Óveður 21. og 22. febrúar 2022

Laus hross vegna yfirfullra skurða
Skurðir á Suðurlandi eru víða að fyllast eða þegar orðnir fullir af snjó. Af þeim sökum eru girðingar víða á bólakafi. Vegna þessa eiga hross greiða leið út á vegi.

Biðla til fólks að fara ekki yfir Öxnadalsheiði
Lögreglan á Norðurlandi eystra biðlar til fólks að leggja ekki af stsað á Öxnadalsheiði vegna lélgrar færðar og umferðaróhapps.

Höfuðborgarsvæðið, Suðurland og Faxaflói á rauðri viðvörun
Veðurstofan hefur uppfært veðurviðvörun á höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi í rauða vegna ofsaveðurs sem gengur yfir landið í kvöld. Appelsínugular viðvaranir eru annars í gildi á öllu landinu. Veðurfræðingur býst við miklu vatnsskemmdaveðri en annar hvellur gengur svo yfir landið strax í fyrramálið.

Andhverfur í veðrinu gætu leikið landsmenn grátt
Óveðrið sem skellur á landsmönnum í dag og í nótt er tvíþætt. Suðaustan illviðri sem byrjar að herja á landið síðdegis nær hámarki í kvöld. Í nótt mætir hins vegar andhverfa þess á svæðið, skyndilegur suðvestan hvellur.

Appelsínugul viðvörun allsstaðar á landinu í kvöld
Verulega slæmu veðri er spáð á landinu öllu í kvöld og í nótt. Gul veðurviðvörun tekur vildi víða um land um miðjan daginn í dag en verður svo að appelsínugulri viðvörun þegar líður á kvöldið.

Útilokar ekki að rauð viðvörun verði gefin út í fyrramálið
Búist er við aftakaveðri á landinu öllu annað kvöld og aðfaranótt þriðjudags. Búið er að gefa út appelsínugula viðvörun fyrir landið allt en veðurfræðingur útilokar ekki að viðvörunargildi verði hækkað upp í rautt fyrir Suðurland.

Appelsínugul veðurviðvörun nær yfir allt landið
Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi fyrir allt landið fyrir seinnihluta morgundagsins og fram á þriðjudag. Fyrr í dag náði viðvörunin ekki til Austfjarða en Veðurstofan hefur breytt því.