HM 2023 í Ástralíu og Nýja-Sjálandi

Mótherjar Íslands tapað 8-0 tvisvar í röð en „spila agaðan varnarleik“
Ísland mætir Kýpur annað kvöld á Laugardalsvelli. Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, ætlar að gera breytingar á byrjunarliðinu sem mætti Tékklandi á föstudag og vann frábæran 4-0 sigur.

„Hugsa um mig eins og mamma og pabbi“
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir fékk Glódísi Perlu Viggósdóttur sem liðsfélaga hjá Bayern München í sumar og nýtur þess innan sem utan vallar.

Svona var fundurinn með Karólínu og Þorsteini fyrir leikinn við Kýpur
Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson og Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, leikmaður Bayern München, sátu fyrir svörum á blaðamannafundi fyrir leik Íslands og Kýpur sem fram fer annað kvöld.

Sveindís Jane: Á leiðinni til Wolfsburg eftir tímabilið
Íslenska kvennalandsliðið leikur við Kýpur á Laugardalsvelli á þriðjudaginn. Sveindís Jane Jónsdóttir, sóknarmaður íslenska liðsins, var spurð út í síðasta leik landsliðsins og verkefnið framundan.

Myndasyrpa frá stórsigri Íslands í gærkvöld
Ísland vann stórbrotinn 4-0 sigur á Tékklandi í undankeppni HM 2023 í fótbolta í gærkvöld. Ljósmyndari Vísis var á staðnum og tók fjölda mynda á votum Laugardalsvelli.

Hollendingar völtuðu yfir næstu andstæðinga Íslands
Holland vann þægilegan 8-0 sigur á Kýpur ytra er liðin mættust í undankeppni HM 2023 í kvöld. Ísland mætir Kýpur á þriðjudaginn kemur.

Landsliðsþjálfarinn vildi ekki að Guðný myndi senda boltann fyrir markið
Glódís Perla Viggósdóttir, varnarmaður, og Þorsteinn Halldórsson, þjálfari, mættu á blaðamanna fund að loknum kvennalandsleik Íslands og Tékklands á Laugadalsvelli í kvöld.

Fyrirliðinn um óvænt mark sitt: „Alltaf gaman að skora en ég er bara ánægð með að við setjum fjögur“
„Mjög stolt, þetta var mjög mikilvægur leikur og við vissum að Tékkland var með sterkt og vel spilandi lið. Höldum hreinu og skorum fjögur svo ég gæti ekki verið sáttari,“ sagði fyrirliði Íslands, Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, að loknum fræknum sigri Íslands í kvöld.

Þorsteinn eftir stórsigurinn á Tékklandi: „Við erum í bílstjórasætinu og ráðum því sjálf hvernig framhaldið verður“
„Úrslitin eru náttúrulega eitthvað sem maður hefði alltaf óskað sér. Þetta var hörkuleikur, ef ég segi sanngjarnt frá var þetta kannski ekki 4-0 leikur,“ sagði Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska landsliðsins, eftir stórsigur Íslands á Tékklandi.

Guðrún: Það kom mér á óvart að ég væri í byrjunarliðinu
Guðrún Arnardóttir, nýkrýndur Svíaþjóðarmeistari, fékk tækifærið í mikilvægum landsleik íslenska kvennalandsliðsins í kvöld og nýtti það frábærlega.

Berglind Björg: „Nei nei nei, ég skoraði þetta mark“
Berglind Björg Þorvaldsdóttir opnaði markareikning Íslands í 4-0 stórsigrinum á Tékklandi í undankeppni HM 2023 á Laugardalsvelli í kvöld. Hún var eðlilega himinlifandi að leik loknum er hún ræddi við Vísi og Stöð 2.

Einkunnir Íslands: Guðrún glansaði og nokkrar áttur
Margir leikmenn íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta áttu góðan leik þegar það vann 4-0 sigur á Tékklandi í undankeppni HM 2023 í kvöld.

Dagný: Öll færin okkur voru eiginlega mörk í dag
„Þetta var frábær sigur, fjögur mörk og að halda hreinu. Við höfum aldrei unnið Tékkland áður og vorum að ná í okkar fyrstu stig í riðlinum þannig að við erum yfir okkar glaðar með þennan sigur,“ sagði Dagný Brynjarsdóttir einn af markaskorurunum íslenska landsliðsins í 4-0 sigri á Tékklandi í dag.

Umfjöllun: Ísland - Tékkland 4-0 | Frábær íslenskur sigur
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann frábæran sigur á Tékklandi, 4-0, á Laugardalsvelli í kvöld. Ísland fékk þar með sín fyrstu stig í undankeppni HM 2023.

Twitter yfir mögnuðum sigri á Tékklandi: „Hvað er að gerast Ísland?“
Ísland vann magnaðan 4-0 sigur á Tékklandi í undankeppni HM 2023 á Laugardalsvelli í kvöld.

Karólína og Guðrún koma inn í byrjunarliðið
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, gerir tvær breytingar á byrjunarliðinu fyrir leikinn gegn Tékklandi í undankeppni HM 2023 í kvöld.

Þorsteinn: Við viljum fara á HM og því ætlum við að vinna í kvöld
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu spilar í kvöld gríðarlega mikilvægan leik í undankeppni HM þegar Tékkar mæta á Laugardalsvöllinn. Þetta er leikur sem má ekki tapast og verður helst að vinnast ætli stelpurnar okkar að komast á HM í fyrsta skiptið.

„Bjartsýni að halda að ég gæti spilað núna“
Elín Metta Jensen hefur misst af byrjun fyrstu undankeppni íslenska landsliðsins í fótbolta undir stjórn Þorsteins Halldórssonar, vegna meiðsla. Hún treystir á liðsfélaga sína í kvöld og segir Ísland með sterkara lið en Tékkland.

„Setjum þá kröfu á okkur sjálfar að taka þrjú stig“
Dagný Brynjarsdóttir, leikmaður íslenska landsliðsins í fótbolta, segir að búast megi við jöfnum og hörðum leik þegar Ísland tekur á móti Tékkum á Laugardalsvelli í undankeppni HM 2023 á morgun.

„Þessar eldri eru með blóðið á tönnunum“
„Ég er ekki búin að vera nógu sátt við mig í síðustu leikjum en ég get vonandi sýnt í næstu leikjum hvað býr í mér,“ segir hin 21 árs gamla Alexandra Jóhannsdóttir sem ætlar að láta til sín taka í leiknum mikilvæga gegn Tékklandi annað kvöld.

„Var svolítið týnd í fyrri hálfleik“
Guðný Árnadóttir, leikmaður AC Milan, segist vera klár í að leysa stöðu hægri bakvarðar áfram með íslenska landsliðinu. Hún eigi enn eftir að fínpússa sóknarþáttinn þegar hún spilar þá stöðu.

Svona var blaðamannafundurinn fyrir Tékkaleikinn
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari og Dagný Brynjarsdóttir sátu fyrir svörum á blaðamannafundi á Laugardalsvelli klukkan 12:30 vegna leiks Íslands við Tékkland annað kvöld.

„Fékk það í gjöf frá pabba að hugsa um yngri leikmenn“
Aldursforsetinn í íslenska kvennalandsliðinu segist hugsa vel um yngri leikmenn þess, eins og hún hafi alltaf gert.

„Stefni klárlega á EM næsta sumar“
Þrátt fyrir vera orðinn 36 ára og á heimleið eftir þrettán ár í atvinnumennsku ætlar Sif Atladóttir ekkert að gefa sæti sitt í landsliðinu eftir og ætlar að spila með því á EM næsta sumar.

Amanda valin í lið umferðarinnar í norsku deildinni
Íslenska landsliðskonan Amanda Jacobsen Andradottir kom inn á sem varamaður í síðasta leik Vålerenga en tókst engu að síður að vinna sér sæti í liði sextándu umferðarinnar norsku úrvalsdeildarinnar.

Segir Dagnýju hafa varað sig við aðstæðum á Íslandi
Katerina Svitková er stærsta stjarnan í liði Tékka sem mæta Íslandi á Laugardalsvelli á föstudag. Hún hlakkar til að glíma við Dagnýju Brynjarsdóttur og segir hana hafa varað sig við aðstæðum á vellinum.

„Eigum frekar leiðinlega sögu á móti þeim“
„Ég er ótrúlega spennt fyrir þessum leik,“ segir Glódís Perla Viggósdóttir um leikinn við Tékkland á föstudaginn sem gæti ráðið miklu um vonir Íslands um að komast á HM í Ástralíu. Tékkar sviptu Ísland síðasta HM-draumi.

Íslensk/japönsk samvinna hjá Bayern: „Hún er algjör snillingur“
Glódís Perla Viggósdóttir var ekki lengi að stimpla sig inn í byrjunarlið Þýskalandsmeistara Bayern München þrátt fyrir óvænt skakkaföll við komuna frá Svíþjóð. Hún nýtur þess í botn að leika við hlið hinnar sigursælu Saki Kumagai og segir „allt upp á tíu“ hjá þýska stórveldinu.

Leið fyrst eins og hún hefði ekki unnið neitt: „Vona að þau hugsi til mín“
Glódís Perla Viggósdóttir og Guðrún Arnardóttir mættu til æfinga með íslenska landsliðinu í fótbolta í gær sem nýkrýndir Svíþjóðarmeistarar. Þær náðu þó aldrei að spila saman hjá meistaraliði Rosengård.

Ísland án Elínar Mettu í leiknum mikilvæga
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta verður án Elínar Mettu Jensen, framherja Vals, í komandi landsleikjum gegn Tékklandi og Kýpur í undankeppni HM.