
Árangur eða óvissa áfram?
Fáir hafa orðið til þess að leggja orð í belg um fundinn. Alþingismenn virðast flestir kjósa að hinkra við og heyra nánari skýringar og útlistanir frá Davíð Oddssyni en hann mun væntanlegur til landsins um helgina. Ritstjóri Morgunblaðsins, sem jafnan er í nánu sambandi við utanríkisráðherra, sagði í leiðara blaðsins á miðvikudaginn að fundurinn virtist “á flesta lund hafa verið jákvæður”. Ekki kom fram að hvaða leyti fundurinn væri það ekki. Veit ritstjórinn ef til vill eitthvað sem ekki hefur komið fram opinberlega?
Athyglisvert að Colin Powell vildi ekki segja orð við fjölmiðla eftir fundinn. Engar fregnir um viðræðurnar er að hafa í bandaríska utanríkisráðuneytinu. Engin sameiginleg tilkynning var gefin út eins og gert var þegar Davíð, þá forsætisráðherra, hitti George Bush forseta í Hvíta húsinu 6. júlí í sumar. Af þessum sökum er Davíð Oddsson sá eini sem er til frásagnar um fundinn opinberlega. Með honum voru nokkrir starfsmenn utanríkisráðuneytisins en þeir eru bundnir þagnarskyldu.
Frásögn Davíðs af fundinum með Powell vekur satt að segja fleiri spurningar en hún svarar. Ástæða er til að vekja athygli á varfærnislegu orðalagi Davíðs í viðtölum við fjölmiðla. Tökum til dæmis viðtalið í Morgunblaðinu á miðvikudaginn:
”Mér finnst að málið sé núna komið í öruggari farveg, þó að hann sé ekki orðinn endanlegur”.
”[Davíð] sagðist vona og treysta því að menn mundu finna niðurstöðu sem væri ásættanleg”.
”Ég tel að núna horfi málið þannig við, að sé orðið viðurkennt sjónarmið að það eigi að vera tilteknar varanlegar loftvarnir á Íslandi.... ”
”Þetta finnst mér vera undirliggjandi...”
Ýmsir urðu fyrir vonbrigðum með fund Davíðs Oddssonar og George Bush í sumar. Það stafaði af því að hinir sömu héldu að einhver niðurstaða um framtíð varnarliðsins fengist á fundinum eða einhver skýr fyrirheit yrðu gefin. Svo var ekki. Öllum dyrum var haldið opnum með vinsamlegu orðalagi. Bush lofaði að skoða málið með opnum huga. Málið sem hann ætlaði að skoða voru eindregin tilmæli ríkisstjórnar Íslands að hér á landi yrði áfram haldið uppi loftvörnum með lágmarksfjölda F-15 orrustuþotna. Slíkum þotum fylgir þyrlubjörgunarsveit og margs konar önnur umsvif.
Ríkisstjórnin segir að Íslendingar geti ekki einir þjóða verið án trúverðugra loftvarna. Það eru hin hernaðarlegu rök í málinu. Engum dylst hitt að varnarliðsmálið snýr einnig að efnahags- og atvinnumálum. Staðsetning bandarískra orrustuþotna í Keflavík felur sem alkunna er í sér umtalsverð atvinnuleg og efnahagsleg umsvif Bandaríkjamanna hér á landi.
Davíð Oddsson greindi frá fyrirhuguðum fundi með Powell á Alþingi 2. nóvember og sagði síðan í blaðaviðtali: "Ég bind vonir við að það meginviðhorf sem mér fannst ríkjandi á fundi mínum með Bush verði ráðandi fyrir þessar viðræður og að við getum að minnsta kosti komist verulega áleiðis við að draga úr þeirri óvissu sem hér hefur verið í Keflavík."
Hér er enn ástæða til horfa á orðalag Davíðs. "Mér fannst..." og svo væntingarnar um fundinn sem var á þriðjudaginn: að komast verulega áleiðis.
Miðað við þær upplýsingar sem Davíð hefur veitt opinberlega er tæpast hægt að tala um að hann hafi komist verulega áleiðis með erindi sitt. Enn er verið að tala almennum orðum um sömu hlutina og á fundinum með Bush í sumar, þ.e. aukna kostnaðarþátttöku Íslendinga í rekstri Keflavíkurflugvallar. Engar beinar tillögur í því efni virðast hins vegar hafa verið ræddar né vera á borðinu. Allt er í óvissu um F-15 þoturnar og fylgifiska þeirra. Málin á að ræða í framhaldsviðræðum við embættismenn í utantíkisráðuneytinu og varnarmálaráðuneytinu í janúar á næsta ári.
Þetta vekur upp þá spurningu hvort fundurinn með Powell hafi jafnvel verið tilgangslaus. Hvort óvænt ákvörðun um afsögn hans hafi spilað inn í tíðindaleysi fundarins? Um það skal ekkert fullyrt. Vel má vera að hér sem oftar holi dropinn steininn. Að minnsta kosti er tæpast hægt að segja að afturkippur hafi komið í málið eins og það snýr að íslenskum stjórnvöldum. En allt gengur þetta afar hægt fyrir sig sem getur ekki merkt annað en að bandarísk stjórnvöld séu - þrátt fyrir alla vinsemdina og "opinn huga" forsetans - treg til að fallast á meginkröfur ríkisstjórnar Íslands.
Niðurstaða þessara hugleiðinga er að sama óvissan um framtíð varnarliðsins sé enn til staðar eftir fund Davíðs og Powell og var fyrir hann. Það verður þá varla fyrr en í fyrsta lagi á vordögum á næsta ári, þegar embættismannaviðræðurnar verða komnar á rekspöl, sem mál fara að skýrast.
Guðmundur Magnússon -gm@frettabladid.is
Skoðun

Fyrst flúðu þau Reykjavíkurborg…
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Er útlegð á innleið?
Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar

Leiðsögundurinn Gaur gerir mig að betri manneskju
Þorkell J. Steindal skrifar

Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Skólarnir lokaðir - myglan vinnur
Guðmundur Þórir Sigurðsson skrifar

Flokkur fólksins eða flokkun fólksins?
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 2/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Hver ætlar að bera ábyrgð á mannslífi?
Sævar Þór Jónsson skrifar

Horfumst í augu
Kristín Thoroddsen skrifar

Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar
Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar

Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði
Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar

Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar

Er aldur bara tala?
Teitur Guðmundsson skrifar

Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar

Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun
Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar

Frans páfi kvaddur eða meðtekinn?
Bjarni Karlsson skrifar

Lægjum öldurnar
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Að hata einhvern sem þú þarft á að halda?
Katrín Pétursdóttir skrifar

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar