Íslandsdeild útskriftarnema London Business School 22. ágúst 2007 00:01 Hans Kristján Árnason, Sir James Ball og Jónas H. Haralz ræða málin við stofnun London Business School Alumni Iceland Club í Þjóðmenningarhúsinu í síðustu viku. MYND/Pjetur
Stofnaður hefur verið London Business School Alumni Club Iceland, sem nefna mætti Íslandsdeild útskriftarnema LBS. Stofnfundur fór fram í Þjóðmenningarhúsinu í síðustu viku að viðstöddum hagfræðingnum Sir James Ball og eiginkonu hans Lady Lindsay Ball, auk hóps fyrrum nemenda skólans héðan. Sir James er fyrrverandi rektor London Business School. Þá var viðstaddur stofnfundinn Jónas H. Haralz, heiðursdoktor við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Frá London Business School hafa á þriðja tug Íslendinga lokið námi, þar á meðal Hans Kristján Árnason sem var fyrstur Íslendinga til að stunda þar MSc/MBA framhaldsnám á árunum 1973 til 1975. Viðstaddir stofnfundinn voru hins vegar margir þeirra fimmtán sem búsettir eru hér á landi. Sir James Ball er kunnur fyrir rit sín og rannsóknir á sviði verðbólguhagfræði og hefur verið einn aðalráðgjafi bresku stjórnarinnar í efnahagsmálum. Sir James var hér þó ekki í sinni fyrstu heimsókn því árið 1974 kom hann hingað í fyrirlestrarferð í boði Seðlabankans, Landsbankans og viðskiptadeildar Háskólans.
Héðan og þaðan Mest lesið Sigrún Ósk kveður Stöð 2 Viðskipti innlent Sjálfstætt starfandi fjölgar: Fljótlegt, einfalt og oft ódýrara Atvinnulíf Semja um sjóflutninga og hafnaruppbyggingu í Þorlákshöfn Viðskipti innlent Flugumferð aldrei verið meiri en á síðasta ári Viðskipti innlent Ný gervigreindarlausn opnar fyrir sólarhringsþjónustu 1819 Viðskipti innlent Kaupa meirihluta hlutafjár Internets á Íslandi hf. Viðskipti innlent Hættir sem ritstjóri Bændablaðsins Viðskipti innlent Sjálfstætt starfandi fjölgar: „Hvað gerist þegar forstjórinn veikist?“ Atvinnulíf Mannauðsmál: „Enn of mikil tilhneiging til að taka ekki á málum“ Atvinnulíf Lætur af störfum hjá Stöð 2 eftir tuttugu ára feril Viðskipti innlent Fleiri fréttir Semja um sjóflutninga og hafnaruppbyggingu í Þorlákshöfn Flugumferð aldrei verið meiri en á síðasta ári Sigrún Ósk kveður Stöð 2 Ný gervigreindarlausn opnar fyrir sólarhringsþjónustu 1819 Nýr framkvæmdastjóri Kuehne+Nagel á Íslandi Kaupa meirihluta hlutafjár Internets á Íslandi hf. Litlar breytingar á þorski í stofnmælingu Hafró Þurfa að greiða starfsfólki Flame enn fleiri milljónir Ráðinn sviðsstjóri viðskiptasviðs hjá Faxaflóahöfnum Íbúðum í byggingu fór fækkandi á milli ára Hættir sem ritstjóri Bændablaðsins Stefán Örn nýr eigandi hjá Rétti JBT Marel tekið til viðskipta í Kauphöllinni Hótel Selfoss verður Marriott hótel Lætur af störfum hjá Stöð 2 eftir tuttugu ára feril Engin hópuppsögn í desember Aldrei jafn margir ferðast með Icelandair Slitu kolefnisbindingarfyrirtækinu Running Tide Eigendum fjölgar hjá LOGOS Þrír og hálfur milljarður króna fyrir Perluna Blöskrar 14 prósent verðhækkun tryggingarfélags Ummæli stjórnarmanns Eflingar um sníkjudýr „til skammar“ Vigdís frá Play til Nettó Gjafabréf og alls konar flatbökudótarí vinsælar jólagjafir í ár Innkalla nagstangir sem hundar veikjast af Nýskráning fólksbíla dróst saman um rúm fjörutíu prósent Kaupsamningar nærri helmingi fleiri en í fyrra Verkalýðshreyfingin sé stærsta ógnin við starfsöryggi á veitingastöðum Slippurinn allur að sumri loknu „Langstærsta“ vikan í sögu Ölgerðarinnar Sjá meira