Bílastæði

„Ég skil bara ekki hvernig sumir geta bara ákveðið að fara ekki að lögum“
Borgarlögmaður var í september 2021 beðinn af borgarstjóra, Degi B. Eggertssyni um að skoða gjaldtöku í bílastæðahúsum til fólks með bílastæðapassa eða P-passa. Í niðurstöðu lögmannsins segir að Bílastæðasjóður hafi ekki heimild til þess að rukka fatlað fólk með bílastæðispassa í bílastæðahúsum borgarinnar.

Ódýrara að leggja einkaþotu en bíl
Það er ódýrara að leggja einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli en bíl í bílakjallara í miðbæ Reykjavíkur. Fimm daga stæði á Reykjavíkurflugvelli kostar 35.485 fyrir einkaþotu.

Þurfa ekki að greiða fyrir þá sem borguðu ekki fyrir bílastæðin
Brimborg ehf. þarf ekki að greiða Rekstrarfélagi Hafnartorgs rúmar fimmtíu þúsund krónur í deilu félaganna um hvort að Brimborg bæri ábyrgð á því að greiða fyrir þá viðskiptavini bílaleigu félagsins sem nýttu sér bílastæði við Hafnartorg án þess að greiða fyrir það.

Fyrsta skóflustunga að nýju bílastæða- og tæknihúsi nýs Landspítala
Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, tók í dag fyrstu skóflustungu að nýju bílastæða– og tæknihúsi nýs Landspítala, ásamt Pétri Guðmundssyni stjórnarformanni Eyktar og Runólfi Pálssyni forstjóra Landspítala. Þá tóku fulltrúar starfsmanna, þær Rannveig Rúnarsdóttir frá Landspítala og Þórana Elín Dietz frá HÍ einnig skóflustungu að húsinu.

Hittumst á Skólavörðutúni
Á dögum sem þessum iðar Klambratúnið af lífi. Fólk leggst á grasið með drykki og mat. Börn príla í leiktækjum. Hundar mætast og þefa hvor af öðrum og frisbídiskar lenda í körfum með tilheyrandi hljóðum. Þetta virkar.

Rafbílahleðsla í fjölbýlishúsum – hvar erum við stödd?
Ákvörðun stjórnvalda um að rafbílavæða Ísland og banna innflutning fólksbifreiða sem ekki nýta rafmagn eftir árið 2030 var metnaðarfull og nauðsynleg. Lög um fjöleignarhús voru í framhaldinu uppfærð þannig að húsfélög þurfa að bregðast við óskum einstakra íbúðareigenda sem vilja hlaða rafbíl við heimili sitt í fjölbýlishúsi.

„Það er skelfilegt að sjá þetta“
Útivistarunnanda blöskraði aðkoman á bílastæði í Leirdal sunnan við Fagradalsfjall þegar hann hugðist ganga Langahrygg ásamt eiginkonu sinni. Erlendum ferðamönnum á svæðinu var ekki skemmt enda áttu þeir ekki von á slíku ástandi í landi með náttúruna sem flaggskip.

Réðst á konu sem hafði lagt bíl sínum fyrir aftan hans
Karlmaður á höfuðborgarsvæðinu hefur hlotið dóm fyrir að ráðast á konu sem hafði lagt bíl sínum fyrir aftan bíl mannsins, sem fyrir vikið komst ekki leiðar sinnar. Karlinn hafði lagt í stæði konunnar en merkingar sáust ekki því snjór var yfir öllu.

Vonsvikin með að ríkið vilji ekki byggja bílakjallara
Skipulagsráð Akureyrar hafnaði ósk Framkvæmdasýslunnar-Ríkiseigna (FSRE) um að breyting yrði gerð á deiliskipulagi svæðis þar sem fyrirhugað er að reisa nýja heilsugæslu. Samkvæmt gildandi skipulagi er gert ráð fyrir bílakjallara undir nýbyggingunni en FSRE segir ekki gert ráð fyrir slíku í fjárframlögum til framkvæmdarinnar.

Fær rétt á bílastæði í Þingholtunum eftir baráttu fyrir dómstólum
Héraðsdómur Reykjavíkur viðurkenndi í dag eignarrétt eiganda íbúðar að bílastæði við íbúðarhús hans í Þingholtunum í Reykjavík. Ágreiningur í málinu sneri að því hvort umrætt bílastæði væri sameign allra eigenda íbúða í húsinu eða hvort hún fylgdi íbúð mannsins.

Rukka inn á bílastæði í óþökk sveitarfélags
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar fordæmir ferðaþjónustufyrirtæki fyrir að rukka gjald inn á bílastæði við Reykjanesvita. Hann segir fyrirtækið hafa svikið loforð um að koma fyrst upp þjónustumiðstöð á svæðinu áður en rukkað yrði inn á það.

Mokstursdrengir segja þakklæti viðskiptavina bestu launin
Her ruðningstækja kappkostar að hreinsa tólf hundruð kílómetra langt gatnakerfi borgarinnar og um 600 kílómetra af stígum. Ungir drengir í Hlíðunum tóku sig líka til og bjóða fólki að moka bílastæði og innkeyrslur.

Skilur ekki að borgin ætli að gera veður út af saklausum skiltum
Borgin ætlar að fara fram á það við verslunareigendur við Ármúla að þeir fjarlægi skilti sem banna öðrum en viðskiptavinum að leggja fyrir utan verslanir þeirra. Sjálfir eru þeir steinhissa á málinu, töldu sig eiga stæðin og segja borgina vera að gera veður út af engu.

Fólk eigi ekki að leggja á gangstéttum þótt bíllinn passi ekki í innkeyrsluna
Breiðhyltingurinn Dagur Bollason segir það óþarflega algengt að ökumenn í hverfinu leggi uppi á gangstéttum, þá sérstaklega þannig að bílar standi hálfir út úr innkeyrslum og séu þannig fyrir vegfarendum.

Hart tekist á um bílaumferð um nýja miðbæ Selfoss
Íbúar Selfoss virðast þurfa að búa sig undir harðan ágreining um álitamál sem íbúar Reykjavíkur hafa deilt um í áraraðir, á að leyfa bílaumferð í miðbænum?

Húsbílaeigenda óheimilt að leggja í sameiginlegu bílastæði fjölbýlishúss
Kærunefnd húsamála telur að konu sé óheimilt að leggja og geyma húsbíl sinn í sameiginlegu bílastæði fjölbýlishúss sem hún býr í. Húsbílnum hafði verið lagt í einu sameiginlegra bílastæða sex íbúða fjölbýlishúss þar sem hann hafi lengi staðið óhreyfður og varð til þess að aðrir íbúar leituðu til nefndarinnar.

Ný bílastæði stytta göngu á útsýnisstaði á eldgosið
Þeir sem vilja ganga að eldstöðinni í Fagradalsfjalli hafa núna möguleika á að stytta gönguna með því að nýta sér ný bílastæði sem tekin hafa verið í notkun. Þá er í bígerð að lagfæra vinsælustu gönguleiðina upp á Langahrygg til að draga úr slysahættu.

Slökkva á 156 götuhleðslum í borginni og kenna Ísorku um
Orka náttúrunnar hyggst taka strauminn af þeim 156 götuhleðslum sem fyrirtækið hefur sett upp um víða borg. Félagið sér sig knúið til þess í kjölfar kvörtunar Ísorku yfir að hleðslurnar væru opnar hverjum sem er og það gjaldfrjálst. Slökkt verður á stöðvunum 28. júní.

Kostar 1.000 krónur frá og með deginum í dag að leggja við gosstöðvarnar
Von er á tilkynningu frá Landeigendafélagi Hrauns sf. í dag, þar sem tilkynnt verður um gjaldtöku á bílastæðunum við gosstöðvarnar í Fagradalsfjalli. Nú þegar er hægt að greiða fyrir að leggja bílnum í Parka-smáforritinu.

Næsta kynslóð bílastæðakerfa í borginni
Nýjasta kynslóð bílastæðakerfa er á leið í öll sjö bílastæðahús Reykjavíkurborgar. Bílastæðakerfin eru þegar komin upp og hafa verið gerð virk í Kolaporti, Vitatorgi og Stjörnuporti og uppsetning á kerfunum stendur yfir í Traðarkoti og Vesturgötu.

20 þúsund komnir með Parka
Breytingar urðu á innlendum bílastæðamarkaði þegar appinu Parka var ýtt úr vör. Nú ári seinna eru 20 þúsund búnir að taka það í notkun.

Nýjungar bætast við Parka appið
Opnað verður fyrir fyrirtækjaáskrift í Parka snjallforritinu á næstu dögum. Í þróun eru fleiri spennandi lausnir úr smiðju fyrirtækisins Computer Vision sem sérhæfir sig í gervigreind.

EasyPark kaupir Leggja
EasyPark hefur keypt bílastæðaþjónustuna Leggja en skrifað var undir kaupsamning í hádeginu í dag.

Leggja til lengri gjaldskyldutíma og gjaldtöku á sunnudögum
Hingað til hefur gjaldskylda takmarkast við 9-18 virka daga og 10-16 laugardaga.