

Berglind Pétursdóttir, þekkt sem Berglind Festival, starfar sem hugmynda- og textastjóri hjá samskiptastofu Hér&Nú og sem Festivalstjóri í Vikunni með Gísla Marteini Baldurssyni á Rúv.
Viktor Heiðdal Andersen starfar sem hjúkrunarfræðingur á hjarta-, lungna- og augnskurðdeild á Landspítalanum. Hann lýsir sér sem afar áberandi einstaklingi sem þorir að vera hann sjálfur. „Ég er one of a kind karakter sem allir væru heppnir að fá að kynnast,“ segir Viktor.
Hlaðvarpsdrottningin og snyrtivörusnillingurinn Lilja Björg Gísladóttir starfar sem markaðsfulltrúi hjá Hagkaup. Hún á þó nokkra aðra auka atvinnuhatta sem hún smellir á sig af og til.
Fjöllistadísin Margrét Erla Maack nýtur þess að vera einhleyp og hafa tíma fyrir sjálfa sig. Hún er einstæð móðir og segir viku- og viku fyrirkomulagið lífsstíll sem henti henni afar vel.
Lífskúnstnerinn Bragi Árnason er 36 ára leikari búsettur í miðbænum. Hann segist vera gömul sál með barnshjarta og þykir fátt eins skemmtilegt en að ögra sjálfum sér.
„Mín mikilvægustu og dýrmætustu hlutverk í lífinu eru að vera mamma, dóttir, systir, frænka, vinkona og tónlistarkona,“ segir tónlistarkonan og kennarinn Elísabet Eyþórsdóttir, betur þekkt sem Beta Ey.
„Fyrir mér er ég heiðarlegur, segi það sem mér finnst, er réttsýnn og góður drengur,“segir hlaðvarpsstjórnandinn og framkvæmdastjórinn Hugi Halldórsson um sjálfan sig.
„Ég elska að vera með og í kringum skemmtilegt og gott fólk, gera skemmtilega hluti, eiga nærandi samtöl, hlæja mikið og fíflast,“ segir tónlistarkonan Sigríður Eyþórsdóttir, betur þekkt sem Sigga Ey, og lýsir sjálfri sér sem intróverðum extróvert.
Hún vill kaffið sitt svart og sykurlaust, eggin sín hleypt og segist vera ógeðslega góð í því að bakka í stæði. Tónlistarkonan Hildur Kristín Stefánsdóttir er Einhleypa vikunnar.
Hún er inn og út af Tinder, vill kaffið sitt uppáhellt og bíður spennt eftir því að verða boðið á óvænt stefnumót. Þórunn Arnaldsdóttir er Einhleypa vikunnar.
Hún vill kaffið sitt svart og sykurlaust, horfir aldrei á sjónvarp og er óhrædd við að prófa nýja hluti. María Sif Daníelsdóttir, oftast kölluð Mæja Sif, er Einhleypa vikunnar.
Hann er rétt liðlega þrítugur, kann að meta alvöru iðnaðarbolla og breytist í Marvin Gaye þegar hann er að keyra. Alex Freyr Þórsson er Einhleypa vikunnar.
Hún segist ennþá vera föst á gelgjunni, drekkur mjólkurkaffi, heillast að húmor og metnaði og langar í þyrluflug yfir gosið. Þorgerður Þóranna Ævarsdóttir er Einhleypa vikunnar.
„Fiðrildi í maganum, hlýja í hjartanu og svo praktískir hlutir eins og virðing og traust. Saman fléttast þetta að mínu mati í ástina,“ segir Ólína Lind Sigurðardóttir sem er Einhleypa vikunnar að þessu sinni.
„Ef mig hefur vantað félagsskap þá hef ég bara farið í endurvinnsluna. En ég er orðin æst í að dýfa mér í deitlaugina,“ segir Særún Ósk Böðvarsdóttir í viðtali við Makamál.
„Ég þori reyndar varla að taka það fram hér að ég sé nuddari en ég læt fylgja sögunni að ég hef átt flekklausan og perralausan nuddferil og ætla mér að halda því áfram,“ segir Þórunn Elva Þorgeirsdóttir Einhleypa vikunnar.
„Eftir að hafa lagt skólabækurnar alfarið á hilluna, í bili, þá er ég í dag að fikra mig áfram í nýjum áhugamálum og á döfinni er mikið af ferðalögum, eða það vona ég.“ Þetta segir Agnes Ýr Stefánsdóttir Einhleypa vikunnar.
Honum finnst skemmtilegast að fara út að borða, heillast að húmor og hatar það af ástríðu að þrífa heima hjá sér. Einhleypa vikunnar er Jón Eggert Víðisson.
„Ég hef ekki farið á formlegt stefnumót undanfarna mánuði en Covid má eiga það að við getum lært að gefa extra gott blikk með grímuna,“ segir Birgir Marteinsson Einhleypa vikunnar.Birgir er 33 ára lögfræðingur búsettur í Reykjavík. Þó að hann vissulega starfi sem lögfræðingur þá segist hann ekki endilega vera upptekinn af því að titla sig sem slíkan.
„Ég er svo mikil félagsvera og svo knúsfús kona að öll þessi samkomubönn og knúsbönn hafa reynt mikið á mig. Mér finnst ég stundum vera við hliðina á sjálfri mér,“ segir tónlistar- og leikkonan Anna Margrét Káradóttir í viðtali við Makamál.
„Mér finnst titlar vera full niðurnjörvandi og nett tilgerðarlegir. Þegar ég neyðist til þess að titla mig þá fer það eftir hattinum sem ég ber í það og það skiptið. Dagsdaglega er ég þó ávarpaður sem pabbi og finnst það vera fínn titill,“ segir Ari Klængur Jónsson, Einhleypa vikunnar.
„Ég er sveitalúði í grunninn en hef búið á malbikinu um nokkurt skeið. Er til einhver titill sem nær yfir það?“ segir María Sjöfn Árnadóttir Einhleypa vikunnar þegar hún er spurð hvernig hún myndi titla sig.
„Ég var nýkominn úr sambandi þegar ég flutti í karabíska hafið þar sem lítið eða ekkert var um einhleypar stelpur. Mánuði síðar skall á útgöngubann sem varði meira og minna allan tímann sem ég var þarna. Svo kom ég heim til Íslands í miðri þriðju bylgjunni,“ segir Þór Örn Flygenring Einhleypa vikunnar.
„Það er frekar rólegt yfir stefnumótamarkaðinum núna sem er kannski bara hið besta mál. Það er fínt að taka sinn tíma í þetta en jú, ég hef alveg farið á stefnumót.“ Þetta segir Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir verkefnastjóri Framsóknar í Suðurkjördæmi um stefnumót á tímum Covid-faraldurs.
Hlýr, hýr og hrókur alls fagnaðar eru orð sem vinir Einhleypu vikunnar myndu nota til að lýsa honum. Sjálfur segist hann fyrst og fremst titla sig sem Ólafsfirðing sem elskar að fara í sjósund, ferðast og ganga á fjöll. Kynnumst Vilhjálmi Þór Davíðssyni aðeins betur.
Vinir hennar myndu kalla hana gula partý-viðvörun og hrók alls fagnaðar en sjálf titlar hún sig sem landsbyggðarkonu, ástríðufullan kökubakara og stemmningskonu með hússtjórnarpróf uppá vasann. Jóhanna Stefánsdóttir er Einhleypa Makamála þessa vikuna.
Þúsundþjalasmiðurinn, ævintýramaðurinn og hlaðvarpskóngurinn Helgi Jean er Einhleypa Makamála þessa vikuna. Sjálfur lýsir hann sér sem hógværum, brilljant snilling en vinir hans segja hann besta vin heimsins.
„Ég finn engan mun á því að vera single núna og fyrir Covid. Ég hef ekkert farið á stefnumót í marga, marga mánuði svo að ég er frekar rólegur í þessu,“ segir Halldór Ingi Skarphéðinsson í viðtali við Makamál.
„Það er frekar einmanalegt að vera single á covid tímum. Ég hef ekki farið á eitt einasta stefnumót,“ segir Magdís Wagge sem er Einhleypa Makamála þessa vikuna.
Einhleypa vikunnar er Þóranna Friðgeirsdóttir. Hún segir lífið vera skemmtilegt ævintýri þó að Covid faraldurinn hafi ekki verið að hjálpa ástarlífinu neitt sérstaklega.