Skoðun

Skólarnir lokaðir - myglan vinnur

Guðmundur Þórir Sigurðsson skrifar

Á hverju ári eru flest skólahúsnæði í Reykjavík lokuð í um einn til þrjá mánuði. Gluggar eru lokaðir, loftræstikerfi ganga illa og andrúmsloftið verður kyrrt og dautt. Þrátt fyrir að skólabyggingar séu meðal stærstu fasteigna borgarinnar, standa þær að miklu leyti auðar yfir sumarið – þar liggja tækifæri til að nýta þær á gagnlegan hátt. Á sama tíma eigum við í baráttu við síendurtekið vandamál: myglu í skólum.

Það má spyrja einfaldra spurninga:

Af hverju nýtum við ekki skólahúsnæði betur yfir sumarið?

Af hverju fá ekki listamenn, hópar eða samfélagsverkefni aðgang að þessum húsum þegar þau standa annars ónotuð?

Hvers vegna snúum við ekki vandamálinu í tekjulind?

Leigum út skólana – í þágu loftgæða og lífsgæða

Hugmyndin sem ég legg til er einföld: Reykjavíkurborg bjóði kerfisbundið út skólahúsnæði til tímabundinnar leigu yfir sumarmánuðina. Það gæti verið ein álma með sal og stofum, eða bara ein sérinngangsstofa – eftir aðstæðum. Notkunin gæti verið fjölbreytt: listasýningar, tónleikar, æfingar, námskeið, sumarbúðir, ráðstefnur eða nýsköpunarverkefni.

Slíkt fyrirkomulag gæti:

  • Bætt loftflæði og minnkað líkur á myglu.
  • Skapað nýja tekjulind fyrir borgina.
  • Stutt við menningu og grasrót.
  • Gert Reykjavík að enn fjölbreyttari borg yfir sumarið.

Þetta snýst ekki bara um ónotað rými - heldur um tækifæri. Það er engin ástæða fyrir því að skólabyggingar standi lokaðar í 6–10 vikur eins og heilagir gripir. Skólarnir eru samfélagsleg auðlind og við ættum að meðhöndla þá sem slíka.

Engir öfgar – bara skynsemi

Hér á landi eru dæmi um að skólahúsnæði séu notuð fyrir námskeið eða viðburði, en það er undantekning, ekki regla. Hver hefur ekki gist í skóla í Vestmanneyjum á fótboltamóti?

Reykjavíkurborg gæti verið leiðandi í því að þróa þessa nálgun áfram með ábyrgum hætti. Með því að skilgreina reglur, verðskrá, viðmið og tryggja samráð við skólayfirvöld – væri hægt að gera þetta að sjálfbæru og gagnlegu kerfi.

Við gerum kröfur um skilvirkni í allri opinberri starfsemi. En þegar kemur að fasteignum borgarinnar virðist viðmið okkar oft gleymast. Það er kominn tími til að við horfum á þessar byggingar með nýjum augum: sem lífleg samfélagsrými – ekki lokaðar hirslur fyrir krakka og kennara.

Hvað nú?

Ég kalla eftir því að Reykjavíkurborg skoði þessa hugmynd af alvöru og ekki síst að við hættum að líta á skólahúsnæði sem rými með aðeins eitt hlutverk. Staðreyndin er sú að virk notkun og góð loftræsting kemur í veg fyrir myglu. Við getum á sama tíma stutt við menningu og nýsköpun, jafnvel aflað tekna (ekki veitir af).

Þetta er ekki flókið. Byggingarnar eru til, tækifærið er raunverulegt og lausnin er einföld: opnum dyrnar, hleypum inn fólki og lofti – gerum borgina okkar skynsamari í leiðinni.

Höfundur er ungur Framsóknarmaður. 




Skoðun

Sjá meira


×