaþjónustunni.
Ég les að Gunnari Smára finnist Viðreisn skrýtinn flokkur. Ég get svo sem skilið að ýmsir telji flokkinn sérstakan þar sem við tilheyrum ekki hinni gömlu pólitísku skilgreiningu um hægri og vinstri.
Formaður Viðreisnar kveðst ekki eiga von á öðru en að fjármagn verði tryggt vegna laga um að sálfræðiþjónusta falli undir greiðsluþátttökukerfi sjúkratrygginga.
Hann Katrín Friðriksson, þingmaður Viðreisnar, segir kórónuveirufaraldurinn hafa hjálpað ríkisstjórninni að keyra illa búin mál í gegn um þingið á met hraða og hylma yfir slæmt efnahagsástand.
Umræðu um samgönguáætlun næstu fimm og fimmtán ára lauk í dag. Þingflokksformaður Viðreisnar segir samkomulag um þingfrestun vera í sjónmáli.