

Leikur Armeníu og Noregs í undankeppni HM kvenna í fótbolta fer fram við erfiðar aðstæður í Jerevan og það endaði með að dómarinn stöðvaði leikinn. Nú er búið að ákveða að leikurinn verður ekki kláraður fyrr en á morgun.
Glódís Perla Viggósdóttir tekur undir gagnrýni á UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, vegna þeirra leikstaða sem urðu fyrir valinu á EM í Englandi næsta sumar.
Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag en íslenska kvennalandsliðið mætir Kýpur ytra annað kvöld. Fyrri leik liðanna lauk með 5-0 sigri Íslands.
Hin íslensk-kanadíska Cloé Eyja Lacasse spilaði sinn fyrsta A-landsleik um helgina þegar Kanada tapaði 2-1 á móti Mexíkó í vináttulandsleik.
Íslenska landsliðkonan Dagný Brynjarsdóttir er í flottu viðtali á heimasíðu Alþjóða knattspyrnusambandsins en nú stendur yfir landsleikjavika og íslenska landsliðið mætir Kýpur annað kvöld.
Berglind Björg Þorvaldsdóttir, leikmaður Hammarby og íslenska landsliðsins sat fyrir svörum á blaðamannafundi í dag. Landsliðið er í Kýpur svo fundurinn fór fram í gegnum fjarfundaforrit.
Kýpverska kvennalandsliðið í fótbolta náði sér í sitt fyrsta stig í C-riðli okkar Íslendinga í undankeppni HM 2023 er liðið tók á móti Hvíta-Rússlandi. Lokatölur urðu 1-1, en þetta var aðeins annað markið sem Kýpur skorar í undankeppninni.
Hin átján ára gamla Cecilía Rán Rúnarsdóttir lék sinn fimmta A-landsleik í gær og enn á ný tókst þessum efnilega markverði að halda marki sínu hreinu í íslenska landsliðsbúningnum.
Ísland vann frábæran 2-0 sigur gegn Japan í vináttulandsleik í Hollandi í gær, í leik sem þjálfarinn Þorsteinn Halldórsson taldi þann besta frá því að hann tók við kvennalandsliðinu í fótbolta fyrir tæpu ári síðan.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann góðan 2-0 sigur gegn Japan í vináttulandsleik liðanna sem fram fór í Hollandi í kvöld.
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, segir að Íslendingar megi ekki óttast að gera mistök í leiknum gegn Japönum í kvöld.
Eins og við hér heima á Íslandi þá eru Svíar með mjög spennandi kvennalandslið í fótboltanum. Það er líka mikill áhugi á sænsku stelpunum þessa dagana eins og sjá má á fréttum frá Svíþjóð.
Þorsteinn Halldórsson segir að áfengi sé ekki veitt í ferðum íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta.
Kvennalandslið Íslands í handbolta og fótbolta héldu bæði erlendis í morgun. Svo skemmtilega vildi til að þau hittust í Leifsstöð.
Síðasta vika var mjög viðburðarík fyrir Natöshu Anasi. Hún skipti yfir í Breiðablik og var valin í íslenska landsliðið fyrir leiki seinna í þessum mánuði.
Hin þrítuga Natasha Anasi gæti leikið sinn fyrsta mótsleik fyrir íslenska A-landsliðið í fótbolta síðar í þessum mánuði. Natasha og nýliðinn Ída Marín Hermannsdóttir koma nýjar inn í hópinn frá síðasta verkefni.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta, segist hafa úr mörgum góðum leikmönnum að velja. Á blaðamannafundi í dag nefndi hann nokkra leikmenn sem eru á mörkum þess að komast í landsliðshópinn.
Einn nýliði er í íslenska landsliðshópnum sem mætir Japan og Kýpur í lok mánaðarins. Þetta er Valskonan Ída Marín Hermannsdóttir.
Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu á ekki eftir einn landsleik á þessu ári heldur tvo. KSÍ segir frá nýskipulögðum vináttulandsleik við Japana seinna í þessum mánuði.
Ísland vann þægilegan 5-0 sigur á Kýpur í undankeppni HM 2023 á Laugardalsvelli í kvöld. Liðið nú unnið síðustu tvo leiki sína með markatölunni 9-0 og stefnir í góða undankeppni.
Sveindís Jane Jónsdóttir skoraði tvö mörk í 5-0 sigri á Kýpur í kvöld í undankeppni HM. Þetta voru fyrstu landsliðsmörk hennar í meira en ár.
Ísland vann einkar þægilegan 5-0 sigur á Kýpur á Laugardalsvelli í undankeppni HM 2023 í knattspyrnu í kvöld. Sigurinn var síst of stór og hefði liðið hæglega getað bætt við mörkum. Hér að neðan má sjá það helsta sem fram fór á Twitter á meðan leik stóð.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta átti ekki í vandræðum með að vinna Kýpur, 5-0, í undankeppni HM í kvöld í síðasta heimaleik sínum á þessu ári.
Amanda Andradóttir lék sinn fyrsta byrjunarliðsleik fyrir íslenska landsliðið er Ísland lagði Kýpur 5-0 í undankeppni HM 2023 í kvöld. Amanda kom mikið við sögu og lagði upp eitt mark. Hún var því eðlilega nokkuð sátt í leikslok.
Fyrirliði íslenska landsliðsins í sigrinum á Kýpur í undankeppni HM í kvöld var að spila sinn fyrsta landsleik í meira en 24 mánuði.
Fjórir leikmenn fengu 8 í einkunn fyrir frammistöðu sína í 5-0 sigri Íslands gegn Kýpur í undankeppni HM kvenna í fótbolta í kvöld.
Landsliðsþjálfarinn Þorsteinn Halldórsson var nokkuð sáttur með 5-0 sigur Íslands á Kýpur í undankeppni HM 2023 í kvöld. Hann hefði þó viljað sjá fleiri mörk líta dagsins ljós.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, gerir sjö breytingar á byrjunarliðinu sínu fyrir leikinn á móti Kýpur í undankeppni HM 2023 sem fer fram á Laugardalsvellinum í kvöld.
„Við erum alltaf glaðar þegar við erum komnar inn í herbergi,“ segir Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, landsliðskona í fótbolta. Hún á í harðri samkeppni um stöðu í byrjunarliði Íslands, meðal annars við herbergisfélaga sinn, Alexöndru Jóhannsdóttur.
„Ég veit ekki hvað ég hef gert til að verðskulda þetta. Ég er gjörsamlega í frystikistunni og tel mjög ólíklegt að ég fái eitthvað að spila,“ segir landsliðskonan Svava Rós Guðmundsdóttur um leiðindastöðu sína hjá franska knattspyrnufélaginu Bordeaux.