
Veður

Snjókoma í júlí
Miðhálendið er í vetrarbúningi nú þegar júlí er að líða undir lok. Kyngt hafði niður snjó á hálendinu í nótt og gular viðvaranir eru í gildi á Austurlandi og miðhálendinu þessa helgina.

Gul viðvörun á hálendi og Austurlandi
Gul veðurviðvörun er í gildi á miðhálendi og Austurlandi nú um helgina. Útlit er fyrir slyddu eða snjókomu til fjalla með takmörkuðu eða lélegu skyggni og hvassviðri í dag.

Gul veðurviðvörun á Austurlandi og Austfjörðum
Gul veðurviðvörun tekur gildi um klukkan tíu í kvöld á Austurlandi, Austfjörðum og Miðhálendinu vegna snjókomu og hvassviðris. Viðvörunin er í gildi þar til á hádegi á morgun.

Vegagerðin varar við snjókomu og stormi
Vegagerðin biðlar til vegfarenda að sýna aðgát um helgina vegna veðurs. Snjókomu er spáð á hálendinu og stormi Norðaustanlands.

Hlýjast á sunnanverðu landinu í dag
Í dag verður norðlæg átt, þrír til tíu metrar á sekúndu og víða smáskúrir en rofar til suðvestan- og vestanlands. Einstaklingar á Suðaustur- og Austurlandi mega eiga von á rigningu í kvöld.

Niðurstaðan liggur fyrir og Einar gefur veðrinu um versló falleinkunn
Veðurspáin fyrir verslunarmannahelgina hefur verið nokkuð á reiki síðustu daga og kom fram í gær að tvær helstu langtímaveðurspárnar hafi sýnt gjörólíka spá fyrir helgina. Þannig gerði önnur þeirra ráð fyrir því að lægð myndi ganga yfir landið með tilheyrandi áhrifum en hin ekki.

Gul viðvörun vegna hvassviðris í nótt
Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna hvassviðris sem von er á að gangi yfir landið á morgun. Viðvörunin gildir fyrir Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir og Norðurland vestra og Miðhálendið.

Sérfræðingar ósammála um veður helgarinnar
Tvær helstu langtímaveðurspár, sem veðurfræðingar styðjast almennt við, sýna gjörólíka spá um verslunarmannahelgina. Ein spáin reiknar með því að lægð gangi yfir landið á meðan önnur býst ekki við neinni lægð.

Haugarigning á Suðurlandinu og gul viðvörun í gildi
Útlit er fyrir hellidembu á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu í dag. Gular viðvaranir eru enn í gildi vegna úrkomu sunnantil á landinu og hvassviðris á Miðhálendinu og verða fram á kvöld hið minnsta.

Væta í kortunum víðast hvar um verslunarmannahelgina
Spár gera ráð fyrir því að tvær lægðir gangi yfir landið í vikunni. Skil þeirrar fyrri ganga inn á landið seint á morgun, þriðjudag, og þeirrar síðari á föstudag, fyrsta dag stærstu ferðahelgi landsins.

Vara við akstursleiðum á Suðurlandi vegna úrhellis
Frá þriðjudagskvöldi til miðvikudagskvölds er útlit fyrir mikla rigningu undir Eyjafjöllum og Mýrdalsjökli, og viðbúið að þar hækki talsvert í ám. Rigningin getur haft áhrif á akstursleiðir þar sem aka þarf yfir óbrúaðar ár, til dæmis inn í Þórsmörk, sem og á öðrum svæðum á Suðurlandi og að Fjallabaki.

Þokkaleg veðurspá fyrir Verslunarmannahelgi
Eftir því sem nær dregur fara línur að skýrast í veðri fyrir verslunarmannahelgina, en margir eru eflaust með augun daglega á veðurkortinu. Eins og spáin lítur út nú á mánudegi má gera ráð fyrir rigningu um allt land á föstudag, en þá gengur lægð yfir landið sem kemur frá suðri og færist til norðausturs.

Vætusamt næstu daga
Nokkuð vætusamt veður er í kortunum þessa vikuna.

Ágætis ferðaveður um helgina
Veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir ágætis ferðaveður vera um helgina, hægur vindur verði á landinu en skin og skúrir einkenni helgina. Leifar hitabylgjunnar sem hefur geisað í Evrópu skili sér ekki hingað, að minnsta kosti ekki næstu vikuna.

Ágætlega viðrar til ferðalaga um helgina
Hæglætisveður verður á landinu um helgina. Hægir vindar verða um helgina, skýjað með köflum en víða skúrir síðdegis í dag, einkum inn til landsins.

Veðrið best á Suðausturlandi í dag
Veðurstofan spáir norðlægri átt og rigningu á köflum á Norðurlandi en segir úrkomulítið fyrir sunnan og vestlægari átt. Í kvöld á að draga úr úrkomu og hiti á landinu verði í dag á bilinu sjö til sautján gráður, þar af hlýjast á Suðausturlandi.

Skýjað í dag og skúrir um allt land
Í dag verður skýjað að mestu og skúrir í flestum landshlutum samkvæmt Veðurstofunni. Hiti verði tíu til sautján stig og hlýjast norðaustan til. Næstu daga er áfram spáð skúrum eða rigningu.

Veðrið gæti orðið ferðafólki til vandræða
Útlit er fyrir vestlæga átt vestantil en hæga norðlæga átt austantil á landinu í dag. Síst er útlit fyrir skúri á Suðurlandi en þó víða annarsstaðar. Hámarkshiti gæti náð 18 stigum suðaustan til og milt veður er á öllu landinu. Þegar kvölda tekur nálgast lægð úr suðvestri og hvessir sunnan og vestan til í fyrramálið.

Hvasst við suðvesturströndina og hlýjast norðaustanlands
Veðurstofa Íslands spáir suðaustanátt, fimm til fimmtán metrum á sekúndu, en hvassast verður við suðvesturströndina.

Hæg vestanátt og skúrir en allhvasst austanlands
Veðurstofan spáir vestanátt, þremur til átta metrum á sekúndu, og víða stöku skúrum í dag. Hins vegar verður allhvöss norðvestanátt um landið austanvert og rigning með köflum norðaustantil fram að hádegi.

Gul viðvörun víða um land
Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir Suðausturland, miðhálendi og Norðurland eystra og vestra í dag. Á miðhálendi og Norðurlandi verður viðvörunin í gildi til klukkan 21 en á Suðausturlandi verður hún í gildi alveg fram á miðnætti. Veðurstofan hvetur vegfarendur til að aka varlega á þessum slóðum. Að auki verður rigning með köflum í flestum landshlutum.

Gul viðvörun gefin út fyrir Suðausturland
Gul viðvörun verður í gildi á Suðausturlandi frá klukkan 11 til klukkan 23 á morgun, fimmtudag.

Lítið um sumarveður næstu daga
Lítið virðist vera um sumarveður á næstu dögum en samkvæmt Veðurstofu liggur Ísland í lægðarbraut um þessar mundir. Því valdi öflug og þaulsetin lægð úti fyrir Biskajaflóa, sem beinir lægðum norður eftir til Íslands.

Leifar norðanáttarinnar lifa enn við ströndina
Útlit er fyrir breytilega átt á landinu í dag, víðast hvar á bilinu þrír til átta metrar á sekúndu. Norðanátt hefur hrellt íbúa í norðausturfjórðungi landsins undanfarið og leifar af henni lifa enn úti við ströndina. Má reikna með norðvestan strekkingi þar þar til síðdegis.

Allhvöss norðvestanátt og gular viðvaranir í gildi
Áfram verður allhvöss norðvestanátt um landið austanvert í dag, en dregur úr vindi í kvöld og nótt. Annars staðar má reikna með mun hægari breytileg átt á landinu. Gular viðvaranir eru í gildi á austanverðu landinu.

Hægur vindur og víða líkur á skúrum
Nú í morgunsárið er víða þoka norðan- og austantil á landinu, en það mun líklega rofa til allvíða þegar líður á morguninn.

Víða skýjað og væta og hiti að sautján stigum
Veðurstofan spáir norðlægri eða breytilegri átt í dag og á morgun. Víða verður skýjað og sums staðar væta, en lengst af þurrt um landið vestanvert.

Fremur svalt og rigning með köflum víða um land
Veðurstofan spáir norðaustan kalda og fremur svölu veðri í dag. Rigning með köflum um norðan- og austanvert landið, en skúrir suðvestanlands, einkum síðdegis.

Svalt loft yfir landinu og mildast syðst
Veðurstofan spáir norðlægri átt í dag, yfirleitt fimm til þrettán metrum á sekúndu. Reiknað er með lítilsháttar vætu á Norður- og Austurlandi, en annars bjart með köflum. Þó má búast má við síðdegisskúrum suðaustantil á landinu.

Norðlæg átt ríkjandi á landinu
Norðlæg átt verður ríkjandi á landinu í dag, þar sem vindur verður yfirleitt á bilinu fimm til tíu metrar á sekúndu. Víða á Vesturlandi verður hins vegar tíu til fimmtán metrar, einkum í vindstrengjum á Snæfellsnesi og Barðaströndinni.