Hernaður

Man enn eftir því þegar móðir hans var hýdd af Talibönum
Afganskur maður, sem flúði til Íslands fyrir ári síðan, óttast að foreldrar hans og tvær systur séu í bráðri lífshættu en þau eru enn föst í Kabúl. Hann vinnur nú að því að fá þau aftur til Íslands.

Uppreisnarhersveitir sagðar hafa náð þremur héruðum í Norður-Afganistan
Uppreisnarhersveitir, sem berjast nú gegn Talibönum, segjast hafa náð þremur héruðum í norðurhluta Afganistan á vald sitt. Héruðin eru nærri Panjshir dalnum þar sem stjórnarhermenn og aðrar hersveitir sem eftir eru í landinu hafa safnast saman.

Þúsundir freista þess að flýja Talibana
Bandaríkjamenn reyna hvað þeir geta til að hraða flutningi á löndum sínum og flóttamönnum frá Afganistan áður en allt bandarískt herlið á að vera að fullu farið frá landinu hinn 31. ágúst.

Fara hús úr húsi í leit að skotmörkum
Hermenn Talibana í Afganistan fara nú hús úr húsi í Kabúl í leit að einstaklingum sem störfuðu fyrir herlið Atlantshafsbandalagsins eða fyrrverandi ríkisstjórn landsins.

Pólski herinn sinnir loftrýmisgæslu í fyrsta sinn
Á annað hundrað liðsmenn pólska flughersins taka þátt í loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins við Ísland í þessum mánuði en þetta er í fyrsta skipti sem Pólverjar taka þátt í verkefninu á Íslandi.

Vonsvikinn og leitar svara um móttöku afgansks flóttafólks
Afgani sem er búsettur hér á landi tekur lítið mark á yfirlýsingum Talibana um betrun. Hann kallar eftir að íslensk stjórnvöld marki skýra stefnu í móttöku flóttafólks og segist alls staðar hafa komið að lokuðum dyrum hjá íslenskum stjórnvöldum.

Heilagir nemendur í þrjátíu ár
Mikil ringulreið hefur ríkt í Afganistan undanfarna daga eftir að hersveitir Talibana náðu yfirráðum á höfuðborginni Kabúl og í raun landinu öllu. Þetta er fyrsta sinn í tuttugu ár sem Talibanar hafa haft raunveruleg völd í Afganistan eftir að þeir voru hraktir á brott af her Bandaríkjanna og bandamanna þeirra árið 2001.

Fundu líkamsleifar í hjólahólfi vélar sem flaug frá Kabúl
Rannsóknarnefnd á vegum bandaríska flughersins hefur ákveðið að hefja rannsókn á líkamsleifum sem fundust í hjólahólfi C-17 herflutningavélar, sem flaug af flugvellinum í Kabúl í gær.

Allir þrír um borð taldir af eftir flugslys í Rússlandi
Talið er að allir þrír sem voru um borð í tilraunaflugi rússneskrar herflugvélar hafi látist þegar hún hrapaði til jarðar á höfuðborgarsvæði Moskvu í dag. Atvikið náðist á myndband sem má sjá hér neðar í fréttinni.

Afganskar knattspyrnukonur í felum og kalla á hjálp
Talibanar náðu Kabúl, höfuðborg Aftanistan, undir sitt vald á sunnudag. Leikmenn afganska kvennalandsliðsins í knattspyrnu hafa nær allar farið í felur enda óttast þær um líf sitt í kjölfar valdaskiptanna.

Konur birtast á skjánum á ný
Kvenkyns fréttaþulur birtist á skjánum á ný hjá fréttastofunni Tolo News í Afganistan í gærkvöldi en konur hafa ekki sést á skjánum frá því Talibanar náðu Kabúl höfuðborg landsins á sitt vald á sunnudag.

Varði ákvörðunina og skellti skuldinni á ráðamennina sem flúðu
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, varði ákvörðun sína um að draga bandarískt herlið frá Afganistan er hann ávarpaði bandarísku þjóðina í kvöld. Hann segist standa við ákvörðunina en viðurkennir að Talibanar hafi náð völdum hraðar en gert hafði verið ráð fyrir. Það sé hins vegar ráðamönnum í Afganistan að kenna.

Harmleikurinn í Afganistan og ábyrgð okkar
Eftir tuttugu ára hersetu Bandaríkjanna og Nató er Afganistan aftur komið undir stjórn Talibana. Stjórnarherinn sem naut þjálfunar og hergagna frá Bandaríkjunum var þrjá daga að tapa stríðinu og forsetinn hefur flúið land.

Hún bíður eftir því að vera myrt
Fyrir þremur vikum var ég stödd á ráðstefnu í Munchen. Á ráðstefnunni tók til máls ung kona, tveimur árum eldri en ég, Zarifa Ghafari, fyrsti kvenkyns borgarstjóri Afghanistan.

Segjast ætla að auka lífsgæði afgönsku þjóðarinnar
Mullah Baradar Akhund, annar helsti leiðtogi Talibana í Afganistan, sagði í myndbandsávarpi til afgönsku þjóðarinnar í gær að nú væri kominn tími til að sjá fyrir þjóðinni og færa líf hennar til betri vegar.

Hermenn gefast upp í hrönnum
Hundruð afganskra hermanna og yfirmenn þeirra gáfust upp fyrir vígamönnum Talibana í morgun. Það gerðu þeir í vestur- og suðurhluta landsins eftir að Talibanar tóku margar mikilvægar borgir.

Einn helsti sérfræðingur Rússlands í þróun hljóðfrárra loftfara handtekinn fyrir landráð
Yfirvöld í Rússlandi handtóku í gær einn helsta sérfræðing landsins í þróun hljóðfrárra loftfara. Hann var úrskurðaður í tveggja mánaða gæsluvarðhald vegna gruns um að hann hafi framið landráð.

Náðu tveimur lykilborgum í kvöld
Talibanar hertóku í kvöld tvær stórar borgir í Afganistan, þær næststærstu á eftir höfuðborginni Kabul. Herlið talibana þrengir stöðugt að höfuðborginni og hefur nú náð yfirráðum í 12 af 34 héraðshöfuðborgum landsins á innan við viku.

Valta yfir stjórnarherinn: Ríkisstjórnin býðst til að deila völdum með Talibönum
Vígamenn Talibana náðu í morgun tökum á þeirra tíundu héraðshöfuðborg í Afganistan. Á undanfarinni viku virðast Talibanar hafa valtað yfir stjórnarher landsins og sveitir stríðsherra sem styðja ríkisstjórnina.

Þúsundir leita skjóls í Kabúl en enda á götunni
Þúsundir manna hafa flúið heimili sín víðs vegar um Afganistan undan stórsókn Talibana til höfuðborgarinnar Kabúl.

Biden segir Afgana þurfa að berjast fyrir landinu sínu
Joe Biden forseti Bandaríkjanna segist ekki sjá eftir að hafa kallað herlið Bandaríkjamanna í Afganistan heim þótt Talibanar hafi að undanförnu náð hverri héraðshöfuðborg landsins á sitt vald.

Hver borgin fellur á fætur annarri
Vígamenn Talibana hafa hert tök sín á yfirráðasvæðum þeirra í norðurhluta Afganistans og virðast þeir vera að undirbúa sig fyrir það að stjórna svæðum þessum til lengri tíma. Stjórnarher landsins á undir högg að sækja en Bandaríkjamenn segja það á ábyrgð Afgana sjálfra að verjast Talibönum.

Aldrei aftur Hiroshima
6. maí árið 1945 varpaði bandaríski herinn kjarnorkusprengju á japönsku borgina Hiroshima. Þremur dögum síðar var sprengju varpað á borgina Nagasaki. Um 200 þúsund manns dóu á einu augabragði í þessum árásum og enn glímir fólk við eftirköst og veikindi rúmum 75 árum síðar.

Talibanar taka tvær borgir til viðbótar
Vígamenn Talibana segjast hafa náð tökum á borginni Kunduz, höfuðborg Kunduz-héraðs. Það er eftir harða bardaga í borginni en fregnir hafa einnig borist af falli borgarinnar Sar-e-Pul, sem er einnig höfuðborg héraðs með sama nafn.

Talibanar ná annarri höfuðborg
Vígamenn Talibana hafa náð tökum á annarri héraðshöfuðborg í Afganistan. Borgin Sheberghan, höfuðborg Jawzjan-héraðs, er önnur höfuðborgin sem fellur í skaut Talibana á tveimur dögum.

Reiðir heimamenn handsömuðu meðlimi Hezbollah sem skutu eldflaugum að Ísrael
Reiðir þorpsbúar í Chouya í suðurhluta Líbanons stöðvuðu bílalest á vegum Hezbollah hryðjuverkasamtakanna sem virðist hafa verið notuð til að skjóta eldflaugum að Ísrael í morgun.

Talibanar taka fyrstu borgina án þess að hleypa af skoti
Vígamenn Talibana hafa náð tökum á fyrstu héraðshöfuðborg landsins. Borgin Zaranj í Nimruz-héraði féll í hendur þeirra án þess að skoti væri hleypt af. Zaranj er nærri landamærum Afganistans og Írans.

Reyndu að myrða varnarmálaráðherrann og heita fleiri árásum á leiðtoga
Talibanar gerðu í gær bíræfna tilraun til að ráða varnarmálaráðherra Afganistans af dögum og heita frekari árásum á leiðtoga ríkisstjórnar landsins. Bismillah Khan Mohammadi, ráðherrann, var ekki heima og verðir fluttu fjölskyldu hans á brott.

Sektaður fyrir ólöglegt vopnabúr: Notaði skriðdrekann sem snjóplóg
Þýskur eftirlaunaþegi hefur verið dæmdur í 14 mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða 37 milljónir króna í sekt fyrir að eiga umfangsmikið safn ólöglegra vopna. Meðal gripanna var skriðdreki, sem var fjarlægður af heimili mannsins af þýska hernum.

Fyrsta borgin nærri því fallin í hendur Talibana
Talibanar eru nálægt því að ná fullum tökum á Lashkar Gah, héraðshöfuðborg Helmand-héraðs. Þeir hafa einnig sótt fram gegn stjórnarher landsins í borgunum Kandahar og Herat.