Fjármál heimilisins

Beinskeytt skilaboð seðlabankastjóra: „Ætla aðrir að taka við boltanum?“
Ásgeir Jónsson, var nokkuð beinskeyttur, þegar hann varpaði boltanum í baráttunni gegn verðbólgunni til aðila vinnumarkaðarins og ríkisstjórnarinnar. Hann sagði Seðlabankann hafa náð árangri gegn verðbólgunni og spurði í leiðinni hvað aðrir lykilleikendur í efnahagslífinu ætli sér að gera til að ná verðbólgunni niður.

„Mögulega erum við búin að gera nóg“
Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri, segir að 25 punkta hækkun stýrivaxta Seðlabankans nú sé vísbending um að Peningastefnunefnd sé ánægð með árangurinn sem náðst hefur með miklum hækkunum stýrivaxta síðustu misseri. Mögulegt sé að toppi stýrivaxtahækkana sé náð. Það ráðist þó af þróun hagkerfisins sem og niðurstöðu væntanlegrar kjarasamningalotu.

Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður 25 punkta hækkun
Fulltrúar peningastefnunefndar Seðlabankans munu rökstyðja stýrivaxtahækkun sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Tilkynnt var í morgun að vextir bankans yrðu hækkaðir um 0,25 prósentustig.

Níunda hækkunin í röð: Seðlabankinn hækkar stýrivexti um 0,25 prósentur
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentustig. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, fara því úr 5,5 prósent í 5,75 prósent. Þetta er níunda stýrivaxtahækkun Seðlabankans í röð.

Hvað ef spáin okkar rætist?
Það er enginn hægðarleikur að skyggnast inn í framtíðina þessa dagana. Framvinda innrásarinnar í Úkraínu, erfiðleikar í viðskiptalöndunum okkar og kjarasamningalotan framundan er meðal þess sem getur haft umtalsverð áhrif á þróun efnahagsmála hérlendis næsta kastið.

Spá níundu stýrivaxtahækkuninni í röð
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að Seðlabanki Íslands muni hækka stýrivexti enn frekar í næstu viku.

„Við erum að tala um ekki bara hundruð milljarða heldur þúsundir milljarða“
Bergi Ebba Benediktssyni rithöfundi og fyrirlesara er margt til lista lagt; hið nýjasta er að vera sérlegur áhugamaður um lífeyrissjóði. Bergur segir í viðtali við Ísland í dag að hann hafi áhyggjur af „ídentítet“-leysi lífeyrissjóða, enda séu þeir á meðal mikilvægari stofnana í okkar samfélagi.

Vextir, verðbólga og öskrandi verkkvíði
Afborganir af húsnæðislánunum hækka og matarkarfan hækkar. Þessi staða hefur ekki farið fram hjá heimilum landsins. Afborganir hafa í mörgum tilvikum hækkað um tugi þúsunda á mánuði. Almennt mætti fólk búast við því að ríkisstjórnin ynni þá það verkefni sem henni er falið: Að verja kjör heimila og fyrirtækja.

Breyta fyrirkomulagi launagreiðslna ríkisstarfsmanna eftir gagnrýni
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur heimilað Fjársýslunni að breyta fyrirkomulaginu á launagreiðslum ríkisstarfsmanna eftir mikla gagnrýni á fyrirkomulagið. Með breytingunni verða laun greidd út fyrsta hvers mánaðar, óháð því hvort dagsetningin lendi á helgi eða lögbundnum frídegi.

Vörukarfan lækkar í helmingi verslana
Vörukarfa ASÍ hækkaði í fjórum af átta matvöruverslunum og lækkaði í fjórum verslunum á fjögurra mánaða tímabili, frá byrjun maí til byrjun september.

Hvað kostar það mig að nota peningana mína?
Væntanlega notum við langflest greiðslukort til daglegrar neyslu, hvort sem það er að borga með símanum á kassanum í Krónunni, eða notum kortanúmerið til að kaupa vettlinga á Boozt. Við vitum líka að við borgum alls konar þóknanir og gjöld fyrir að nota greiðslukortin, blótum þessum gjöldum í hljóði, en erum samt sem áður viss um að svona sé þetta bara, þetta muni aldrei breytast.

Samstöðuaðgerðir vegna verðbólgu og vaxtahækkana
Við komum út úr heimsfaraldri með gríðarlega miklar eignaverðshækkanir og aukinn eigna- og tekjuójöfnuð vegna aðgerða stjórnvalda. Fjármagnstekjur jukust um 52% á milli ára, mesta aukningin frá árinu 2007, og tekjuhæsta tíundin í landinu sá kaupmátt sinn vaxa tvöfalt á við aðra Íslendinga vegna þessa í fyrra. Tveir af æðstu stjórnendum landsins í efnahagsmálum töluðu um lágvaxtaumhverfi sem komið væri til að vera.

Íbúðaverð lækkar á milli mánaða í fyrsta sinn í þrjú ár
Vísitala íbúðaverðs lækkaði um 0,4 prósent á milli mánaða í ágúst. Er það í fyrsta sinn síðan í nóvember 2019 sem vísitalan lækkar. Hagfræðideild Landsbankans telur að þetta sé skýrt merki um að fasteignamarkaðurinn sé farinn að kólna.

Hver er raunveruleg kaupgeta lágtekjufólks?
Það virðist ríkja almenn sátt um það hér á landi að standa þurfi sérstakan vörð um kjör þeirra verst settu í samfélaginu. Iðulega þegar stjórnmálamenn tjá sig um efnahagsmál, og þá sérstaklega á þeim verðbólgutímum sem núna ríkja, nefna þeir sérstaklega að hlúa þurfi að þeim tekjulægstu vegna þess að verðbólgan bitnar verst á þeim.

„Ég skal axla ábyrgð á þessu máli“
Þingmaður í stjórnarandstöðunni ætlar að taka ábyrgð í máli sem enginn annar virðist vilja taka ábyrgð á.

Neytendur finna vel fyrir verðhækkunum: „Þetta er orðinn ansi dýr pakki“
Útlit er fyrir að verðbólgan hjaðni hægt á næstu mánuðum en verði þó enn mikil. Neytendur finna vel fyrir mikilli verðhækkun á matarkörfunni samhliða hækkunum á öðrum kostnaðarliðum. Fyrir foreldra með börn sé þetta til að mynda orðinn ansi dýr pakki.

Reikna með að verðbólgan mjakist niður á við
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að ársverðbólga muni mælast 9,6 prósent í september. Gangi það eftir telur hagfræðideildin að það sé frekari staðfesting þess að verðbólga hafi náð hámarki hér á landi.

Ætla að sækja allar hækkanir í fjárlagafrumvarpinu aftur í kjarasamningum
Formaður VR segir fyrirhugaðar skattahækkanir í nýju fjárlagafrumvarpi koma til með að hafa bein áhrif á kröfur félagsins við komandi kjarasamningsgerð. Hann hefði viljað sjá stórar aðgerðir eins og leiguþak í frumvarpinu til að sporna gegn verðbólgunni.

Þau sömu og finni mest fyrir verðbólgunni séu látin taka skellinn í baráttunni gegn henni
Ríkisstjórnin ákveður með nýju fjárlagafrumvarpi að láta þau sömu og finna mest fyrir verðbólgunni taka skellinn í baráttunni gegn verðbólgunni að mati Jóhanns Páls Jóhannssonar, þingmanni Samfylkingarinnar. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, telur að ríkisstjórnin skjóti sig í báðar fætur með frumvarpinu.

Forstöðukona Dyngjunnar sökuð um að maka krókinn við innkaup fyrir heimilið
Fyrrverandi forstöðukona Dyngjunnar, áfangaheimili fyrir heimilislausar konur sem koma úr áfengismeðferð og eiga sumar hvergi höfði að halla, er sökuð um að hafa farið afar frjálslega með úttektarheimildir sínar og notað til að fjármagna einkaneyslu sína.

Að hneppa þjóð í þrældóm
Á síðustu mánuðum hefur seðlabankastjóri hert á snörunni, hægt og bítandi. Snörunni sem lögð var fyrir þjóðina snemma árs 2020 með gífurlegri stýrivaxtalækkunum sem náðu lágmarki árið 2021. Í felum lágu svo seðlabankastjóri, ásamt öðrum bankastjórum og stjórnendum fasteignafélaga. Þessir aðilar eru jú þeir sem einna helst vilja ginna sem flesta í gildruna.

Arion banki og Íslandsbanki hækka vextina
Arion banki hefur tilkynnt um hækkun inn- og útlánavaxta bankans sem taka gildi í dag, en vaxtahækkanir hjá Íslandsbanka munu taka gildi á föstudaginn. Tilkynnt er um hækkunina í kjölfar stýrivaxtahækkunar Seðlabankans 24. ágúst síðastliðinn.

Neytendur eigi inni talsverðar lækkanir á eldsneytisverði
Framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB, segir eldsneytisverð hér á Íslandi hæst í Evrópu. Neytendur eigi inni talsverðar verðlækkanir og kallar eftir því að stjórnvöld beiti sér fyrir lækkuðu verði.

Bensínlítrinn undir þrjú hundruð krónum hjá Costco
Hækkun bensínlítrans hefur eflaust haft einhver áhrif á veski landsmanna en bensínlítrinn er nú kominn undir þrjú hundruð krónur á bensínstöð Costco og er 298,2 krónur.

Samkaup lækkar verð á fjögur hundruð vörum um tíu prósent
Verslunarkeðjan Samkaup hefur ákveðið að lækka verð á yfir fjögur hundruð vörunúmerum undir vörumerkjum Änglamark og lágvörumerkinu X-tra í öllum verslunum sínum. Um er að ræða tíu prósenta verðlækkun á vörunúmerunum sem þegar hefur tekið gildi og kemur til með að haldast óbreytt fram til áramóta hið minnsta.

Stökkbreytt greiðslubyrði
Húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði aðeins um 0,1% í að raunvirði í júlí og hefur ekki hækkað minna síðan í febrúar 2021.

Landsbankinn fyrstur til að hækka vextina
Landsbankinn hefur ákveðið að hækka breytilega vexti á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,75 prósentustig og verða þeir eftir breytingu sjö prósent.

Boðar fleiri tugi þúsunda í sparnað með debetkortum
Fleiri þúsund manns eru á biðlista, en tvö hundruð manns hafa þegar tekið í notkun greiðslukort frá nýja samfélagsbankanum - eða sparisjóðnum - Indó. Greiðslukortunum fylgja ekki færslugjöld og framkvæmdastjóri sparisjóðsins segir viðskiptavini hæstánægða.

Veruleikatenging
309 kjarasamningar renna út næstu mánuði. Meðal þeirra eru samningar allra aðildarfélaga Kennarasambands Íslands, auk kjarasamnings BSRB við sveitarfélögin og fjöldi samninga ýmissa félaga háskólamenntaðra við ríki og sveitarfélög.

Um 34% aukning á hreinum nýjum bílalánum á milli ára
Um 34% aukning er á hreinum nýjum bílalánum heimilanna á milli ára. Forstöðumaður hagfræðideildar Landsbankans segir þetta benda til þess að enn sé talsverður neysluvilji til staðar.