Sund

Ólympíugull og heimsmet hjá Jóni Margeiri
Jón Margeir Sverrisson úr Fjölni/Ösp vann í dag til gullverðlauna í 200 metra skriðsundi í flokki S14 á Ólympíumóti fatlaðra í London.

Jón Margeir í úrslit á nýju Íslandsmeti | Kolbrún Alda stórbætti metið
Sundmaðurinn Jón Margeir Sverrisson setti glæsilegt Íslandsmet í 200 metra skriðsundi í undanrásum á Ólympíumóti fatlaðra í London í morgun. Hann kom í mark á 2:00,32 mínútum og náði næstbesta tíma undanrásanna. Úrslitasundið verður síðar í dag.

Kolbrún Alda í 14. sæti í baksundinu
Sundkonan Kolbrún Alda Stefánsdóttir hafnaði í 14. sæti af sautján keppendum í undanrásum í 100 metra baksundi í flokki S14 á Ólympíumóti fatlaðra í morgun.

Jón Margeir bætti tíma sinn | Komst ekki í úrslit
Sundkappinn Jón Margeir Sverrisson bætti sinn besta árangur um eina og hálfa sekúndu í undanrásum í 100 metra baksundi í flokki S14 á Ólympíumóti fatlaðra í morgun.

Jón Margeir: Stefni á verðlaun í 200 metra skriðsundi
Markmið sundkappans Jóns Margeirs Sverrissonar eru klár fyrir Ólympíumótið í London. Hann stefnir á verðlaun í sinni sterkustu grein, 200 metra skriðsundi.

Ólafur Magnússon: Við höfum átt ótrúlega afreksmenn í gegnum tíðina
Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri afrekssviðs Íþróttasambands fatlaðra, hefur fulla trú á því að keppendur Íslands á Ólympíumóti fatlaðra í London skili sér á verðlaunapall.

Pistillinn: Til hvers að senda íslenska sundfólkið á Ólympíuleika?
Fremsta sundfólk landsins lauk fyrir helgi þátttöku á Ólympíuleikunum í London. Engin íslenskur keppandi náði í úrslit og aðeins voru sett tvö Íslandsmet á leikunum. Vonbrigði að mati margra.

Kvenkyns Ólympíufarar gagnrýndir fyrir vaxtarlag
Holley Mangold, keppandi í ólympískum lyftingum, er þyngsti kvenkeppandinn á Ólympíuleikunum í London. Mangold er 157 kg að þyngd og hefur glímt við gagnrýni um að svo þung kona geti varla talist afrekskona í íþróttum.

Sigursælasti Ólympíufari allra tíma kveður | Ætlar að ferðast
Michael Phelps vann í gær til sinna 22. verðlauna á Ólympíuleikum þegar boðsundsveit Bandaríkjanna í 4x100 metra fjórsundi kom fyrst í mark á lokadegi sundkeppni Ólympíuleikanna.

15 ára með yfirburði í 800 metra skriðsundi
Hin 15 ára Katie Ledecky frá Bandaríkjunum kom langfyrst í mark 800 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum í kvöld.

Phelps með gull í 100 metra flugsundi | 21. verðlaunin
Bandaríkjamaðurinn Michael Phelps vann í kvöld sigur í 100 metra flugsundi á þriðju Ólympíuleikunum í röð.

Phelps kominn með tuttugu Ólympíuverðlaun
Bandaríkjamaðurinn Michael Phelps vann til gullverðlauna í 200 metra fjórsundi á Ólympíuleikunum í kvöld. Hann varð um leið fyrsti karlmaðurinn til þess að sigra í sömu greininni þrenna leika í röð.

Soni endurtók leikinn frá því í Peking
Bandaríska sundkonan Rebecca Soni varð í kvöld fyrst kvenna til þess að verja Ólympíutitil í 200 metra bringusundi þegar hún kom fyrst í mark í úrslitasundinu. Soni setti um leið heimsmet líkt og hún gerði á Ólympíuleikunum í Peking fyrir fjórum árum.

Skammvinnur fögnuður hjá móður Michael Phelps
Debbie Phelps, móðir Michael Phelps sigursælasta Ólympíufara allra tíma, fagnaði ógurlega því sem hún taldi vera glæsilegan sigur sonar síns í 200 metra flugsundi á Ólympíuleikunum í gær. Phelps hafnaði hins vegar í öðru sæti.

Daniel Gyurta setti heimsmet í 200 metra bringusundi
Ungverjinn Daniel Gyurta kom fyrstur í mark í úrslitum í 200 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í dag og setti um leið nýtt heimsmet.

Adrian stal gullverðlaununum af Magnussen
Bandaríski sundkappinn Nathan Adrian tryggði sér í kvöld gullverðlaun í 100 metra skriðsundi á Ólympíuleikunum. Adrian kom í mark 1/100 úr sekúndu á undan Ástralanum James Magnussen.

Rebecca Soni setti heimsmet í 200 metra bringusundi
Bandaríska sundkonan Rebecca Soni bætti í dag heimsmetið í 200 metra bringusundi í undanúrslitasundinu.

Hrafnhildur þriðja í sínum riðli - langt frá sínu besta
Hrafnhildur Lúthersdóttir, sundkona úr SH, var langt frá sínu besta í undanrásum í 200 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í London. Hrafnhildur hefur verið að glíma við meiðsli og það hafði augljóslega áhrif á hana í sundinu í morgun.

Ye bætti öðrum gullverðlaunum í safnið | Neitar ásökunum um lyfjanotkun
Hin sextán ára kínverska Ye Shiwen kom fyrst í mark í 200 metra fjórsundi í dag á Ólympíuleikunum í London.

Phelps sá sigursælasti allra tíma á Ólympíuleikum
Bandaríkjamaðurinn Michael Phelps nældi í sín 19 verðlaun á Ólympíuleikum þegar hann og boðsundsveit Bandaríkjanna kom fyrst í mark í 4x200 metra skriðsundi karla. Fyrr í dag hlaut Phelps silfurverðlaun í 200 metra flugsundi.

Leonard setur stórt spurningamerki við heimsmet Ye Shiwen
John Leonard, framkvæmdastjóri Samtaka sundþjálfara í heiminum (World Swimming Coaches Assocation), segir frammistöðu hinnar 16 ára Ye Shiwen í 400 metra fjórsundi ótrúverðuga.

Eygló Ósk var töluvert frá sínu besta
Eygló Ósk Gústafsdóttir úr Ægi náði sér ekki á strik í 200 metra fjórsundi kvenna á Ólympíuleikunum í London í morgun. Eygló, sem er 17 ára gömul, kom sjötta í mark í sínum riðli á tímanum 2.16,81 mín. Hún var töluvert frá Íslandsmetinu sem er í hennar eigu, 2.14,87 mín, en það met setti húná Íslandsmótinu á þessu ári.

Eygló Ósk: Tók út stressið
Eygló Ósk Gústafsdóttir synti í sinni fyrstu grein af fjórum á Ólympíuleikunum í Lundúnum í gær. Hún keppti í 100 metra baksundi og var aðeins sjö hundraðshluta frá Íslandsmeti sínu. Hún synti á 1:02,40 mínútu sem skilaði henni í 32. sæti.

Jakob Jóhann biðst afsökunar á ummælum sínum eftir sundið í gær
Sundmaðurinn Jakob Jóhann Sveinsson hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem að hann biðst afsökunar á ummælum sínum við fjölmiða eftir 100 metra bringusundið á Ólympíuleikunum í London í gær.

Phelps komst ekki á pall - sextán ára kínversk stelpa með heimsmet
Kínverjar unnu tvö gull í fyrsta úrslitahluta sundkeppni Ólympíuleikanna í London í kvöld og þar setti sextán ára kínversk sundkona glæsilegt heimsmet í 400 metra fjórsundi. 400 metra fjórsund karla var líka sögulegt því þar komst Michael Phelps ekki á pall.

Michael Phelps rétt slapp inn í úrslitin í einni sinn bestu grein
Bandaríkjamaðurinn Michael Phelps var áttundi og síðastur inn í úrslitin í 400 metra fjórsundi þegar undarrásirnar fóru fram í morgun á fyrsta degi sundkeppni Ólympíuleikanna í London. Það var ekki það eina óvænta í morgun því Ólympíumeistarinn í 400 metra skriðsundi, Park Tae-hwan, var dæmdur úr leik og Heimsmethafinn í sömu grein, Paul Biedermann, komst ekki í úrslitin.

Jakob Jóhann: Mitt lélegasta sund í áraraðir
"Þetta var bara lélegt,“ sagði svekktur og niðurlútur Jakob Jóhann Sveinsson eftir keppni í 100 m bringusundi á Ólympíuleikunum í Lundúnum í morgun.

Jakob Jóhann ekki nálægt sínu besta
Jakob Jóhann Sveinsson, sundmaður úr Ægi, varð fimmti í sínum riðli í 100 metra bringusundi á Ólympíuleikunum í London og var ekki nálægt sínu besta.

Sarah Blake: Maður vill alltaf meira
Sarah Blake Bateman var vitanlega ánægð og glöð með nýja Íslandsmetið sem hún setti í 100 m flugsundi á Ólympíuleikunum í Lundúnum í morgun.

Jakob Jóhann: Ríó 2016 er lokkandi
Vísir kynnir til sögunnar íslenska íþróttafólkið sem keppir á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Jakob Jóhann Sveinsson þarf þó varla kynningu enda að keppa á sínum fjórðu Ólympíuleikum.