

Samherjaskjölin
30 þúsund skjöl um viðskiptahætti Samherja í Namibíu voru birt á vef WikiLeaks. Á sama tíma birtist umfjöllun um málið í þættinum Kveik og hjá Stundinni.

Nefndin skoði lögreglu en ekki blaðamenn
Blaðamannafélagið hefur sent bréf til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis þar sem fram kemur að ef nefndin ákveði að taka fyrir mál í tengslum við fjölmiðlaumfjöllun um framferði starfsfólks Samherja á árinu 2021 þurfi nefndin að beina sjónum sínum að viðbrögðum lögreglu í málinu og rannsókn hennar á þeim sex blaðamönnum sem fengu réttarstöðu sakbornings.
Fréttir í tímaröð

Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar
Stefán Eiríksson útvarpsstjóri hefur sent starfsfólki Ríkisútvarpsins tölvupóst þar sem hann fer lauslega yfir hið svokallaða „byrlunarmál“ og segir Morgunblaðið fara í veigamiklum atriðum með fleipur.

Útvarp allra starfsmanna – Þegar RÚV verður verkfæri pólitískra herferða
Fjölmiðlar eiga að vera sjálfstæðir, óháðir og vinna að sannleikanum. Þeir eiga að vera gagnrýnir en jafnframt sanngjarnir og fylgja siðareglum sem tryggja að fréttir séu ekki spunnar úr engu eða fengnar með óheiðarlegum hætti. En á undanförnum árum hefur ríkisfjölmiðillinn RÚV – eða Útvarp allra starfsmanna, eins og ég kýs að kalla þetta batterí – sýnt að hann þjónar öðrum hagsmunum en þeim sem hann á að standa fyrir.

Helgi hættur á Heimildinni
Helgi Seljan er einhver þekktasti blaðamaður landsins, margverðlaunaður en hann hefur staðið í ströngu nú í tuttugu ár við að fjalla um stærstu mál samtímans. Nú er það búið. Í bili að minnsta kosti. Helgi hefur ákveðið að henda blaðamannahatti sínum inn í skáp og horfir jafnvel til hafs.

„Óásættanlegt að fyrrverandi starfsfólki sé haldið í spennitreyju“
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir nýja umfjöllun Heimildarinnar um Namibíumálið svokallaða engu nýju ljósi varpa á málsatvik. „Mér þykir mjög miður og algjörlega óásættanlegt að fyrrverandi starfsfólki fyrirtækisins sé haldið í spennitreyju með réttarstöðu sakbornings í fimm ár án tilefnis.“

Sagðir hafa fundið um 1.500 skilaboð milli Þorsteins og Jóhannesar
Héraðssaksóknara hefur tekist að endurheimta um það bil 1.500 smáskilaboð sem fóru á milli Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Samherja, og Jóhannesar Stefánssonar uppljóstrara.

„Þetta mál er lögregluembættinu til ævarandi skammar“
Lögreglan á Norðurlandi eystra var harðlega gagnrýnd í Pallborði Vísis í gær en gestir voru þau Þóra Arnórsdóttir, fyrrverandi ritstjóri Kveiks og Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður Heimildarinnar. Þau voru sakborningar í máli sem varðar meinta byrlun og svo símastuld af Páli skipstjóra Steingrímssonar.

Pallborðið: Rannsókn lögreglunnar á meintri byrlun og símastuldi
Þrjár vikur eru síðan lögreglan á Norðurlandi eystra tilkynnti að hún hefði fellt niður rannsókn á meintri byrlun skipstjórans Páls Steingrímssonar, afritun gagna af síma hans og dreifingu á kynferðislegu efni.

Páll skipstjóri hvergi nærri hættur
Eva Hauksdóttir, lögmaður Páls Steingrímssonar fyrrverandi skipstjóra hjá Samherja, er að leggja lokahönd á kæru á niðurfellingu rannsóknar lögreglunnar á Norðurlandi eystra á meintri byrlun til ríkissaksóknara.

Lögmaður eiginkonunnar fyrrverandi segir lögreglu ljúga
Lögmaður fyrrverandi eiginkonu Páls Steingrímssonar skipstjóra, sem var til rannsóknar grunuð um að hafa byrlað Páli, afritað upplýsingar á síma hans og dreift kynferðislegu efni, segir lögreglu hreinlega ljúga í Facebook-færslu um málið. Hann kallar eftir opinberri rannsókn á vinnubrögðum lögreglu í málinu.

Samherji hvetur Odd Eystein til frekari verka
Samherji segist engan áhuga hafa haft að höfða mál gegn listamanninum Oddi Eysteini Friðrikssyni heldur neyðst til þess til að verja fjörutíu ára gamalt vörumerki. Sjávarútvegsfyrirtækið hvetji til listrænnar sköpunar og sér í lagi Odd til frekari verka svo framarlega sem hann virði réttindi samborgara sinna.

Rannsókn lögreglu haft kælingaráhrif á alla blaðamannastéttina
Áralöng rannsókn lögreglustjóran á Norðurlandi eystra á sex blaðamönnum hefur ekki aðeins kælingaráhrif á þá heldur á alla stéttina, að sögn formanns Blaðamannafélags Íslands. Málið hafi hvílt þungt á mörgum.

Fagnar niðurstöðunni en lýsir yfir þungum áhyggjum
Blaðamannafélag Íslands fagnar því að margra ára rannsókn Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra á hendur sex blaðamönnum sé nú lokið. Samt sem áður lýsir félagið yfir þungum áhyggjum af því að Lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra skuli um margra ára skeið hafa haft blaðamenn til rannsóknar fyrir að sinna starfi sínu.

„Þetta má aldrei gerast aftur“
Fyrrverandi ritstjóri Kjarnans og sakborningur í byrlunar- og símastuldsmáli Páls Steingrímssonar skipstjóra hjá Samherja segir einstökum aðförum í sögu Íslands loks lokið eftir 961 dags rannsókn. Hann er hugsi yfir réttlætingu Lögreglunnar á Norðurlandi eystra á rannsókninni.

Rannsókn á byrlunar- og símamáli Páls skipstjóra úr sögunni
Embætti Lögreglustjórans á Norðurlandi eystra hefur tekið ákvörðun um að hætta rannsókn í máli er varðar meinta byrlun, afritun á upplýsingum af síma einstaklings og dreifingu á kynferðislegu myndefni. Sex blaðamenn fengu réttarstöðu sakbornings í málinu auk fyrrverandi eiginkonu Páls.

Mál Samherja gegn Odee tekið fyrir dóm í vikunni
Réttarhöld í máli Samherja gegn Oddi Eysteini Friðrikssyni, sem gengur undir listamannsnafninu Odee, hefjast í London á fimmtudag. Samherji höfðaði málið eftir að Oddur sendi út afsökunarbeiðni í nafni fyrirtækisins vegna framgöngu þess í Namibíu.

Arnar með stöðu sakbornings og boðaður í skýrslutöku
„Ég veit ekki alveg hvað hún vildi vita. Hún náttúrulega bara heldur áfram með það að reyna að fá okkur blaðamenn til að brjóta lög, því eins og þú veist þá gefum við ekki upp heimildarmenn.“

Listamenn skora á Samherja að falla frá málsókn gegn ODEE
Stjórn Bandalags íslenskra listamanna lýsir yfir eindregnum stuðningi við baráttu gjörningalistamannsins Odds Eysteins Friðrikssonar, ODEE, fyrir tjáningarfrelsi sínu. Bandalagið skorar á Samherja að falla frá málsókn sinni gegn Oddi. Þá skora þau einnig á fyrirtækið að virða tjáningarfrelsið.

Héraðsdómur ruddur vegna fjölskyldutengsla og fyrri starfa dómara
Landsréttur hefur rutt allan Héraðsdóm Reykjavíkur í máli Örnu McClure, yfirlögfræðings Samherja. Hún krefst þess að rannsókn Héraðssaksóknara á Samherjamálinu svokallaða verði felld niður hvað hana varðar. Hún hefur verið með réttarstöðu sakbornings í tæp fjögur ár.

„Þetta eru ærumeiðingar, Gunnar Ingi!“
„Þetta eru ærumeiðingar, Gunnar Ingi!“ hrópaði Páll skipstjóri Steingrímsson að Gunnari Inga Jóhannssyni lögmanni Aðalsteins Kjartanssonar blaðamanns. Dómari þurfti að sussa á Pál svo málflutningur gæti haldið áfram.

Um sögnina „ að pála“
Þetta er greinarstúfur um sögnina „pála“, að pála e.h. eða „ pálast“ á einhverjum.

Forseti bendlaður við Samherjamálið látinn
Hage Geingob forseti Namibíu lést úr krabbameini í dag á sjúkrahúsi í Windhoek, höfuðborg landsins. Hann var 82 ára gamall.

Rannsókn á meintum hótunum Páls skipstjóra blásin af
Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur fellt niður kæru tveggja blaðamanna Heimildarinnar og útvarpsstjóra á hendur Páli Steingrímssyni skipstjóra hjá Samherja fyrir hótun sumarið 2022. Blaðamennirnir lásu hótun út úr orðum Páls í tölvupósti til þeirra að hann þyrfti að grípa til annarra ráða til að stoppa þá.

Má kíkja í heimsókn og skoða gögnin en fær þau ekki afhent
Sakborningur í Samherjamálinu fær ekki afrit af umfangsmiklum gögnum sem bárust héraðssaksóknara frá yfirvöldum í Namibíu í sumar. Verjanda sakborningsins er þó frjálst að kíkja í heimsókn á skrifstofu héraðssaksóknara og skoða gögnin.