

Endurkomu framherjans Louis Saha hjá Manchester United hefur enn eina ferðina seinkað, eftir að í ljós kom að hann er meiddur á læri. Saha hefur verið meira og minna meiddur síðan hann kom til liðsins í janúar á síðasta ári.
Alan Shearer, fyrirliði Newcastle gæti þurft í aðgerð vegna kviðslits fljótlega, en meiðsli tengd því hafa verið að hrjá hann undanfarið.
Pablo Garcia hjá Real Madrid sagðist mjög hissa á dómaranum að reka David Beckham af leikvelli fyrir litlar sakir í tapleiknum gegn Valencia á sunnudagskvöldið.
Fjórir æfingaleikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt og þar bar hæst að Gary Payton tryggði Miami Heat eins stigs sigur á Atlanta Hawks með körfu á síðustu sekúndu leiksins.
Einn leikur fór fram í kvennakörfunni í gærkvöldi. ÍS lagði Breiðablik með 68 stigum gegn 59. Jessalyn Deveny fór hamförum í liði Breiðabliks og skoraði 40 stig og hirti 13 fráköst.
Chris Coleman, knattspyrnustjóri Fulham, segir að ekkert sé til í sögusögnum þess efnis að Mohamed al Fayed hafi rætt við annan auðjöfur um helgina með það fyrir augum að selja félagið.
Alþjóða bílasambandið samþykkti í gær að gera róttækar breytingar á tímatökum fyrir keppnir á næsta ári, þar sem keppt verður með útsláttarfyrirkomulagi. Nokkur lið eru vera mikið á móti þessum breytingum, sem eru gerðar með það fyrir augum að auka spennu og sjónvarpsáhorf.
Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ hefur staðfest að sambandinu hafi borist kæra frá forráðamönnum Víkings á hendur Knattspyrnufélaginu Val fyrir að eiga ólöglegar viðræður við tvo af leikmönnum félagsins.
Knattspyrnustjóri Liverpool gaf leikmönnum sínum litla hvíld eftir tapið gegn Fulham um helgina og skipaði þeim á erfiða æfingu innan við sólarhring eftir leikinn. Hann segir að þeir þurfi að temja sér ný viðhorf ef þeir ætli sér að ná árangri og ætlar að tefla fram nánast sama liði gegn Crystal Palace annað kvöld til að reyna að slípa leik liðsins betur saman.
David Gold, stjórnarformaður Birmingham, segir að þrátt fyrir slakt gengi liðsins í undanförnum leikjum, sé staða Steve Bruce örugg hjá félaginu og segist ennfremur ekki geta hugsað sér betri mann til að koma liðinu aftur á beinu brautina.
Dómarar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eru sagðir á einu máli um að taka í gagnið nýja tækni til að úrskurða um hvort boltinn fer yfir marklínu, eftir að enn eitt vafaatvikið leit dagsins ljós í leikjum helgarinnar.
Á vefsíðu sænska blaðsins Aftonbladet geta lesendur nú tekið þátt í að kjósa mark ársins í sænska boltanum og þar er mark Gunnars Heiðars Þorvaldssonar gegn Djurgarden þann 3. október sl. eitt af þeim tíu mörkum sem tilnefnd eru. Mark Gunnars var sérlega glæsilegt og því er um að gera fyrir áhugasama að gefa honum sitt atkvæði á síðunni, þar sem einnig er hægt að sjá myndband af markinu.
Íþróttasíður bresku blaðanna eru yfirfullar af myndum af David Beckham í dag, eftir að hann lét reka sig af leikvelli fyrir fíflagang í leik Real Madrid og Valencia í spænska boltanum í gærkvöldi og dálkahöfundar spyrja sig hvort Beckham sé í raun fyrirliðaefni enska landsliðsins eftir svona framkomu.
Yfirmaður skoska úrvalsdeildarfélagsins Hearts, sem er í efsta sæti deildarinnar, hefur viðurkennt að félagið hafi áhuga á að ráða Sir Bobby Robson sem næsta knattspyrnustjóra félagsins, en sá gamli hafði áður látið í veðri vaka að hann hefði áhuga á starfinu.
David Moyes, stjóri Everton, var ánægður með stigið gegn Chelsea í gær og vonar að það verði til þess að hleypa lífi í sína menn. Hann segir ákvörðun dómarans að dæma mark Didier Drogba af vegna rangstöðu hafa verið hárrétta.
16-liða úrslitunum í Hópbílabikar karla í körfubolta lauk í kvöld með átta leikjum og segja má að úrslitin hafi verið eftir bókinni í flestum tilfellum.
Þór bar sigurorð af Víkingi/Fjölni á Akureyri í DHL deild karla í kvöld 31-26. Þá sigruðu Haukastúlkur Gróttu á Ásvöllum í hörkuleik 23-22 og lyftu sér í annað sæti deildarinnar.
Real Madrid tapaði 2-1 á heimavelli í æsilegum kvöldleik í spænska boltanum nú fyrir stundu. Zinedine Zidane misnotaði vítaspyrnu í leiknum og þeir David Beckham og Thomas Gravesen voru reknir af leikvelli.
Knattspyrnustjóri Chelsea var mjög ósáttur við að ná aðeins jafntefli gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag og vildi meina að dómarinn hefði rænt löglegu marki af liði sínu, þegar Eiður Smári var dæmdur rangstæður í marki Didier Drogba.
Start er í efsta sæti í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir leiki dagsins, en aðeins ein umferð er eftir í deildinni. Valerenga er með jafn mörg stig og Start, en hefur lakara markahlutfall og því er ljóst að spennan verður gríðarleg í lokaumferðinni.
Framherjinn knái hjá Halmstad, Gunnar Heiðar Þorvaldsson, varð í dag markakóngur í sænsku úrvalsdeildinni þegar síðustu umferðinni lauk með heilli umferð. Halmstad tapaði lokaleiknum 2-0 fyrir Kalmar, en Gunnar varð engu að síður markahæstur í deildinni með 16 mörk.
Topplið Chelsea tapaði fyrstu stigum sínum í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð í dag, þegar liðið varð að sætta sig við jafntefli á útivelli gegn Everton. James Beattie skoraði mark Everton úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik, en Frank Lampard jafnaði metin í þeim síðari. Eiður Smári kom inná sem varamaður á 57. mínútu leiksins.
West Ham sigraði Middlesbrough 2-1 í ensku úrvalsdeildinni nú áðan og Bolton sigraði West Brom 2-0, en öll mörkin í leikjunum tveimur komu í síðari hálfleik. Chelsea var rétt í þessu að jafna leikinn gegn Everton, eftir að hafa lent undir 1-0.
Blackburn Rovers bar sigurorð af Birmingham 2-0 í fyrsta leiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Paul Dickov skoraði fyrra markið úr vítaspyrnu og Craig Bellamy innsiglaði sigur heimamanna, en bæði mörkin komu í síðari hálfleik. Birmingham er nú komið í bullandi fallbaráttu og hefur aðeins fengið 6 stig í fyrstu 10 leikjum sínum.
Heimsmeistarinn Sebastien Loeb á Citroen hefur örugga forystu í Korsíkurallinu sem fram fer um helgina og hefur unnið allar fyrstu átta sérleiðirnar, fjórar í gær og fjórar í dag. Sigur Loeb virðist því óumflýjanlegur ef ekkert kemur fyrir bíl hans á lokadeginum á morgun, en hann hefur níutíu sekúndna forskot á næsta mann.
Heimsbikarinn í kappakstri, A1, verður sýndur í opinni dagskrá á Sýn um helgina, þegar keppt verður í Portúgal. Þetta er þriðja keppnin á tímabilinu og útsendingar verða frá mótinu á laugardag klukkan 12:55 og á sunnudag hefst útsending klukkan 11:55.
Ásgeir Elíasson og Þorvaldur Örlyggsson eru helst inn í myndinni um þjálfarastöðuna hjá fyrstu deildar liði Fram en þó koma nokkrir aðrir þjálfarar til greina. Þetta sagði Brynjar Jóhannesson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Fram, í samtali við Bylgjuna í morgun.
Umboðsmaður Christianos Ronaldo hjá Manchester United, Jorge Mendes, segir ásakanir gegn honum vegna gruns um að hafa nauðgað ungri konu á hótelherbergi í London 2. október síðastliðinn algerlega ósannar, ímyndun og hugarburður.
Bob Bell, tæknistjóri Renault í Formúlu 1, segir að gömlu toppliðin Ferrari og McLaren hafi sofnað á verðinum á afstöðnu tímabili og vill meina að þau hafi ekki tekið Renault-liðið alvarlega í toppbaráttunni.
Flavio Briatore, stjóri Renault-liðsins í Formúlu 1, segir að liðsandinn hafi verið lykillinn að tvöföldum sigri Renault í ár, en liðið fagnaði sem kunnugt er sigri í bæði keppni ökumanna og bílasmiða á nýafstöðnu keppnistímabili.