HönnunarMars

Fréttamynd

Framúrskarandi íslenskir hönnuðir verðlaunaðir

Meðfylgjandi myndir voru teknar í dag þegar Hönnunarsjóður Auroru úthlutaði rúmlega 11,5 milljón króna til verkefna á sviði grafískrar hönnunar, fatahönnunar, matarhönnunar, vöruhönnunar og arkitektúrs. Þrír aðilar fengu framhaldsstyrki til frekari eflingar verkefna sinna, sem er í takt við þá stefnu Hönnunarsjóðsins að fylgja eftir völdum verkefnum þannig að sá árangur megi fremur nást sem viðkomandi hönnuður stefnir að. Það voru þeir Bóas Kristjánsson með fatamerki sitt 8045, Hafsteinn Júlíusson með vörumerki sitt HAF og Charlie Strand með bókina Icelandic Fashion Design sem kemur út í sumar. Öll eiga þessi verkefni sameiginlegt að ötullega hefur verið unnið í þeim frá fyrri styrkveitingum. Sjá nánar hér.

Lífið
Fréttamynd

Innblásið af íslenskri hefð

Guðrún Edda Einarsdóttir, vöru- og skóhönnuður, lærði skóhönnun við London College of Fashion, Cordwainers. Hún vann lokaverkefnið sitt út frá íslensku handverki eftir að hafa heimsótt íslenskt handverksfólk yfir kaffibolla.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Glæsileg tískuhelgi að baki

Um helgina var haldin fyrsta raunverulega „tískuvikan“ í Reykjavík en hún átti sér stað á hátíðinni Reykjavík Fashion Festival sem var haldin í tengslum við Hönnunarmars. Á föstudags- og laugardagskvöld sýndu tuttugu og tveir íslenskir fatahönnuðir hönnun sína í gömlu kaffiverksmiðju Ó. Johnson & Kaaber við Sætún þar sem færri komust að en vildu. Sýningarnar þóttu heppnast mjög vel í þessari glæsilegu umgjörð og nokkur fjöldi erlendra blaðamanna og tískumógula voru á svæðinu til að fylgjast með nýjustu straumunum í hinum vaxandi íslenska tískuheimi. Ljósmyndari Fréttablaðsins mætti á RFF á föstudagskvöldið og myndaði þessa smekklegu gesti. - amb

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Hönnunarmars í Hafnarhúsinu

Opnunarhátíð Hönnunarmars 2010 var haldin í Hafnarhúsinu á fimmtudag og var fjöldi góðra gesta viðstaddur. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin. Fjöldi áhugaverðra viðburða er í boði á hátíðinni og ættu allir þeir sem hafa áhuga á hönnun og arkitektúr að finna þar eitthvað við sitt hæfi. Hátíðinni lýkur á morgun.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Laugavegur opinn öllum nema bifreiðum um helgina

Hluta af Laugavegi og Skólavörðustíg ásamt Bankastræti verður breytt í göngugötur um helgina í tilefni af HönnunarMars 2010. Þetta er þáttur í Grænum skrefum í Reykjavík. Í sumar er ætlunin að nota öll þau tækifæri sem gefast til að gera miðborgina eftirsóknarverða fyrir gangandi, að fram kemur í tilkynningu frá umhverfis og samgöngusviði borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

HönnunarMars hefst í dag

Í dag hefst hátíð sem varir í fjóra daga sem helguð er framgangi íslenskrar hönnunar. Það er Hönnunarmiðstöð Íslands undir forystu Höllu Helgadóttur sem stendur fyrir hátíðinni sem nú er haldin í annað sinn en að miðstöðinni stendur fjöldi stofnana og félaga sem hafa hönnun að sameiningarkrafti.

Lífið
Fréttamynd

Grunge-gaur á HönnunarMars

Hönnunarhátíðin HönnunarMars fer fram í annað sinn dagana 18.-21. mars. Hátíðinni er ætlað að vekja athygli á íslenskum hönnuðum. Aðalgestur hátíðarinnar verður Bandaríkjamaðurinn og grafíski hönnuðurinn David Carson.

Lífið
Fréttamynd

Vorstemning á Nasa

„Það var alveg troðfullt og mikið af erlendum blaðamönnum út af HönnunarMars, svo það hentaði vel að hafa þetta sem part af því,“ segir Guðmundur Jörundsson fatahönnunarnemi um sýningu annars árs nema við Listaháskóla Íslands á Nasa síðastliðið föstudagskvöld. Tíu nemendur sýndu hönnun sína fyrir fullu húsi á Nasa og virtust gestir kvöldsins kunna vel að meta afraksturinn. [email protected]

Lífið
Fréttamynd

Hönnunarsafn upp á gátt

Í tilefni Hönnunardaga opnar Hönnunarsafnið í garðabæ allt upp á gátt um helgina. Nú gefst þér kostur á að kíkja í geymslur safnsins: í geymslum safna leynast fjársjóðir sem almenningur hefur sjaldnast aðgang að. Fjórar ferðir eru í boði um geymslur safnsins í tilefni HönnunarMars. Aðeins er hægt að fara um geymslurnar í fylgd starfsfólks og verða ferðirnar kl. 14 og 16 í dag og sunnudag.

Lífið
Fréttamynd

Húsfyllir á tískusýningu

Fatahönnuðurinn Mundi sýndi nýja línu sína í Hafnarhúsinu á fimmtudagskvöld. Öll módelin voru krakkar með Downs-heilkenni.

Lífið