
EM U21 í fótbolta 2021

Íslensku strákarnir taka þátt í tilraun á EM
UEFA mun leyfa aukaskiptingu vegna höfuðmeiðsla í öllum leikjum í lokakeppni Evrópumóts U21-landsliða í fótbolta sem hefst í næstu viku.

Davíð tilkynnir EM-hópinn degi eftir að Arnar birtir sinn fyrsta landsliðshóp
Nú er orðið ljóst hvenær EM-hópur U21-landsliðs karla í fótbolta og A-landsliðshópurinn sem hefur undankeppni HM í Katar, verða tilkynntir.

Brynjólfur: Er að bíða eftir að EM-hópurinn verði valinn
Blikinn Brynjólfur Andersen Willumsson mun hefja atvinnumannaferilinn í Noregi seinna í vor en fyrst á dagskrá er að hjálpa íslenska 21 árs landsliðinu á Evrópumótinu seinna í þessum mánuði.

Lærði helling af pabbanum en er aðeins rólegri í skapinu en hann
Um æðar Patriks Sigurðar Gunnarssonar rennur markvarðablóð en faðir hans stóð milli stanganna hjá liðum á borð við ÍBV, Fram og FH á árum áður.

Afrek gullkynslóðarinnar efla U-21 drengina sem ætla sér ekki bara að vera með á EM
Patrik Sigurður Gunnarsson mun standa á milli stanganna hjá íslenska U-21 árs landsliðinu í fótbolta á EM síðar í þessum mánuði. Hann segir að Íslendingar ætli sér ekki bara að vera með á mótinu og vonast til að góð frammistaða þar opni dyr fyrir hann í framtíðinni.

Þeir okkar sem fara á EM verða hundrað prósent tilbúnir
Það skýrist væntanlega í næstu viku hverjir verða fulltrúar Íslands þegar U21-landsliðið í fótbolta fer í lokakeppni EM í aðeins annað sinn í sögunni. Alfons Sampsted segir liðið hiklaust eiga að stefna á að komast upp úr sínum riðli.

Brynjólfur til Noregs eftir EM: Leikmaður sem stuðningsmenn gætu dýrkað
Knattspyrnumaðurinn Brynjólfur Andersen Willumsson er orðinn leikmaður Kristiansund en norska félagið er sagt kaupa Brynjólf fyrir metfé.

Með tvo „ótrúlega skemmtilega“ kosti en vinnuveitendur Alfonsar á báðum áttum
Síðar í þessum mánuði fer Alfons Sampsted annað hvort í sjálfa lokakeppni EM með U21-landsliðinu í fótbolta, eða í fyrstu leiki A-landsliðsins í undankeppni HM í Katar. Það er að segja ef vinnuveitendur hans í Noregi gefa grænt ljós en ef svo verður ekki ætlar Alfons að eiga langan fund með þeim.

Þessir komust í æfingahópinn mánuði fyrir EM
Davíð Snorri Jónasson, nýr þjálfari U21-landsliðs karla í fótbolta, hefur valið 26 leikmenn í sinn fyrsta æfingahóp nú þegar mánuður er í að Ísland spili í lokakeppni Evrópumótsins.

Alfons og allir í meistaraliði Bodö/Glimt í sóttkví
Titilvörn norsku meistarana í Bodö/Glimt fer ekki nógu vel af stað. Liðið er reyndar ekki byrjað að spila en gengur illa að æfa þökk sé kórónuveirufaraldursins.

Portúgal stærsta hindrunin fyrir næstu kynslóð
Íslenska U21-landsliðið í fótbolta karla mætir meðal annars Portúgal í næstu undankeppni liðsins, fyrir Evrópumótið sem fram fer árið 2023.

Segir Davíð Snorra stýra U21-liðinu á EM: „Mun gera þetta frábærlega“
Davíð Snorri Jónasson mun stýra U21-landsliði karla í fótbolta á öðru lokamótinu í sögu þess í lok mars, ef allt gengur að óskum.

Arnar Þór: Ætlum að reyna ná í stig og fara áfram
Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska U21 árs landsliðsins, segir að íslenska liðið stefni ekki á að vera bara með í úrslitakeppni EM heldur ætli liðið sér einhverja hluti.

Strákarnir með Frökkum, Dönum og Rússum í riðli á EM
Ísland verður í riðli með Frakklandi, Danmörku og Rússlandi á Evrópumóti karla í fótbolta skipað leikmönnum U-21 árs og yngri.

Ísland í neðsta styrkleikaflokki er dregið verður í riðla á EM
Íslenska landsliðið skipað leikmönnum 21 árs eða yngri verður í neðsta styrkleikaflokki er dregið verður í riðla fyrir lokakeppni Evrópumótsins í knattspyrnu. Dregið verður þann 10. desember.

Arnar hefur áhuga á A-landsliðsstarfinu: „Ekki til stærra starf á Íslandi“
Arnar Þór Viðarsson, yfirmaður knattspyrnumála hjá KSÍ og þjálfari U21-árs landsliðsins í fótbolta, hefur áhuga á því að verða næsti A-landsliðsþjálfari. Þetta staðfesti hann í útvarpsþættinum Fótbolti.net á X-inu í dag.