Skoðun

Leiðsögundurinn Gaur gerir mig að betri mann­eskju

Þorkell J. Steindal skrifar

Blindrafélagið í samstarfi við Sjónstöðina sjá um að úthluta blindum og sjónskertum einstaklingum leiðsöguhundum. Hundarnir eru öflugt hjálpartæki fyrir blint og sjónskert fólk og veita þeir notendum aukið öryggi. Notandi leiðsöguhunds öðlast aukið frelsi til þess að komast um í umhverfi sínu, jafnt innandyra sem utan.

Þetta magnaða samstarf er svo frábært því báðir aðilar nýta sína styrkleika til að teyminu gangi sem best og að allt gangi á sem farsælastan hátt. Ef hundinum eru ekki gefnar skipanir ber hann ábyrgð á því að fylgja vinstri kanti, ef hægt er að beygja til vinstri gerir hann það, hann sneiðir fram hjá hindrunum sem ekki krefjast þess að farið sé út af gangstétt og ef það er ekki hægt stoppar hundurinn og notandinn tekur svo ákvörðun um hvað skuli gera í málinu. Svo er það notandinn sem sér um restina.

Í samstarfi mínu við leiðsöguhundinn minn hann Gaur er það ég sem ákveð hvaða leið skuli fara, hvar skuli beygja, hvenær skuli fara yfir götur o.s.frv. Svo erum við með ýmiskonar kennileiti á ferðum okkar sem ég bið Gaur að finna fyrir mig til dæmis bekki, ruslatunnur, staura og tröppur.

Ég hugsa það oft að sennilega lýtur Gaur á vinnuna sem leik því í hans heimi er þetta eins og einn stór ratleikur þar sem hann fær stöðugt pepp og er hrósað í hástert í hvert skipti sem hann gerir það sem ég bið um. Í hvert skipti sem hann finnur gangstéttakant, staur eða ljósastaur fær hann viðbrögð eins og hann hafi skorað mark í mikilvægum fótboltaleik. Í hans heimi er hann að fá staðfestingu á því að hann sé besti hundurinn mörg hundruð sinnum á dag.

Ég held að það sé engum blöðum um það að fletta og þeir sem mig þekkja geta tekið undir það að þessi blessaða skepna hefur svo sannarlega auðgað líf mitt og gert mig að betri manneskju og það er yfirlýst markmið okkar Gaurs að verða bestir í heimi í að fara saman í göngutúr og höldum því ótrauðir áfram þar til Gaur fer á eftirlaun.

Að lokum vil ég minna á mikilvægt verkefni, Vinir Leiðsöguhunda, sem Blindrafélagið fór af stað með fyrir ári síðan. Verkefnið hefur það tilgang að auka umræðu og sýnileika leiðsöguhunda, auka virkni notenda þeirra og hvetja til þátttöku í samfélaginu. Á vefsvæðinu okkar má kynna sér allt um þetta frábæra verkefni Vinir leiðsöguhunda | Blindrafélagið.

Höfundur er formaður leiðsöguhundadeildar Sjónstöðvarinnar og notandi leiðsöguhundsins Gaurlaugs Guðvarðar Þorkellssonar Steindal.




Skoðun

Sjá meira


×