

Fyrstu farþegarnir, sem koma til Norðurlands á vegum bresku ferðaskrifstofunnar Super Break, lentu á Akureyrarflugvelli í dag.
Hollywood-leikkonan Elisabeth Röhm, sem best er þekkt fyrir leik sinn í Law & Order þáttunum lífsseigu var nýverið stödd á Íslandi ásamt dóttur sinni, hinni tíu ára gömlu Easton August. Ástæða ferðarinnar var að sögn Röhm að sýna dóttur hennar að það væri ekkert í heiminum sem hún gæti ekki gert.
Þriggja daga ferðir íshellaskoðunarfyrirtækisins Goecco voru seldar án tilskilinna leyfa og nauðsynlegra trygginga. Bitnar á viðskiptavinunum. Lagabreytingar sem taka gildi um áramót gera Ferðamálastofu loks kleift að beita þrýstingi á slík fyrirtæki með dagsektum.
Jónas Freydal, eigandi íshellaskoðunarfyrirtækisins Goecco, kennir valdaklíkum og bönkum um að hafa komið rekstri Goecco á kné. Þetta kemur fram í tölvupósti Jónasar til viðskiptavina. Hann segir bankana á eftir einstaklingum sem dirfist að hafa skoðanir, líkt og Björk og Sigur Rós.
Kínverskum ferðamönnum og ungu fólki sem slasast í umferðinni hér á landi hefur fækkað verulega. Upplýsingafulltrúi Samgöngustofu segir gríðarlegum árangri hafa náðst með aukinni fræðslu og forvörnum.
Samkomulag um kaup á 20 prósenta óbeinum hlut sjóðs í meirihlutaeigu lífeyrissjóða í Bláa lóninu verðmetur fyirtækið á um 50 milljarða. Meirihluti hluthafa sagður ætla að nýta sér kauprétt og vera áfram óbeinir eigendur að Bláa lóninu.
Laugarvatnshellir er manngerður hellir við Laugarvatn og fyrir hundrað árum bjó þar fólk í nokkur ár. Ferðaþjónustufyrirtæki endurbyggði vistarverurnar og segir sögu þeirra í upplifunarferð.
Viðskiptavinum sem áttu bókaðar ferðir með íshellaskoðunarfyrirtækinu Goecco hefur verið tilkynnt að fyrirtækið sé komið í þrot. Dýrar ferðir sem virðist ganga illa að fá endurgreiddar. Eigandi Goecco hefur ekki svarað skilaboðum.
Landsréttur hefur staðfest úskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að karlmaður skuli sæta gæsluvarðhaldi til næstkomandi miðvikudags. Maðurinn er grunaður um fjölmörg innbrot í Dacia Duster bíla undanfarnar vikur þar sem talsverðum verðmætum hefur verið stolið úr bílunum.
Uppgangur í ferðaþjónustu á Íslandi hefur verið mikill undanfarin ár en fullyrt er á vef kanadíska fjölmiðilsins Global News að það megi að hluta rekja til samfélagsmiðilsins Instagram.
Aðeins eitt prósent af gistirými á vef bókunarsíðu Airbnb í Reykjavík eru á lausu yfir áramótin og aðeins örfá hótelherbergi, nú þegar fimm vikur eru til áramóta.
Hátt í hundrað einstaklingar hafa leitað til Verkalýðsfélags Suðurlands á árinu vegna þess að þeir telja sig ekki hafa ekki fengið greidd rétt laun.
Landsréttur hefur úrskurðað að Héraðsdómur Reykjavíkur skuli taka fyrir skaðabótamál fasteignafélagsins Eikar gegn Andra Má Ingólfssyni vegna sölu hins síðarnefnda á Heimshótelum árið 2016.
Samningur hefur komist á um kaup Kólfs ehf., eignarhaldsfélags í meirihlutaeigu Gríms Sæmundsen, forstjóra Bláa Lónsins hf, á hlut Horns II í Hvatningu hf. en Hvatning heldur á um 40% hlut í Bláa Lóninu hf.
Óskað hefur verið eftir lögreglurannsókn og eftir atvikum lokun á átta rekstrarleyfisskyldum gististöðum utan höfuðborgarsvæðisins, frá því heimagistingarvakt ferðamálaráðherra var sett á laggirnar í sumar með 64 milljóna fjármagni til eins árs.
Rússnesk stjórnvöld gera ekki lengur kröfu um að íslenskir flugrekendur sem vilja nota Síberíuflugleiðina haldi jafnframt uppi beinu áætlunarflugi til áfangastaðar í Rússlandi.
"Ferðamenn vilja sjá meira en Gullna hringinn,“ segir framkvæmdastjóri hollensku ferðaskrifstofunnar Voigt Travel sem sérhæfir sig í ferðum á norðurslóðir. Ætla að fljúga beint til Akureyrar frá og með næsta sumri.
Ferðamálastofa stendur fyrir kynningu á áfangastaðaáætlunum um land allt á Hótel Sögu í dag. Fundurinn stendur yfir frá klukkan 13 til 16 og verður streymt frá fundinum.
Ástæða þess að breska ferðaskrifstofan Super Break ákveða að tvöfalda fjölda ferða til Akureyrar í vetur er mikil eftirspurn viðskiptavina. Framkvæmdastjóri hjá skrifstofuni segir norðurhluta Íslands bjóða upp á einstaka upplifun fyrir ferðamenn sem standi þeim ef til vill ekki boða til lengur á Suðurlandi vegna fjölda ferðamanna þar.
Alls heimsóttu 30.200 Svisslendingar Ísland á síðasta ári og að meðaltali eyddi hver þeirra 292 þúsund krónum.
Þingmaður Viðreisnar veltir því fyrir sér hvort við séum að sinna því nægjanlega að kynna erlendum ferðamönnum og ríkisborgurum hér á landi þær reglur sem hér gilda.
"Ég og teymi mitt biðjumst innilegrar afsökunar vegna þessa atviks. Þetta er óafsakanlegt,“ segir Úkraínumaðurinn Bohdan Pavlichenko vegna utanvegaaksturs hóps sem hann var í hér á landi í september.
"Okkur finnst þetta til mikillar niðurlægingar og þykir þetta mjög leiðinlegt,“ segir Sigurður Friðriksson, eigandi City Car Rental sem leigði út bílinn sem sjá má spæna upp mosann í glæfralegum utanvegaakstri.
Erlendur ferðamaður á jepplingi sést spæna upp mosa í myndbandi sem hann, eða samferðamaður hans, hlóð upp á Instagram eftir ferð þeirra hér á landi.
Þetta kemur fram í umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar um aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum.
Þetta eru niðurstöður fyrstu rannsóknar sem gerð hefur verið á landsvísu á efnahagslegum áhrifum friðlýstra svæða á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu.
Ferðamálafræðingurinn Hermann Valsson telur að það hversu miklum fjármunum bókunarsíðan Booking.com eyði til þess að auka sýnileika sinn á leitarvélinni Google sé grafalvarlegt fyrir íslenska ferðaþjónustu.
Isavia áætlar að fjárfesta fyrir um 90 milljarða króna í uppbyggingu og stækkun Keflavíkurflugvallar fram til ársins 2022.
Alls fóru tæp 200 þúsund erlendra ferðamanna um Leifsstöð í október samkvæmt talningum Ferðamálastofu og Isavia.
Ferðamenn voru hætt komnir í fjörunni á laugardag er þeir hættu sér of nálægt briminu en viðvörunarkerfinu er ætlað að vara fólk við þegar öldugangur á svæðinu fer yfir ákveðinn hættustuðul.