Veður

Hiti gæti farið í sex­tán stig norðan­til

Atli Ísleifsson skrifar
Áfram verður hlýtt fyrir norðan.
Áfram verður hlýtt fyrir norðan. Vísir/Viktor Freyr

Veðurstofan gerir ráð fyrir suðaustlægri átt í dag, víða golu eða kalda.

Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að það verði yfirleitt bjartviðri austanlands, en skýjað og dálítil súld af og til um landið sunnan- og vestanvert.

„Áfram fremur hlýtt fyrir norðan og getur hiti þar farið í 16 stig þegar best lætur, en hiti annars staðar víða á bilinu 6 til 13 stig að deginum.

Á morgun nálgast skil frá lægð suður í hafi landið. Þá gengur í sunnan strekking eða allhvassan vind og fer að rigna, fyrst vestanlands. Annað kvöld dregur úr vindi og vætu suðvestantil. Hiti breytist lítið,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag: Sunnan 8-15 m/s, hvassast vestantil, og rigning með köflum, en lengst af þurrt eystra. Hiti 8 til 17 stig, hlýjast norðaustanlands.

Á fimmtudag: Sunnan 3-8 og víða dálitlar skúrir, en sunnan 8-13 og rigning sunnan- og vestanlands seinnipartinn. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast fyrir austan.

Á föstudag: Suðvestan 8-15 og slydduél eða él, en bjartviðri á Austurlandi. Kólnar í veðri.

Á laugardag: Austlæg eða breytileg átt, 3-8 og víða dálítil él af og til. Hiti 0 til 5 stig að deginum.

Á sunnudag (pálmasunnudagur) og mánudag: Útlit fyrir norðaustlæga átt, skýjað og stöku él fyrir norðan, frost 1 til 5 stig. Bjart með köflum vestanlands, en líkur á snjókomu syðst og hiti um eða yfir frostmarki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×