
Peningum stolið í Hamraborg

Ár frá þjófnaðinum í Hamraborg og enginn verið ákærður
Í dag er liðið eitt ár frá því að tveir grímuklæddir þjófar stálu tugum milljónum króna úr verðmætaflutningabíl Öryggismiðstöðvarinnar.

Sakamálin sem skóku þjóðina
Gríðarlega mörg sakamál voru til umfjöllunar hér á landi árið 2024. Sjö manndrápsmál komu upp á árinu, þar sem samanlagt átta létu lífið. Af þessum átta voru þrjú mál þar sem barn lést.

Einn með stöðu sakbornings þrátt fyrir tvo þjófa
Rannsókn á margra milljóna króna þjófnaði í Hamraborg í Kópavogi, sem var framið í byrjun mars, er lokið og hefur verið sent til ákærusviðs lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Hálft ár frá ráninu í Hamraborg sem er enn óupplýst
Í dag eru sex mánuðir síðan tveir grímuklæddir þjófar stálu tugum milljónum króna úr verðmætaflutningabíl Öryggismiðstöðvarinnar. Málið er enn óupplýst.

Engar nýjar vísbendingar borist lögreglu
Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á Hamraborgarmálinu svokallaða stendur enn yfir. Engar nýjar vísbendingar eða upplýsingar hafa borist og hefur sá sem handtekinn var nokkrum vikum eftir þjófnaðinn enn einn stöðu sakbornings í málinu.

Peningarnir úr Hamraborg enn ekki fundist
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er enn með til rannsóknar upplýsingar frá tæknideild lögreglunnar vegna þjófnaðar í Hamraborg í mars síðastliðnum. Þar var tugum milljóna stolið úr verðmætaflutningabíl Öryggismiðstöðvarinnar. Peningarnir hafa ekki fundist en vísbendingar eru um að hluti þeirra hafi farið í umferð. Einn hefur stöðu sakbornings.

Veita viðtal um Hamraborgarmálið í fyrsta sinn: Viðvörunarkerfi í bílnum hefði getað gert illt verra
Öryggismiðstöðin hefur aukið viðbúnað í verðmætaflutningabílum sínum, eftir að tugum milljóna var stolið úr bíl fyrirtækisins í Hamraborg. Þó að þjófarnir hafi aðeins verið örfáar sekúndur að brjótast inn í bílinn segir framkvæmdastjóri bifreiðina sjálfa í raun aukaatriði í málinu. Þá telur hann að viðvörunarkerfi hefði getað stefnt starfsmönnum í hættu. Verkferlum hafi verið fylgt og erfitt að sjá hvað hægt hefði verið að gera öðruvísi.

Laus úr haldi en enn grunaður um græsku
Karlmaður sem handtekinn var í tengslum við þjófnað í Hamraborg losnar úr gæsluvarðhaldi í dag. Lögregla telur ekki ástæðu til að halda honum lengur en hann er enn grunaður um aðild að málinu.

Gæsluvarðhald yfir manninum framlengt
Gæsluvarðhald yfir íslenskum karlmanni sem handtekinn var í tengslum við þjófnað á tuttugu til þrjátíu milljónum króna hefur verið framlengt.

Tjá sig ekkert um gang Hamraborgarrannsóknarinnar
Lögregla á höfuðborgarsvæðinu vill ekkert tjá sig um gang rannsóknarinnar á þjófnaðarmáli þar sem milli tuttugu til þrjátíu milljónum króna var stolið úr verðmætaflutningabíl í Hamraborg í Kópavogi í mars síðastliðinn.

Íslendingur í gæsluvarðhaldi vegna Hamraborgarmálsins
Íslenskur karlmaður um fertugt hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í tengslum við þjófnað á tuttugu til þrjátíu milljónum króna í Hamraborg fyrir rúmum fimm vikum.

Litaðir seðlar til skoðunar og málið á mjög viðkvæmu stigi
Lögregla heldur spilunum afar þétt að sér við rannsókn á þjófnaði á tuttugu til þrjátíu milljónum króna í Hamraborginni fyrir rúmum fimm vikum. Samkvæmt heimildum fréttastofu er grunur um að reynt hafi verið að koma lituðum peningum í umferð.

Þjófnaðurinn áfall fyrir reynslumikla öryggisverði
Sjö mínútur liðu frá því þjófarnir í Hamraborg brunuðu í burtu með sjö peningatöskur og þar til upp komst um þjófnaðinn. Þjófavarnakerfi í bíl Öryggismiðstöðvarinnar fór ekki í gang og engin melding barst fyrirtækinu um þjófnaðinn. Það var ekki fyrr en öryggisverðirnir komu að bílnum að upp komst um glæpinn. Þeir eru reynslumiklir og í áfalli að sögn framkvæmdastjóra.

Þjófunum yfirsást taska með milljónum króna
Þjófarnir í Hamraborgarmálinu tóku ekki eftir poka sem innihélt milljónir króna í peningaflutningabílnum sem þeir stálu úr. Öryggismiðstöðin hefur ekki viljað tjá sig um málið.

Taska stútfull af milljónum króna enn ófundin
Ein af töskunum sjö sem þjófarnir í Hamraborg höfðu á brott með sér úr sendiferðabíl Öryggismiðstöðvarinnar fyrir tæpum fjórum vikum er ófundin. Sú var stúfull af peningum.

Myndband sýnir þjófana í Hamraborg hafa lítið fyrir hlutunum
Þjófarnir í Hamraborgarmálinu voru rúmar þrjátíu sekúndur að brjótast inn í peningaflutningabíl Öryggismiðstöðvarinnar, færa peningatöskur yfir í eigin bíl og bruna í burtu með tuttugu til þrjátíu milljónir króna í fórum sínum. Þetta sýnir myndband sem komið er í dreifingu og barst fréttastofu. Margar mínútur liðu áður en upp komst um glæpinn.

Myndband af þjófunum í Hamraborg í fréttum Stöðvar 2
24 dagar eru liðnir síðan tveir grímuklæddir menn virtust hafa afskaplega lítið fyrir því að framkvæma líklega mesta þjófnað á reiðufé í sögu landsins. Myndbandsupptaka sem fréttastofa hefur undir höndum af þjófnaðinum verður sýnd í kvöldfréttum Stöðvar 2 klukkan 18:30.

Sjá peningana úr Hamraborg ekki í umferð
Enn hefur enginn verið handtekinn í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á þjófnaði á tugum milljóna króna í reiðufé í Hamraborg í Kópavogi í mars síðastliðnum.

Þjófarnir leika lausum hala
Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á því hverjir stálu á milli tuttugu til þrjátíu milljónum króna í formi spilakassapeninga í fórum starfsfólks Öryggismiðstöðvarinnar hefur ekki leitt til handtöku. Þjófarnir leika enn lausum hala.

Enn bólar ekkert á þjófunum og rannsókn í fullum gangi
Heimir Ríkharðsson, lögreglufulltrúi sem fer fyrir rannsókn á stórtækum þjófnaði í Hamraborg, segir þjófana enn ófundna og að rannsókn málsins sé í fullum gangi.

Enginn handtekinn enn og lögregla þögul sem gröfin
Enginn hefur enn verið handtekinn í tengslum við ránið í Hamraborg á mánudag síðustu viku. Lögregla segir rannsókn málsins í gangi en heldur spilunum annars þétt að sér.

Handtekinn af sérsveitarmönnum og látinn dúsa átta tíma saklaus í fangaklefa
Kona sem sá lögregluna auglýsa eftir bíl hennar hringdi til að láta vita að honum hefði ekki verið stolið og að kærasti hennar væri á bílnum. Sérsveitarmenn og lögregluþjónar fóru í kjölfarið í vinnu kærastans, handtóku hann og létu hann dúsa í fangaklefa í átta tíma. Parið segist nú á leiðinni í skaðabótamál vegna handtökunnar.

Svipar til gamalla óupplýstra rána
Þjófarnir tveir, sem taldir eru hafa stolið spilakassafé að andvirði hátt í þrjátíu milljóna króna á mánudagsmorgun, ganga enn lausir. Peningarnir eru þá enn ófundnir þó töskurnar sjö, sem þá geymdu, hafi fundist. Ránið er eitt nokkurra þaulskipulagðra rána í Íslandssögunni og eru nokkur líkindi með þeim.

Verulega brugðið yfir Hamraborgarmálinu
Lögregla leitar enn að tveimur þjófum sem stálu tugum milljóna króna úr bíl Öryggismiðstöðvarinnar í fyrradag. Þónokkrar vísbendingar hafa borist en lögregla virðist engu nær. Forstjóra Happdrættis Háskóla Íslands, sem á féð, er verulega brugðið og reiknar með að verklagi verði breytt vegna málsins.

Ekki viss hvort nokkru þurfi að breyta eftir tug milljóna króna þjófnað
Of snemmt að segja til um hvort uppfæra þurfi verkferla hjá Öryggismiðstöðvarinnar vegna þjófnaðs sem átti sér stað í Hamraborg í Kópavogi á mánudagsmorgun. Þetta segir Ómar Brynjólfsson, framkvæmdastjóri mannaðra lausna hjá Öryggismiðstöðinni.

Mikilvægt að upplýsa málið svo aðrir sjái sér ekki leik á borði
Þjófarnir sem stálu milljónum úr bíl Öryggismiðstöðvarinnar í Hamraborg í fyrradag ganga enn lausir. Féð sem þeir höfðu á brott með sér er sömuleiðis ófundið. Afbrotafræðingur segir mjög mikilvægt að málið verði upplýst, svo þeim skilaboðum verði komið á framæri að rán sem þessi borgi sig ekki.

Þjófarnir ganga enn lausir og milljónirnar ófundnar
Þjófarnir sem stálu milljónum úr bíl Öryggismiðstöðvarinnar í Hamraborg í fyrradag ganga enn lausir. Féð sem þeir höfðu á brott með sér er sömuleiðis ófundið.

Hafi líklega keyrt Yarisinn smá spotta og síðan skipt um bíl
„Þetta er nú bara bíll. Það er ekkert flókið að fylgjast með nokkrum sinnum, og sjá hvernig þetta gengur fyrir sig. Ég held að við séum búin að vera með verðmætaflutninga á Íslandi í allavega þrjátíu til fjörutíu ár,“ sagði Eyþór Víðisson, öryggis- og löggæslufræðingur.

Töskurnar fundust tómar á þremur mismunandi stöðum
Þjófar sem taldir eru hafa stolið spilakassafé að andvirði hátt í þrjátíu milljóna króna ganga enn lausir og peningarnir hafa heldur ekki fundist. Töskurnar sjö sem geymdu fjármunina eru allar fundnar. Tvær fundust við Lágafellskirkju í Mosfellsbæ, ein við Bugðufljót og fjórar úti í móa uppi við Esjumela.

Lögreglan lýsir eftir þjófunum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur lýst eftir tveimur mönnum. Þeir eru grunaðir um að hafa rænt tuttugu til þrjátíu milljónum úr peningaflutningabíl í Hamraborg í Kópavogi í gærmorgun.