Afríkukeppnin í fótbolta

Segir glottandi Carragher að fara til fjandans
Ummæli Jamies Carragher um Afríkukeppnina hafa mælst misvel fyrir. Meðal þeirra sem eru ósáttir við þau er Nígeríumaðurinn John Obi Mikel sem lék lengi með Chelsea.

Carragher kallaði Ferdinand trúð
Jamie Carragher brást ókvæða við gagnrýni Rios Ferdinand á ummæli hans um Mohamed Salah og Afríkukeppnina og kallaði gamla landsliðsfélagann sinn trúð.

Nígería ætlar að sniðganga leikinn gegn Líbíu
William Troost-Ekong, fyrirliði nígeríska fótboltalandsliðsins, segir að það ætli að sniðganga leikinn gegn Líbíu vegna illrar meðferðar. Leikmenn Nígeríu hafa verið fastir á flugvelli í Líbíu í tæpan sólarhring.

Landsliði Nígeríu haldið í gíslingu á flugvelli án matar og drykkjar
Leikmenn nígeríska landsliðsins segja að þeim hafi verið haldið í gíslingu á flugvelli í Líbíu í aðdraganda leiks liðanna í undankeppni Afríkukeppninnar í fótbolta.

Sextíu og tveir í bann fyrir að ljúga til um aldur
Knattspyrnusamband Kamerún, Fecafoot, hefur sett 62 leikmenn í bann fyrir að ljúga til um aldur.

Forsetinn gaf öllum leikmönnum milljónir og líka einbýlishús
Fílabeinsströndin tryggði sér Afríkumeistaratitilinn með sigri á Nígeríu í úrslitaleik um helgina og það er óhætt að segja að forseti landsins hafi metið mikið framlag þeirra.

Hetja Fílabeinsstrandarinnar greindist með krabbamein fyrir einu og hálfu ári
Mikið vatn hefur runnið til sjávar hjá Sébastien Haller, hetju Fílabeinsstrandarinnar í úrslitaleik Afríkumótsins, undanfarna mánuði.

Fílabeinsströndin Afríkumeistari eftir endurkomu
Fílabeinsströndin tryggði sér Afríkumeistaratitilinn á heimavelli í kvöld eftir sigur á Nígeríu. Tvö mörk í síðari hálfleiknum tryggðu heimamönnum titilinn.

Brons til Suður-Afríku
Suður-Afríka tryggði sér í kvöld bronsverðlaunin á Afríkumótinu í knattspyrnu eftir dramatískan sigur á Kongó.

Héldu fyrir munninn þegar eigin þjóðsöngur var spilaður
Leikmenn landsliðs Kongó vöktu allir sem einn athygli á hryllilegu ástandi í heimalandinu þegar þeir spiluðu einn stærsta fótboltaleikinn í sögu þjóðarinnar i gærkvöldi.

Fílabeinsströndin mætir Nígeríu í úrslitum
Það verður Fílabeinsströndin sem mætir Nígeríu í úrslitaleik Afríkumótsins í knattspyrnu. Þetta varð ljóst eftir seinni undanúrslitaleik mótsins í kvöld.

Nígería í úrslit eftir vítaspyrnukeppni
Nígería er komið í úrslitaleik Afríkukeppninnar eftir dramatískan sigur á Suður-Afríku. Þetta er í fyrsta sinn síðan 2013 sem Nígería kemst í úrslitaleikinn.

Stórstjarnan með magakveisu daginn fyrir undanúrslitaleik
Nígeríumenn hafa miklar áhyggjur af aðalstjörnu liðsins þegar liðið er aðeins einum leik frá því að komast í úrslitaleik Afríkukeppninnar í knattspyrnu.

Höfnuðu afsögn Samuel Eto'o
Samuel Eto'o ætlaði að segja af sér sem forseti kamerúnska knattspyrnusambandsins í gær en framkvæmdastjórn sambandsins tók hana ekki gilda.

Grípa til aðgerða vegna hálfnakins blaðamanns
Allt of margir fjölmiðlamenn hafa misst sig á leikjum Afríkukeppninnar í knattspyrnu í ár þar sem fagmennska og virðing fyrir kollegum sínum hefur oft fokið út um gluggann.

Fílabeinsströndin áfram | Íran sló Japan út í Asíukeppninni
Fílabeinsströndin komst í undanúrslitin í Afríkukeppninni í kvöld á meðan Íran gerði sér lítið fyrir og sló Japan út í Asíukeppninni.

Nígería og Kongó fyrst í undanúrslit
Nígería og Lýðstjórnarlýðveldið Kongó urðu í kvöld fyrstu tvær þjóðirnar til að tryggja sér sæti í undanúrslitum Afríkukeppninnar í fótbolta.

Fimm hæstu Afríkuþjóðirnar allar úr leik í Afríkukeppninni
Óvænt úrslit og slæmt gengi stóru þjóðanna hefur einkennt Afríkukeppnina í knattspyrnu sem stendur nú yfir á Fílabeinsströndinni.

Malí og Suður-Afríka tryggðu sér sæti í átta liða úrslitum
Malí og Suður-Afríka tryggðu sér í kvöld sæi í átta liða úrslitum Afríkukeppninnar í fótbolta. Suður-Afríka lagði Marokkó 2-0 og Malí vann 2-1 sigur gegn Búrkína Fasó.

Gamall liðsfélagi Ívars og Brynjars tók við á miðju móti og sló út meistarana
Emerse Faé fékk það krefjandi verkefni að taka við landsliði Fílabeinsstrandarinnar á miðju Afríkumóti. Það er óhætt að segja að hann hafi byrjað landsliðsþjálfaraferilinn á eftirminnilegan hátt.

Grænhöfðaeyjar og Fílabeinsströndin í átta liða úrslit
Grænhöfðaeyjar og Fílabeinsströndin eru komin í 8-liða úrslit Afríkukeppninnar í knattspyrnu.

Markvörður Kongó skaut Egypta út úr Afríkukeppninni
Stuðningsmenn Liverpool þurfa ekki lengur að hafa áhyggjur af því að Mohamed Salah fari aftur í Afríkukeppnina. Egyptar eru nefnilega úr leik í keppninni.

Fékk spark í bringuna en skoraði svo sigurmarkið
Gínea tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Afríkukeppninnar í fótbolta með 1-0 sigri gegn Miðbaugs-Gíneu.

Angóla og Nígería í átta liða úrslit
Angóla og Nígería eru komin í 8-liða úrslit Afríkukeppninnar í knattspyrnu. Angóla vann Namibíu 3-0 á meðan Nígería lagði Kamaerún.

Reyndu að fá þjálfara franska kvennalandsliðsins lánaðan
Fílabeinsströndin reyndi að fá þjálfara franska kvennalandsliðsins í fótbolta lánaðan fyrir útsláttarkeppnina á Afríkumótinu.

Salah rýfur þögnina: „Ég elska Egyptaland og fólkið þar“
Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, ætlar að gera allt til að spila aftur með egypska landsliðinu á Afríkumótinu í fótbolta.

Reiður Klopp kom Salah til varnar
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, kom Mohamed Salah til varnar þegar fréttamaður efaðist um heilindi Egyptans.

Fílabeinsströndin komst áfram eftir allt saman
Malí, Suður-Afríka, Namibía, Marokkó og Kongó urðu síðust til að tryggja sig áfram í 16-liða úrslit Afríkumótsins í fótbolta. Alls fóru fjórir leikir fram í dag en aðeins eitt mark var skorað. Úrslit dagsins leiddu það í ljós að Fílabeinsströndin komst einnig áfram en þeir ráku þjálfara liðsins fyrr í dag vegna slæms árangurs á mótinu.

Ráku þjálfarann þrátt fyrir að eiga enn góðan möguleika á 16-liða úrslitum
Fílabeinsströndin hefur rekið þjálfarann Jean-Louis Gasset eftir að hafa endað í 3. sæti A-riðils Afríkumótsins í kjölfar 4-0 taps gegn Miðbaugs-Gíneu á mánudag.

Alsír óvænt úr leik eftir tap gegn Máritaníu
Alsír er óvænt úr leik á Afríkumótinu í knattspyrnu eftir tap gegn Máritaníu í kvöld, 1-0. Á sama tíma tryggði Angóla sér efsta sæti D-riðilsins með 2-0 sigri gegn Búrkína Fasó.