Viðskipti innlent

JBT Marel tekið til við­skipta í Kaup­höllinni

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Brian Deck forstjóri JBT Marel, Árni Sigurðsson aðstoðarforstjóri JBT Marel (e. President), Magnus Hardarson, forstjóri Nasdaq Iceland.
Brian Deck forstjóri JBT Marel, Árni Sigurðsson aðstoðarforstjóri JBT Marel (e. President), Magnus Hardarson, forstjóri Nasdaq Iceland. nasdaq iceland

JBT Marel Corporation , nýlega sameinað fyrirtæki JBT Corporation og Marel hf., var í formlega tekið til viðskipta á aðalmarkað Nasdaq Íslands þann 3. janúar síðastliðinn. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nasdaq Iceland. 

„JBT Marel Corporation (JBT Marel), nýlega sameinað fyrirtæki JBT Corporation og Marel hf., er leiðandi á heimsvísu á sviði tæknilausna og þjónustu fyrir matvæla- og drykkjarvöruiðnaðinn. JBT Marel sérhæfir sig í hönnun, framleiðslu og þjónustu á hátæknilausnum, kerfum og hugbúnaði fyrir fjölbreytta endamarkaði,“ 

Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Chicago en á Íslandi eru starfræktar evrópskar höfuðstöðvar og tækniþróunarsetur. 

„Skráning JBT Marel á Íslandi staðfestir vilja okkar til að vera áfram með öfluga starfsemi á Íslandi þar sem við getum áfram notið sérfræðiþekkingar innan félagsins sem og stuðnings frá öflugum hluthöfum.,“ er haft eftir Brian Deck, forstjóri JBT Marel Corporation.

Frá bjölluathöfn.nasdaq iceland

„Við viljum varðveita arfleifð Marel og starfsemina á Íslandi og tryggja samfellu fyrir hluthafa. Við erum ánægð með undirtektir við tilboðinu og viljum færa hluthöfum einlægar þakkir fyrir stuðninginn. Það eru sterk rök fyrir sameiningu félaganna en stuðningur þeirra undirstrikar jafnframt sterka sannfæringu um sameiginlega framtíðarsýn. Við hlökkum til að halda áfram vegferð okkar á íslenska hlutabréfamarkaðnum.“

„Við bjóðum JBT Marel Corporation hjartanlega velkomið á Aðalmarkað Nasdaq Iceland,“ er haft eftir Magnúsi Harðarsyni, forstjóri Nasdaq Iceland. 

„Marel hefur verið flaggskip Kauphallarinnar síðan 1992 og við getum með sanni sagt að við höfum átt í öflugu og árangursríku samstarfi á þessum tíma. Það gleður okkur að JBT Marel hafi ákveðið að halda áfram þessari arfleifð og skrá sameinað félag á íslenska hlutabréfamarkaðinn. Við hlökkum til að halda áfram að styðja við félagið og bjóða því upp á áframhaldandi sýnileika á meðal fjárfesta.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×