Lögreglan á Norðurlandi eystra birti myndir rétt í þessu sem fæstir hefðu giskað á að hafi verið teknar í lok júlí. Tjald- og bílastæðið í grennd við Öskju er snæviþakið og er hiti í kringum frostmark.
„...förum því vel klædd og á vel búnum bílum ef fyrirhuguð er ferð þangað. Við verðum á ferðinni, vel búin. Skemmtið ykkur vel um versló,“ skrifar lögreglan á Facebook.
Gular viðvaranir eru í gildi á Austurlandi og miðhálendi og varað er við slæmu skyggni og hálku á fjallvegum. Spáð er norðvestan 10-18 m/s með snörpum vindhviðum á Austfjörðum fram eftir degi, einnig við norðausturströndina í kvöld og nótt. Nánar má kynna sér veðurhorfur og viðvaranir á vef Veðurstofunnar.