Ótrúlegur viðsnúningur í leik Tékka og Króata | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. júní 2016 18:00 Tékkar fagna jöfnunarmarki Necid. vísir/getty
Króatar fóru illa að ráði sínu gegn Tékkum í D-riðli á EM 2016 í Saint-Étienne í dag. Lokatölur 2-2. Króatíska liðið var miklu sterkari aðilinn í leiknum og allt benti til þess að það myndi landa þægilegum sigri. Ivan Perisic kom Króötum í 1-0 með góðu skoti á 37. mínútu og þannig var staðan í hálfleik. Ivan Rakitic virtist svo vera búinn að tryggja Króatíu sigurinn þegar hann lyfti boltanum smekklega yfir Petr Cech á 59. mínútu og staðan 2-0. En á 76. mínútu minnkaði varamaðurinn Milan Skoda muninn með frábærum skalla eftir fyrirgjöf Tomás Rosický og gaf Tékkum von.Króatískir aðdáendur köstuðu blysum inn á völlinn á síðustu mínútum leiksins. #EMÍslandhttps://t.co/QyZoUbETSU — Síminn (@siminn) June 17, 2016Skömmu fyrir lok venjulegs leiktíma köstuðu nokkrir stuðningsmenn Króatíu flugeldum inn á völlinn og Mark Clattenburg þurfti að stöðva leikinn. Fáránleg hegðun sem dregur örugglega dilk á eftir sér. Þetta hlé sem var gert á leiknum fór illa í leikmenn Króatíu og á þriðju mínútu í uppbótartíma handlék Domagoj Vida boltann innan vítateigs og Clattenburg benti á punktinn. Varamaðurinn Tomás Necid steig fram og skoraði af fádæma öryggi úr vítinu og jafnaði metin. Ótrúlegur viðsnúningur og enn aftur er skorað í uppbótartíma á EM. Eftir leikinn eru Króatar með fjögur stig í C-riðli en Tékkar með eitt.Tékkland 0-1 Króatía Perišić kemur Króatíu yfir gegn Tékklandi. Talsverðir yfirburði í fyrri hálfleik. 1-0. #EMÍsland https://t.co/nmIhPmAYhO— Síminn (@siminn) June 17, 2016 Tékkland 0-2 Króatía Rakitic skorar annað mark Króatíu; fagnar innilega með Srna. 2-0. #EMÍsland https://t.co/VAmmdpdmvd— Síminn (@siminn) June 17, 2016 Tékkland 1-2 Króatía Skoda minnkar muninn fyrir Tékka! Ekki fyrsti Skódinn sem hefur reynst fólki vel á ögurstundu. #EMÍsland https://t.co/oNG27B8BXf— Síminn (@siminn) June 17, 2016 Tékkland 2-2 Króatía ÓTRÚLEGAR lokamínútur. Blysum kastað inn á völlinn og vítaspyrna í uppbótartíma. 2-2. #EMÍsland https://t.co/C3wnzjHTgf— Síminn (@siminn) June 17, 2016
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Enski boltinn Fram einum sigri frá úrslitum Handbolti „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Íslenski boltinn KR sópaði Hamar/Þór og leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Körfubolti Selfoss jafnaði metin Handbolti „Bara einn leikur og áfram með smjörið“ Körfubolti Þjálfari Nóels Atla rekinn eftir tapið gegn Íslendingaliði Sönderjyske Fótbolti Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan Körfubolti „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” Íslenski boltinn Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Fleiri fréttir „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Þjálfari Nóels Atla rekinn eftir tapið gegn Íslendingaliði Sönderjyske „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” „Við stóðum af okkur storminn“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham FCK tímabundið á toppinn Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur Guðrún og Katla með stoðsendingar í Íslendingaslag Lewandowski frá næstu vikurnar og missir af stórleikjum Enn eitt jafnteflið hjá Lyngby Fimmtán ára bjargaði stigi fyrir Brøndby „Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Fjörutíu mínútna hlé eftir að peningi var kastað í dómara Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi Sjá meira