Sjálfræðisbarátta Britney Spears

Hætti með Britney í textaskilaboðum
Ævisaga Britney Spears kemur út í Bandaríkjunum í dag en í henni fer söngkonan um víðan völl.

Sakar Britney um framhjáhald og er fluttur út
Sam Asghari, eiginmaður poppstjörnunnar Britney Spears, er sagður hafa flutt af heimili þeirra og undirbúi sig nú undir að sækja um skilnað frá henni. Ástæðan er sögð meint framhjáhald Britneyar.

Britney selur Calabasas ástarhreiðrið
Poppstjarnan Birtney Spears hefur selt heimili sitt í Calabasas í Kaliforníu. Um er að ræða sannkallaða höll sem hún keypti nokkrum dögum eftir að hún gekk í hjónaband með Sam Asghari á síðasta ári.

Instagram reikningi Britney lokað eftir háværar samsæriskenningar
Aðdáendur poppprinsessunnar Britney Spears eru áhyggjufullir og hafa ýmsar skrautlegar samsæriskenningar skotið upp kollinum síðustu vikur. Sú samsæriskenning sem er hvað háværust er að söngkonan sé í raun lokuð inni á geðdeild og að eiginmaður hennar, Sam Asghari, sé með staðgengil fyrir hana sem kemur fram á samfélagsmiðlum. Hollywood spekúlantinn Birta Líf Ólafsdóttir fór yfir málið í Brennslutei vikunnar.

Britney fyrirgefur mömmu sinni ekki
Söngkonan Britney Spears er ekki sátt við afsökunarbeiðnina sem móðir hennar skildi eftir undir mynd á Instagram miðli Britney. „Mamma taktu afsökunarbeiðnina þína og rí**u þér,“ sagði hún meðal annars.

Britney biður þess að foreldrar sínir brenni í helvíti
„Ég segi það hátt og stolt, ég bið þess að þið brennið bæði í helvíti,“ sagði söngkonan Britney Spears í færslu um foreldra sína á Instagram í gær. Britney er dugleg að deila hugsunum sínum með fylgjendum á miðlinum og segir það hjálpa sér andlega.

Britney Spears lét allt flakka í nýju myndbandi
Söngkonan Britney Spears birti rúmlega tuttugu mínútna myndband á Youtube í gær þar sem hún tjáði sig meðal annars um sjálfræðisbaráttu sína. Myndbandinu hefur nú verið lokað og Britney hefur eytt Twitter færslu þar sem hún auglýsti það. Einnig virðist Britney hafa lokað Instagram reikning sínum aftur, þó ekki sé vitað hve lengi það verður.

Britney Spears og Sam áttu drauma brúðkaupsdag þrátt fyrir innbrotið
Poppstjarnan Britney Spears giftist ástinni sinni Sam Asghari í gær við athöfn sem fór fram á heimili hennar en líkt og greint hefur verið frá braust fyrrverandi eiginmaður hennar inn í brúðkaupið. Synir hennar Sean Preston og Jayden James voru ekki viðstaddir en gáfu út yfirlýsingu um að þeir væru ánægður fyrir hennar hönd.

Britney og Sam tilkynna fósturmissi
Poppstjarnan Britney Spears og unnusti hennar Sam Asghari tilkynntu að þau hafi því miður upplifað fósturmissi stuttu eftir að hafa sagt frá því að von væri á barni. „Við munum halda áfram að reyna að stækka fallegu fjölskylduna okkar,“ sagði parið í sameiginlegri yfirlýsingu.

Britney Spears á von á barni
Bandaríska söngkonan Britney Spears á von á barni með unnusta sínum, Sam Asghari.

Britney gefur í skyn að hún sé gengin í hnapphelduna
Bandaríska söngkonan Britney Spears og Sam Asghari virðast hafa gengið í það heilaga því í færslu á Instagram kallar hún Sam „eiginmann“ sinn.

Útgáfuréttur að bók Britney seldist á tæpa tvo milljarða íslenskra króna
Tónlistarkonan Britney Spears hyggst segja sögu sína í væntanlegri bók. Samkvæmt heimildum bandaríska tímaritsins People hefur Spears skrifað undir samning við bókaútgáfuna Simon & Schuster upp á fimmtán milljónir dollara.

Britney krefst þess að Jamie Lynn hætti að tala illa um sig
Lögmenn Britney Spears hafa farið fram á það að systir hennar, Jamie Lynn, hætti að tala illa um Britney í auglýsingaherferð fyrir bók sem hún var að gefa út. Í bréfi, sem lögmaður Britney hefur sent Jamie Lynn, segir hann sjálfsævisöguna innihalda villandi og fáránlegar staðhæfingar um Britney.

Britney Spears á í miklum deilum við systur sína á samfélagsmiðlum
Britney Spears hefur staðið opinberlega í deilum við systur sína Jamie-Lynn í gegnum miðla og ásakar hana um að nota sig til þess að selja nýju bókina sína. Britney hefur áður haldið því opinberlega fram að systir hennar hafi ekki staðið við bakið á sér í gegnum sjálfræðisdeiluna sem Britney þurfti að herja við föður sinn í heil 13 ár.

Fyrrverandi Britney á skilorði vegna ofsókna
Jason Alexander, fyrrverandi eiginmaður poppstjörnunnar Britney Spears, hefur verið dæmdur í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ofsóknir.

Yeezy-klædd Kim Kardashian leiðir nýja kærastann
Síðustu vikur hafa allra augu verið á raunveruleikastjörnunni Kim Kardashian og grínistanum Pete Davidson sem eru sögð eiga í ástarsambandi. Birta Líf Ólafsdóttir fór yfir málið í Brennslutei vikunnar.

Má kjósa, keyra og eignast barn í fyrsta sinn í fjórtán ár
Tónlistargoðsögnin Britney Spears fagnaði sigri í sjálfræðisbaráttu sinni um helgina með því að drekka sitt fyrsta kampavínsglas. Undanfarin tæp fjórtán ár hefur Britney nefnilega ekki mátt borða, drekka eða gera nokkuð án þess að fá leyfi frá föður sínum.

Britney loks orðin frjáls
Söngkonan Britney Spears stjórnar lífi sínu loks sjálf aftur að fullu. Dómari í Los Angeles felldi í kvöld niður forræði annarra yfir fjármálum hennar og öðrum ákvörðunum í lífi Spears. Úrskurðurinn hefur þegar tekið gildi.

Britney kennir mömmu sinni um sjálfræðismissinn
Ofurstjarnan Britney Spears segist kenna móður sinni um að faðir hennara hafi farið með forræði yfir henni síðustu þrettán ár. Söngkonan hefur lítið sem ekkert haft um fjármál sín eða einkamál að segja þennan rúma áratug.

„Guð blessi ykkur öll og kyssið minn hvíta, sæta rass“
Sjálfstæðisbarátta Britney Spears hefur vakið mikla athygli undanfarin misseri en þann 30. september öðlaðist poppsöngkonan loks fresli frá föður sínum sem hafði verið forráða-og fjárhaldsmaður hennar síðustu 13 ár.

Pabbi Britney ekki lengur við stýrið
Jamie Spears, faðir poppstjörnunnar Britney Spears, er ekki lengur fjárhaldsmaður hennar eftir að dómari í Los Angeles kvað upp úrskurð sinn í nótt.

Britney lokar Instagram-reikningi sínum
Bandaríska söngkonan Britney Spears hefur ákveðið að slökkva á Instagram-reikningi sínum.

Britney Spears er trúlofuð
Bandaríska söngkonan Britney Spears og kærasti hennar Sam Asghari eru trúlofuð. Spears greinir frá þessu á Instagram-síðu sinni.

Britney einu skrefi nær því að losna undan oki föður síns
Faðir söngkonunnar Britney Spears hefur skilað inn nauðsynlegum skjölum til þess að hann láti af forræði yfir dóttur sinni. Söngkonan færist því skrefinu nær að losna undan valdi föður síns, sem hefur stjórnað lífi hennar og fjármálum síðustu þrettán ár. Britney hefur barist fyrir sjálfræði sínu að undanförnu og er því um stóran sigur að ræða fyrir poppprinsessuna heimsfrægu.

Lögmaður Spears sakar föður hennar um fjárkúgun
Lögmaður Britney Spears segir að faðir hennar ætti að stíga umsvifalaust til hliðar sem forráðamaður söngkonunnar og sakar hann um fjárkúgun.

Britney Spears er þakklát fyrir kærastann
Sönkonan Britney Spears hefur síðustu ár staðið í erfiðri sjálfstæðisbaráttu. Fyrr í þessum mánuði náði hún stórum áfanga, þegar Jamie Spears faðir hennar ákvað að láta loksins af forræði yfir fjármálum hennar.

Starfsmaður sakar Britney um að hafa slegið til sín
Bandaríska söngkonan Britney Spears er nú til rannsóknar hjá lögreglu í Kaliforníu eftir að starfsmaður á heimili söngkonunnar sakaði hana um að hafa slegið til sín.

„Ég var orðin of meðvituð um líkama minn“
Tónlistarkonan Britney Spears opnaði sig um líkamsímynd sína á Instagram á dögunum. Brjóstamyndir sem hún hefur birt af sjálfri sér hafa vakið athygli aðdáenda, en hún segir myndirnar tengjast ákveðinni frelsun.

Faðir Britney lætur af forræði sínu yfir fjármálum hennar
Jamie Spears, faðir tónlistarkonunnar Britney Spears, hefur ákveðið að láta af forræði yfir fjármálum hennar. Söngkonan hefur barist fyrir því undanfarin ár að fá stjórn á eigin lífi á nýjan leik.

Kröfu Britney um að flýta réttarhöldum um forræði hennar hafnað
Beiðni tónlistarkonunnar Britney Spears um að réttarhöldum um forræði föður hennar yfir hennar málefnum hefur verið hafnað. Dómari úrskurðaði í gær að réttarhöldin muni hefjast þann 29. september, eins og áður stóð til.