Ákæruferli þingsins gegn Trump

Taldi Úkraínu ekki fá aðstoð nema að fallist yrði á kröfur Trump
Að minnsta kosti þrír embættismenn ríkisstjórnar Trump forseta hafa nú borið vitni um að hernaðaraðstoð við Úkraínu hafi verið skilyrt við rannsóknir sem Trump krafðist frá stjórnvöldum í Kænugarði.

Vildi að dómsmálaráðherrann hreinsaði sig af sök
Eftir að Hvíta húsið birti minnisblað um umdeilt símtal Trump við Úkraínuforseta vildi forsetinn að dómsmálaráðherrann héldi blaðamannafund þar sem hann segði ekkert ólöglegt hafa átt sér stað í símtalinu.

Sendu Úkraínustjórn hvað hún átti að segja um rannsóknir sem Trump vildi
Vitnisburðir tveggja sendifulltrúa Trump forseta í Úkraínu voru gerðir opinberir í gær. Annar þeirra breytti fyrri framburði verulega og segir nú að Trump hafi notað hernaðaraðstoð sem skiptimynt í samskiptunum við Austur-Evrópulandið.

Vilja að starfsmannastjóri Trump beri vitni
Þingmenn fulltrúadeildar Bandaríkjaþings hafa beðið Mick Mulvaney, fyrrverandi þingmann og starfandi starfsmannastjóra Hvíta hússins, um að mæta á fund þingmanna. Hann ætlar ekki að verða við beiðninni.

Lykilvitni breytir framburði sínum
Gordon Sondland, sendiherra Bandaríkjanna gagnvart Evrópusambandinu, hefur viðurkennt að hafa tilkynnt aðstoðarmanni forseta Úkraínu að hernaðaraðstoð yrði ekki afhent fyrr en Úkraínumenn hefðu rannsóknir sem Trump hafði krafið Volodymr Zelensky, forseta Úkraínu, um og lýstu því yfir opinberlega.

Taldi sér ógnað með orðum Trump við Úkraínuforseta
Fyrrverandi sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu hefur enn áhyggjur af hefndaraðgerðum eftir að hann las ummæli Trump forseta um hann í símtali við forseta Úkraínu.

Trump hótar vitni og vill láta afhjúpa uppljóstrara
Bandaríkjaforseti boðar að hann láti birta upplýsingar um starfsmann hans eigins þjóðaröryggisráðs sem bar vitni í rannsókn Bandaríkjaþings á mögulegum embættisbrotum Trump.

Skipað að þegja um áhyggjur sínar af símtali Trump og Zelenskíj
Lögfræðingur sem reyndi að takmarka aðgang að eftirrit símtalsins skipaði einnig starfsmanni þjóðaröryggisráðsins að halda áhyggjum af símtalinu út af fyrir sig.

Ráðgjafi staðfesti að Trump sóttist eftir rannsóknum en taldi það ekki ólöglegt
Fyrrverandi starfsmaður þjóðaröryggisráðsins staðfesti framburð um að Trump hafi haldi eftir hernaðaraðstoð til Úkraínu til að þrýsta á um pólitískan greiða en sagðist þó ekki hafa talið það óviðeigandi eða ólöglegt.

Þingið samþykkir að halda áfram rannsókn á Trump
Fulltrúadeild Bandaríska þingsins rannsakar enn hvort forsetinn hafi gerst sekur um embættisbrot.

Boða fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump fyrir þingnefndirnar
John Bolton ætlar ekki að koma sjálfviljugur fyrir nefndirnar en lögmaður hans segist tilbúinn að taka við stefnu. Bolton gæti verið lykilvitni um nokkur atriði í samskiptum Trump-stjórnarinnar við Úkraínu.

Reyndi að bæta við eftirrit símtals Trump og Zelensky
Alexander S. Vindman, undirofursti, sagði þingmönnum í gær að honum hafi verið svo brugðið yfir framferði Trump gagnvart Úkraínu að hann hafi gert lögfræðingum þjóðaröryggisráðsins viðvart í tvígang.

Bandamenn Trump ráðast á vitni vegna uppruna þess
Starfsmaður þjóðaröryggisráðs Bandaríkjanna var sakaður um að vera njósnari og mögulega óþjóðrækinn í hægrisinnuðum fjölmiðlum eftir að hann bar vitni sem kom Trump forseta illa.

Núverandi starfsmaður Hvíta hússins ber vitni
Offurstinn Alexander Vindman, sem situr í þjóðaröryggisráði Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, lýsti tvisvar sinnum yfir áhyggjum vegna viðleitni ríkisstjórnar Trump og utanaðkomandi aðila sem tengjast Trump til að fá yfirvöld Úkraínu til að rannsaka pólitískan andstæðing forsetans.

Greiða atkvæði í þinginu um rannsókn Demókrata
Greidd verða atkvæði um rannsókn Demókrata á hugsanlegum embættisbrotum Donald Trump í samskiptum sínum við úkraínsk stjórnvöld fyrr á árinu í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í vikunni.

Sagði þingnefnd að Trump hefði gert „kaup kaups“ við Úkraínu
Framburður sendiherra Bandaríkjanna gagnvart ESB virðist grafa undan málsvörn Trump forseta um samskipti hans við úkraínsk stjórnvöld.

Hvíta húsið segir Kelly ekki hafa ráðið við „snilli“ Trump
Fyrrverandi starfsmannastjóri Hvíta hússins sagðist hafa varað Trump við því að ráða jámann í sinn stað í fyrra. Trump hafnar því algerlega.

Lögmaður Trump „vasahringdi“ í fréttamann
Fréttamaður NBC fékk tvenn talhólfsskilaboð sem Rudy Giuliani sendi honum óvart.

Skipað að afhenda óritskoðaða skýrslu Muellers
Alríkisdómari staðfesti í dag lögmæti rannsóknar demókrata á því hvort Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hafi framið embættisbrot.

Trump bað þingmenn um að verja sig af hörku og þeir hlýddu
Þingmenn Repúblikanaflokksins ollu usla í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í gær þegar þeir ruddu sér leið inn í fundarherbergi þar sem lokaður nefndarfundur fór fram.

Uppþot þegar Repúblikanar reyndu að brjóta sér leið inn á lokaðan fund
Það ætlaði allt um koll að keyra í þinghúsi Bandaríkjanna í dag eftir að fresta þurfti lokuðum vitnisburði í tengslum við Úkraínu-málið þegar hópur þingmanna Repúblikana reyndi að brjóta sér leið inn í fundarherbergið.

Vissu að Trump hefði stöðvað aðstoð á meðan þrýstingur stóð yfir
Upplýsingar sem New York Times hefur undir höndum grafa undan málsvörn Trump og bandamanna hans varðandi samskipti hans við Úkraínu á þessu ári.

Háttsettur erindreki segir Trump hafa tengt aðstoð við Úkraínu við rannsókn á pólitískum andstæðingum
William B. Taylor, starfandi sendiherra Bandaríkjanna í Úkraínu, greindi rannsakendum sem rannsaka möguleg embættisbrot Donald Trump forseta Bandaríkjanna, frá því í dag að Trump hafi neitað að veita Úkraínu hernaðaraðstoð og að hann hafnað því að funda með forseta Úkraínu í Hvíta húsinu nema hann myndi heita því að rannsaka andstæðinga Trump í bandarískum stjórnmálum.

Hafa áhyggjur af hömluleysi forsetans
Fyrrverandi starfsmenn Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, og aðrir Repúblikanar sem þykja nánir Hvíta húsinu, hafa sífellt meiri áhyggjur af hegðun forsetans. Þeir segja engin bönd á Trump lengur og honum sé frjálst að gera smá og stór afglöp sem forseti.

Rick Perry kynnir afsögn viku eftir að hafa verið spurður í Svartsengi
Rick Perry, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, hefur tilkynnt Donald Trump forseta að hann hyggist segja af sér embætti. Trump staðfesti fréttirnar sjálfur í kvöld.

Segir Trump hafa haldið aftur af hernaðaraðstoð til þess að fá Demókrata rannsakaða
Ríkisstjórn Bandaríkjanna undir stjórn forsetans Donald Trump, hélt aftur af tæplega 400 milljón dala hernaðaraðstoð til þess að þrýsta á úkraínsk yfirvöld til þess að rannsaka meinta aðstoð sem yfirvöld í Kænugarði veittu Demókrataflokknum í aðdraganda forsetakosninganna árið 2016, frá þessu greindi starfandi starfsmannastjóri Hvíta hússins, Mick Mulvaney í blaðamannafundi.

Sendiherra segist hafa verið ósáttur við ákvörðun Trump en fylgt henni samt
Einn þeirra sem eru í miðpunkti Úkraínumáls Trump Bandaríkjaforseta segist ekki hafa gert sér grein fyrir að meira hafi hangið á spýtunni í samskiptum við úkraínsk stjórnvöld.

Trump skipaði Perry að vinna með Giuliani í Úkraínu
Í viðtali skýrir orkumálaráðherra Bandaríkjanna frekar hversu mikil áhrif persónulegur lögmaður Trump forseta hafði á stefnu ríkisstjórnarinnar gagnvart Úkraínu.

Hvíta húsið sagt leita að blóraböggli vegna Úkraínumálsins
Einn af helstu lögfræðingum Hvíta hússins sem ákvað að takmarka aðgang að símtali Trump og Zelenskíj Úkraínuforseta er sagður í miðju rannsóknarinnar.

Þjóðaröryggisráðgjafi Trump vildi ekki taka þátt í „dópviðskiptum“
Fyrrverandi yfirmaður málefna Rússlands og Evrópu hjá þjóðaröryggisráði Bandaríkjanna bar vitni fyrir þingnefnd sem rannsakar möguleg embættisbrot Trump forseta í gær.