Ísland í dag

Komu færandi hendi og gáfu flott jólaföt
Mjög margar konur eiga fullt af fötum sem þær nota aldrei en Hjálparstofnun kirkjunnar stendur nú fyrir söfnun á sparifötum fyrir jólin.

Lífi átta mánaða drengs bjargað á elleftu stundu: „Þú getur aldrei endurgoldið þetta“
Í kvöldfréttum Stöðvar 2 í síðustu viku sögðum við frá ótrúlegri batasögu hins 8 mánaða Elds Elís sem gekkst undir lifrarskiptaaðgerð nú í lok sumars á sjúkrahúsi í Gautaborg en í raun má segja að aðgerðin og aðdragandinn að henni hafi verið kraftaverki líkust.

Með ólæknandi krabbamein en einstakt viðhorf
Það er mikil jákvæðni og gleði sem umkringir Önnu Dröfn Sigurjónsdóttur og fjölskyldu hennar, þrátt fyrir að þau standi frammi fyrir einni stærstu áskorun sem fyrir finnst.

Nýfundinn íshellir á Langjökli: „Þetta er undraveröld“
Stefán Haukur Guðjónsson, leiðsögumaður og rekstrarstjóri Amazing Tours, og félagar hans í fyrirtækinu fundu risastóran íshelli á Langjökli og bjóða upp á ævintýraferðir þangað.

Á bólakafi, aðeins veiðistöngin upp úr og sonurinn sofandi inni í hjólhýsi
Pétur Jóhann Sigfússon fer yfir alla sína bresti í Tjarnarbíói í sýningu sinni, Óhæfur. Í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi fór Pétur Jóhann um víðan völl og fór meðal annars yfir ferilinn og umfjöllunarefni sýningarinnar sem er í raun hann sjálfur.

Það heitasta á heimilum landsmanna í augnablikinu
Hanna Ingibjörg Arnarsdóttir ritstjóri Húsa og híbýla er sú sem allt veit um stefnur og strauma í innanhússtísku íslenskra heimila og hvað er vinsælast, bæði hvað varðar innréttingar og húsgögn og liti á veggi.

„Er orðinn svo vanur þessu og það er frekar sorglegt“
Síðustu vikur og mánuði hefur borið á aukinni haturorðræðu og hótunum í garð hinsegin fólks hér á landi og hefur ótti um ákveðið bakslag kviknað innan hinsegin samfélagsins að undanförnu.

„Hræddur um að enda fimmtugur í einhverri skítaholu einn og yfirgefinn“
Sævar Baldur Lúðvíksson er Norðurlandameistari karla í skylmingum en hann hreppti á dögunum tvenn gullverðlaun á Norðurlandamótinu sem fram fór í Espoo í Finnlandi. Hann sigraði bæði í keppni einstaklinga og svo einnig í liðakeppninni en Sævar keppir með Skylmingafélagi Reykjavíkur þar sem hann hefur bæði æft og þjálfað undanfarin ár.

Vanur gagnrýni á störf sín og óttast ekki framhaldið
Eftir að hafa unnið á RÚV og gert mögulega allt sem hægt er að gera í fjölmiðlum, er hann á leið á þing fyrir Viðreisn. En hvers vegna?

„Það er ekkert hægt að vera að velta sér upp úr þessu alla daga“
Þrátt fyrir að vera að eigin sögn hlédrægur intróvert, er Svavar Pétur Eysteinsson einn vinsælasti listamaður landsins. Eftir að hafa verið virkur í indí-rokk senunni í Reykjavík allt frá fyrri hluta tíunda áratugarins skapaði hann sér árið 2008 hliðarsjálfið Prins Póló og hefur hann upp frá því verið að syngja sig reglulega inn í hjörtu þjóðarinnar með ódauðlegum poppsmellum sem öllu jafna hafa mjög hversdagslegar skírskotanir sem allir geta tengt við.

Vinsælustu litirnir í vetur
Tískan í innréttingum og vegglitum heimilanna í vetur er spennandi og margbreytileg. Einn af þeim sem alltaf er með puttann á púlsinum er hönnuðurinn og tónlistarmaðurinn Gunnar Hilmarsson.

„Búnir að missa smá af fingrunum og nefið er farið og það eru kulsár“
Athafnamaðurinn Sigmar Vilhjálmsson hefur í raun átt í nógu að snúast í rauninni allt sitt líf. Sindri Sindrason hitti Simma á heimili hans klukkan átta að morgni í síðustu viku og fóru þeir yfir víðan völl í spjalli sínu.

Framlengir sumarið með fallegu glerhúsi
Dýrindis glerhús í garðinum er klárlega málið til að framlengja sumarið en Vala Matt komast að því í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.

„Nú kemst upp um mig að ég veit ekkert hvað ég er að gera“
Loddaralíðan er ástand sem mörg okkar þekkja hugsanlega án þess að gera okkur grein fyrir því að yfir það sé til heiti, og að mörgum ef ekki flestum í kringum okkur hefur liðið eins.

„Ég held að það sé til eitthvað sem heitir nauðgun af gáleysi“
Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kynjafræðikennari í Borgarholtsskóla, hefur í yfir áratug reynt að bæta samskipti kynjanna, reynt að fá börn til að skilja betur hvar þeirra mörk liggja sem og virða annarra.

Sandra í skýjunum með aukinn hárvöxt Eyfa: „Þú hefur yngst um tuttugu ár“
Söngvarinn ástsæli Eyjólfur Kristjánsson og eiginkona hans Sandra Lárusdóttir vinna nú saman á húð og líkamsmeðferðarstofunni þeirra.

„Maður er alveg tómur, eins og það sé búið að taka loft úr blöðru“
Valgerður Helga Björnsdóttir varð fyrir grófu einelti í grunnskóla sem hafði djúpstæð áhrif á hennar líf. Hún hefur glímt við þunglyndi frá tólf ára aldri, mjög alvarlegu og vanlíðan hefur verið það mikil að hún hefur tvívegis reynt að taka eigið líf.

„Lifði erfiðara lífi heldur en nokkur maður getur ímyndað sér“
Sigmundur Ernir Rúnarsson er Akureyringur, sex barna faðir, blaðamaður, ljóðskáld, fyrrum alþingismaður og margt fleira. Í dag er hann ritstjóri Fréttablaðsins.

„Utanaðkomandi aðstæður geta gert hvert hvern sem er að morðingja“
Það eru eflaust margir sem kannast við raddir systranna Unnar og Bylgju Borgþórsdætra, en tugir þúsunda Íslendinga hlusta á þær tala um morð hvern einasta fimmtudag, í einu vinsælasta hlaðvarpi landsins; Morðcastinu.

Langar að leika meira erlendis
Kvikmyndin Dýrið eftir Valdimar Jóhannsson er komin í bíó og fer Hilmir Snær Guðnason með aðalhlutverk í kvikmyndinni. Sindri Sindrason ræddi við hann í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi.

Skipulagsfyrirtæki varð til eftir kulnun
Skipulag á heimili fólks getur verið mismikið og fer það oft í taugarnar á heimilisfólkinu hversu lélegt skipulagið er í raun og veru.

Fólk varð rosalega stressað við að heyra þetta
Arna Ýr Jónsdóttir hjúkrunarfræðinemi ákvað snemma á sínum meðgöngum að fæða heima og segir neikvæðar fæðingarupplifanir of háværar í samfélaginu.

„Þetta er ástarsaga“
Bússi er harðasta löggan í bænum en málin flækjast þó þegar hann fær nýjan samstarfsfélaga, pankynhneigða heimsmanninn Hörð Bess.

Ástin blómstrar eftir Fyrsta blikið: „Eins og að vinna í lottóinu“
Er hægt að finna ástina fyrir framan alþjóð? Það má með sanni segja það en þau Helga Guðmundsdóttir og Garðar Ólafsson kynntust í þættinum Fyrsta blikið á Stöð 2 þar sem þau fóru á stefnumót fyrir framan myndavélar.

Ný tækni fyrir þunnt hár og skalla
Hárgreiðslukonan Sigríður Margrét Einarsdóttir fékk krabbamein fyrir nokkrum árum og eftir að hafa við það misst allt hárið hefur hún ekki fengið aftur sitt þykka og fallega hár. Hún fór því að finna lausnir fyrir þá sem verða fyrir hármissi.

„Hún átti einhvern veginn ekki séns“
Brjóstakrabbamein er algengasta krabbameinið hjá íslenskum konum og á hverju ári greinast að meðaltali 235 konur með brjóstakrabbamein.

Lamaðist 16 ára fyrir neðan brjóst: „Vil ekki að fólk vorkenni mér“
Fyrir fjórtán árum lenti Arna Sigríður Albertsdóttir, þá sextán ára í alvarlegu slysi í skíðaæfingabúðum í Noregi. Hún lamaðist fyrir neðan brjóst en lét það ekki stoppa sig og stundar hún handahjólreiðar og keppti nýverið á sínum fyrstu Ólympíuleikum.

Brennur fyrir því að öll börn útskrifist með bros á vör
Skagfirðingurinn Vanda Sigurgeirsdóttir var fyrr í mánuðinum kosin formaður KSÍ fyrst kvenna. Hún er með meistaragráðu í uppeldis- og menntunarfræði, hefur verið að kenna uppi í háskóla og er sérsvið hennar einelti og tómstunda- og leiðtogafræði. Sindri Sindrason kíkti í morgunkaffi til Vöndu til þess að kynnast henni betur og fékk hann meðal annars að heyra um áhuga hennar á uppvakningum.

Segir galið að banna fólki að borða banana
Guðmundur Emil Jóhannsson er einn vinsælasti einkaþjálfari landsins þrátt fyrir að vera aðeins 23 ára. Hann hafnaði á dögunum í þriðja sæti í einni stærstu vaxtarræktakeppni heims Arnold Classic.

Auður braut útvegg og bætti við hurð út í garðinn
Gat sagað í útvegg og hurð sett í vegginn til að ganga beint út í garð er einfalt mál. Það gerði Auður Ingibjörg Ottesen, ritstjórinn á tímaritinu Sumarhúsið og garðurinn.