Landslið karla í fótbolta

„Eftir að vera á þessu sviði vill maður ekkert annað“
Arnór Sigurðsson samdi í vikunni við Blackburn Rovers og fær því að upplifa drauminn, að spila á Englandi. Hann segist finna sig hvað best í mikilvægum leikjum fyrir framan fullan völl og sannaði það þegar hann skoraði gegn Real Madríd og Roma í Meistaradeild Evrópu.

„Draumur að rætast að fara til Englands og spila þar“
Arnór Sigurðsson skrifaði í gær undir samning við Blackburn Rovers í ensku Championship deildinni. Svava Kristín hitti hann að máli í dag og ræddi við hann um félagaskiptin.

Umspil blasir við jafnvel þó að Ísland tapaði öllum leikjum
Eftir töpin tvö síðustu daga er vissulega orðið afar langsótt að Ísland nái í EM-farseðil í haust. Þið ykkar sem hafið áhuga á að fylgja strákunum á EM í þýsku sólinni næsta sumar ættuð samt ekki að örvænta. Enn er svo sannarlega von, og það jafnvel þó að allir leikirnir í haust töpuðust.

Hundrað prósent líkur á að Portúgal fari á EM eftir sigurinn í Reykjavík
Sigurmark Cristiano Ronaldo gegn Íslandi á Laugardalsvelli í gærkvöld gerir það að verkum að talið er útilokað annað en að Portúgal komist upp úr J-riðli og beint á EM í fótbolta, sem fram fer í Þýskalandi næsta sumar.

Utan vallar: Framför og full ástæða til bjartsýni þrátt fyrir grátleg úrslit
Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu tapaði fyrir Portúgal með minnsta mun á Laugardalsvelli í undankeppni EM 2024 í gær, þriðjudag. Nokkrum dögum áður tapaði einnig liðið á súran hátt gegn Slóvakíu. Þrátt fyrir það virðist landinn talsvert bjartsýnni eftir þetta verkefni drengjanna heldur en undanfarin misseri.

Ronaldo þakkar Íslandi fyrir sig
Cristiano Ronaldo, einn besti knattspyrnumaður sögunnar, komst í heimsmetabók Guinness er hann lék með portúgalska landsliðinu gegn því íslenska í gær.

Myndasyrpa: Strákarnir okkar tóku á móti Ronaldo og félögum
Það gekk mikið á þegar Ísland tók á móti Portúgal á Laugardalsvelli í gær. Portúgal fór með sigur af hólmi eftir mark Cristiano Ronaldo í uppbótartíma.

Völlurinn og sólin hafði áhrif en þó sáttastur með þrjú stig
„Miklu erfiðari en við bjuggumst við, og við vissum að hann yrði erfiður,“ sagði Rúben Dias, miðvörður Portúgals, aðspurður hvort leikur kvöldsins hefði verið erfiðari en leikmenn Portúgals áttu von á.

Þakkar stuðninginn: „Hef verið að reyna halda fókus en verið mjög sveiflukenndur“
„Rosalega mikið svekkelsi. Svekktur að hafa ekki náð að halda út. Áttum það skilið,“ sagði Guðlaugur Victor Pálsson, miðvörður Íslands, eftir 0-1 tapið gegn Portúgal í undankeppni EM 2024 í knattspyrnu á Laugardalsvelli í kvöld.

Umfjöllun: Ísland - Portúgal 0-1 | Ronaldo afgreiddi Ísland eftir rauða spjaldið
Ísland varð að sætta sig við afar grátlegt tap gegn Portúgal á Laugardalsvelli í kvöld, 1-0, þar sem Cristiano Ronaldo skoraði sigurmarkið í lok leiks.

„Mjög svekkjandi að fá þetta leiðindamark á sig“
„Mjög svekkjandi, fannst við eiga gífurlega flottan leik. Fylgdum leikplaninu alveg í gegn. Mjög svekkjandi að fá þetta leiðindamark á sig,“ sagði miðjumaðurinn Arnór Ingvi Traustason eftir súrt 0-1 tap Íslands gegn Portúgal í undankeppni EM 2024 í kvöld.

Framtíð Íslands mjög björt og ótrúlegt að sjá hvað þjálfarinn hefur gert
Roberto Martínez, þjálfari Portúgals, var afar hrifinn af frammistöðu Íslands í kvöld og segist lengi hafa notið þess að fylgjast með íslenska liðinu spila. Það hvarflaði aldrei að honum að taka Cristiano Ronaldo af velli, áður en hann skoraði eina mark leiksins á 90. mínútu.

Hljóp inn á völlinn og knúsaði Ronaldo
Ungur drengur hljóp inn á Laugardalsvöll að loknum leik Íslands og Portúgal. Drengurinn hljóp í átt að Cristiano Ronaldo og hoppaði í fangið á honum. Í kjölfarið fékk hann svo mynd með kappanum sem skoraði sigurmarkið gegn Íslandi.

Kennir Willum og Herði ekki um: „Portúgalinn oflék þetta“
Åge Hareide segir það ekki hafa verið Herði Björgvini Magnússyni að kenna að Portúgalar skyldu sleppa við rangstöðu í markinu gegn Íslandi í kvöld, og að Willum Þór Willumsson hafi ekki verðskuldað rauða spjaldið sem hann fékk.

Albert: Finnst við vera að byggja eitthvað
Albert Guðmundsson var svekktur en samt nokkuð ánægður með frammistöðu íslenska liðsins gegn Portúgal í kvöld. Hann segir hægt að byggja á frammistöðu liðsins í þessum landsliðsglugga.

Valgeir: Gæti hafa verið rangstaða
„Ég held að svekkelsið gæti ekki verið meira, að fá þetta svona í andlitið á 90. mínútu eftir alla þessa vinnu á móti þessu liði. Þetta er gríðarlega svekkjandi,“ sagði Valgeir Lunddal Friðriksson eftir tapið gegn Portúgal í kvöld.

Einkunnir Íslands: Guðlaugur Victor aftur bestur
Þrátt fyrir stórgóða frammistöðu þurfti íslenska karlalandsliðið í fótbolta að sætta sig við tap fyrir Portúgal, 0-1, í undankeppni EM 2024 í kvöld.

Ronaldo heiðraður á Laugardalsvelli
Cristiano Ronaldo fékk afhenta viðurkenningu fyrir leik Íslands og Portúgals sem nú er í gangi. Ronaldo er að leika sinn tvöhundruðasta landsleik á ferlinum í kvöld.

Fjölmargir mættir utan við Laugardalsvöll
Fjölmargir hafa safnast saman við Laugardalsvöll til að fylgjast með landsleik Íslands og Portúgal sem hefst innan skamms.

Byrjunarliðið gegn Portúgal: Aron Einar úti en Arnór Ingvi inn
Åge Hareide, landsliðsþjálfari karla í fótbolta gerir eina breytingu á byrjunarliði Íslands fyrir leik liðsins við Portúgal í undankeppni EM 2024 sem hefst á Laugardalsvelli klukkan 18:45.

Ronaldo fremstur í flokki í gríðarsterku byrjunarliði Portúgala
Cristiano Ronaldo er í byrjunarliði Portúgal sem mætir Íslandi á Laugardalsvelli nú á eftir. Ronaldo leikur þar með sinn tvöhundruðasta landsleik á ferlinum.

Fjöldi leikja færður vegna þátttöku U-19 ára landsliðsins á EM
Íslenska U-19 ára landsliðið í knattspyrnu tekur þátt í úrslitakeppni EM 2023 í sumar. Sökum þess hefur fjöldi leikja í Bestu deild karla og Lengjudeild karla verið færður til. Sjá má leikina hér að neðan.

Krakkar biðu í ofvæni við hótel Ronaldos
Stór hópur ungra aðdáenda stjarnanna í portúgalska landsliðinu í fótbolta bíður þessa stundina við hótel liðsins, Grand Hótel, í von um að sjá leikmennina og fá mögulega eiginhandaráritun.

Seilast langt eftir miða og KSÍ biður fólk að hætta að hringja
„Það er mjög mikið verið að hringja inn og spyrja um miða,“ segir Ómar Smárason, yfirmaður samskiptadeildar Knattspyrnusambands Íslands, en margir reyna nú að verða sér úti um miða á leik Íslands gegn Portúgal á Laugardalsvelli í kvöld.

Ronaldo svarar Åge: „Ég er vanur þessu“
„Ég er vanur þessu,“ sagði portúgalska stórstjarnan Cristiano Ronaldo á blaðamannafundi portúgalska landsliðsins fyrir leik liðsins gegn Íslandi í undankeppni EM sem fram fer í dag þegar hann var spurður út í ummæli Åge Hareide um að íslenska liðið ætlaði sér að láta hann finna fyrir því í leiknum.

Einkaklefinn, leiðindin við Aron og tímamótin á Íslandi
Frægasti íþróttamaður heims, Cristiano Ronaldo, lenti á Íslandi í gær og heimsækir nú landið í að minnsta kosti þriðja sinn. Fyrir sjö árum skapaði þessi 38 ára Portúgali sér miklar óvinsældir hjá íslensku þjóðinni en óvíst er hvernig honum verður tekið á Laugardalsvelli í kvöld, í sannkölluðum tímamótaleik.

Draumaviðbót við Al Nassr væri Íslendingur segir Cristiano Ronaldo
Cristiano Ronaldo var léttur í lundu á blaðamannafundi Portúgals í dag fyrir leikinn gegn Íslandi á morgun. Þegar Sæbjörn Steinke, fréttamaður Fótbolti.net, spurði Ronaldo hvaða leikmann hann myndi vilja fá til Al Nassr glotti hann og svaraði hratt: „Þig!“

Svona var fundur Portúgals í Laugardal fyrir leikinn gegn Íslandi á morgun
Roberto Martínez, landsliðsþjálfari Portúgals, sat fyrir svörum ásamt Cristiano Ronaldo blaðamannafundi á Laugardalsvelli, degi fyrir leik Íslands og Portúgals í undankeppni EM karla í fótbolta. Fundurinn var sýndur á Vísi.

Aron biður Ronaldo ekki um treyjuna og Åge vill skemma partýið
Fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson var spurður út í það þegar Cristiano Ronaldo neitaði honum um treyjuskipti, á EM 2016, á blaðamannafundi í dag og hann ætlar ekki að endurtaka leikinn á morgun, þegar Ísland og Portúgal mætast á Laugardalsvelli í undankeppni EM í fótbolta.

Svona var fundur Íslands fyrir slaginn við stjörnur Portúgals
Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide og fyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi Íslands fyrir leikinn við stórlið Portúgals í undankeppni EM í fótbolta.