FH

Óli Jóh hefur ekki unnið gamla lærisvein sinn í síðustu sjö leikjum
Heimir Guðjónsson hefur tvisvar tekið við mjög góðu búi af Ólafi Jóhannessyni en það er líka langt síðan að Ólafur hefur unnið hann í deildarleik.

Sjáðu mörkin úr dramatískum Kópavogsslag, varamennina redda Fylki stigi og tíu KA-menn ná jafntefli við FH
Breiðablik vann dramatískan sigur á HK í Kópavogsslagnum, Fylkir tryggði sér jafntefli við Val með afar snotru marki Arnórs Borg Guðjohnsen og tíu KA-menn skoruðu jöfnunarmark gegn FH í Krikanum. Mörkin öll má nú sjá á Vísi.

Umfjöllun og viðtöl: FH - KA 1-1 | Tíu KA menn sóttu stig í Kaplakrika
Óli Jó stýrði liði FH í fyrsta sinn í úrvalsdeildinni í fótbolta síðan 2007 er liðið fékk KA í heimsókn í Kaplakrikann í dag. Lokatölur 1-1, en KA menn jöfnuðu leikinn þegar tæplega stundarfjórðungur var til leiksloka eftir að hafa orðið manni færri nokkrum mínútum áður.

Umfjöllun og viðtöl: Fylkir - FH 1-4 | 1. deildarliðið niðurlægði Fylki
FH er komið í undanúrslitin eftir að hafa gengið frá Fylki. Fyrri hálfleikurinn var heldur rólegur, en Selma Dögg Björgvinsdóttir kom FH á bragðið með laglegu marki undir lok fyrri hálfleiks.Í síðari hálfleik voru FH stúlkur með öll völd á vellinum og unnu á endanum 1-4 risa sigur.

Guðni Eiríksson: Við erum í Mjólkurbikarnum til að hafa gaman
Lengjudeildarlið FH kom öllum á óvart og kafsigldi Fylki í Árbænum. Leikurinn endaði með 1-4 stórsigri og var Guðni Eiríksson þjálfari FH afar sáttur með sínar stúlkur.

Sigur í fyrsta leik Óla Jó og ÍA rúllaði yfir Fram
FH, ÍA, Fjölnir og HK eru komin áfram í sextán liða úrslit Mjólkurbikars karla eftir að hafa unnið leiki sína í 32-liða úrslitunum í kvöld.

„Óli Jó gæti fengið mann í hjólastól til að standa upp og taka vítaspyrnu“
Ólafur Jóhannesson er tekinn við FH-liðinu á ný og stýrir því í fyrsta sinn í Mjólkurbikarleik í kvöld. Strákarnir í Pepsi Max Stúkunni ræddu meðal annars endurkomu Ólafs í Kaplakrika.

Lof og last 9. umferðar: Upplegg Breiðabliks, Hannes Þór, Helgi Valur, ósýnilegir FH-ingar og Dino Hodzic
Níundu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöld. Það hefur mikið gengið á undanfarna tvo daga og hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last.

Kallaði FH Sigga Hlö-liðið: Veistu hver ég var? Ég var einu sinni góður í fótbolta
Þjálfaraskiptin hjá FH voru að sjálfsögðu til umræðu í Pepsi Max stúkunni í gær. Þorkell Máni Pétursson segir að ábyrgðin á slæmu gengi FH liggi hjá leikmönnum liðsins.

Ólafur Jóhannesson tekur við FH-liðinu
Ólafur Jóhannesson er kominn aftur til FH og mun stýra liðinu út tímabilið ásamt Davíð Þór Viðarssyni.

Logi hættur sem þjálfari FH
Logi Ólafsson er hættur sem þjálfari karlaliðs FH í fótbolta. Samkvæmt tilkynningu frá knattspyrnudeild FH var það sameiginleg niðurstaða beggja aðila að Logi myndi stíga til hliðar.

Sjáðu mörkin þegar Blikar rústuðu FH-ingum og markið í toppslagnum á Dalvík
Þrettán mörk voru skoruð í leikjum gærdagsins í Pepsi Max-deild karla. Þá fóru fjórar vítaspyrnur forgörðum.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - FH 4-0 | FH-ingar niðurlægðir í Kópavogi
Breiðablik vann öruggan 4-0 sigur á FH í 9. umferð Pepsi Max-deildar karla í fótbolta í kvöld. Sigur þeirra grænklæddu var aldrei í hættu, jafnvel þrátt fyrir atvik sem minnti óþægilega á það tengt Christiani Eriksen á Parken á dögunum.

„Með því lélegra sem ég hef tekið þátt í“
„Manni líður eins illa og það verður held ég. Þetta held að þetta hafi bara verið með því lélegra sem ég hef tekið þátt í,“ sagði Guðmann Þórisson, miðvörður FH, eftir 4-0 tap liðsins fyrir Breiðabliki í Pepsi Max-deild karla í kvöld.

„Það var bara eins og maður væri kominn í þetta atvik á EM“
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði Breiðabliks, var ánægður eftir 4-0 stórsigur liðsins á FH í Pepsi Max-deild karla í kvöld. Þá er honum létt að Jason Daði Svanþórsson sé á batavegi.

Lof og last 8. umferðar: Allt er fertugum fært, Nikolaj Hansen, andlausir FH-ingar og veðrið upp á Skaga
Áttundu umferð Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu lauk í gærkvöld. Þó enn eigi eftir 7. umferð mótsins þá var sú áttunda kláruð í gær. Hún hófst þann 12. júní og lauk svo í gær með tveimur leikjum.

Umfjöllun og viðtöl: FH - Stjarnan 1-1 | Gestirnir snúið genginu við á meðan ekkert gengur upp hjá Hafnfirðingum
Stjarnan sótti stig í Kaplakrika er liðið mætti FH í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 1-1 sem þýðir að Stjarnan hefur nú náð í fjögur stig gegn Val og FH í síðustu tveimur leikjum á meðan FH hefur ekki unnið í síðustu fjórum.

FH-ingar hafa ekki tapað fjórum leikjum í röð í 26 ár
FH-ingar hafa ekki unnið leik í næstum því mánuð en geta endað óvenju langa bið sína eftir sigri á móti Stjörnunni á heimavelli í Kaplakrika í kvöld klukkan 20:15.

FH-ingar og Stjörnumenn fara til Írlands en Blikar til Lúxemborgar
Þrjú íslensk lið voru í pottinum þegar dregið var í 1. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu (Europa Conference League) í dag. FH og Stjarnan mæta írskum liðum á meðan Breiðablik mætir liði frá Lúxemborg.

Umfjöllun og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | Nikolaj Hansen skaut Víkingum á toppinn
Víkingar unnu góðan 2-0 sigur á FH. Nikolaj Hansen var frábær í liði Víkings og gerði hann bæði mörk leiksins í sitt hvorum hálfleiknum. Eftir hagstæð úrslit í leik Stjörnunnar og Vals fóru Víkingar á toppinn með sigri sínum á FH.

Búið að bólusetja karlalið Breiðabliks, FH og Vals
Búið er að bólusetja þrjú af tólf liðum í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu. Lið Breiðabliks, FH og Vals voru öll bólusett í gær með bóluefninu frá Janssen [Johnson&Johnson].

Vatn flæddi um gólf í íþróttahúsinu í Kaplakrika
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna vatnsleka í íþróttahúsinu í Kaplakrika skömmu fyrir klukkan eitt í nótt. Þar hafði svokallaður sprinklerloki gefið sig og flæddi um gólf.

Tveir leikir í Pepsi Max deildinni færðir á fimmtudag fyrir Verslunarmannahelgi
Leikirnir tveir sem þurfti að fresta vegna leikja A-landsliðsins í Færeyjum og Póllandi eru komnir með nýjan leiktíma.

FH ekki í vandræðum upp á Skaga
FH vann góðan 3-0 sigur á ÍA á útivelli í Lengjudeild kvenna í knattspyrnu í kvöld.

Sjáðu brottvísanaflóðið í Krikanum í gær
Mikið gekk á í seinni leik FH og ÍBV í átta liða úrslitum Olís-deildar karla í gær. Hvorki fleiri né færri en sextán tveggja mínútna brottvísanir voru gefnar í leiknum sem endaði með 33-33 jafntefli en Eyjamenn fóru áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

Sjáðu ótrúlega endurkomu Eyjamanna í Krikanum
Þrátt fyrir að vera þremur mörkum undir þegar rúmar þrjár mínútur voru eftir tókst ÍBV að koma til baka gegn FH og tryggja sér sæti í undanúrslitum Olís-deildar karla.

Umfjöllun og viðtöl: FH - ÍBV 33-33 | Sigtryggur vann
ÍBV er komið í undanúrslit Olís-deildar karla eftir 33-33 jafntefli við FH í Kaplakrika í kvöld. Fyrri leikurinn í Eyjum endaði einnig með jafntefli, 31-31, en ÍBV fór áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

Sigursteinn: Fannst halla stórkostlega á okkur í dómgæslunni
Sigursteinn Arndal, þjálfari FH, var skiljanlega í sárum eftir að hans menn féllu úr leik fyrir ÍBV í átta liða úrslitum Olís-deildarinnar í kvöld. Liðin gerðu jafntefli, 33-33, en Eyjamenn fóru áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

Mætast í þriðja sinn á einni viku
FH og ÍBV mætast í kvöld í seinni leik liðanna í átta liða úrslitum Olís-deildar karla. Þetta er þriðji leikur liðanna á viku.

Selfoss og Valur örugglega áfram á meðan FH sló Þór/KA úr leik eftir vítaspyrnukeppni
Öllum fjórum leikjum kvöldsins í Mjólkurbikarkvenna er nú lokið. Valur vann 7-0 sigur á Völsungi á Húsavík. FH lagði Þór/KA í vítaspyrnukeppni eftir að leiknum lauk með 1-1 jafntefli og Selfoss vann 3-0 sigur á KR.