Tiger Woods hafði tvöfalda ástæðu til að gleðjast í fyrradag því auk þess að halda upp á 31 árs afmæli sitt tilkynnti hann á heimasíðu sinni að hann ætti von á barni með eiginkonu sinni Elin. Tiger segir árið rétt er liðið hafa verið það erfiðasta á sinni ævi.
“Við eigum von á okkar fyrsta barni í sumar,” skrifaði Tiger á opinbera heimasíðu sína í gær. “Við gætum ekki verið ánægðari og fjölskyldur okkar eru mjög spenntar. Ég hef alltaf langað að verða faðir. Mér þykir miður að faðir minn geti ekki verið á meðal okkar og tekið þátt í þessu ævintýri með okkur,” sagði Tiger jafnframt.
Faðir Tiger, Earl, lést í maí á þessu ári eftir áralanga baráttu við krabbamein. Þeir feðgar voru einstaklega nánir og tók Tiger sér níu vikna hvíld frá golfi á meðan hann syrgði föður sinn. Tiger segir á heimasíðu sinni að dauði hans hefði verið það erfiðasta sem hann hafi komist í tæri við á lífsleiðinni.
“Það er hræðilegt að missa föður sinn, lærimeistara og besta vin. Maður heldur að það sé hægt að ráða við tilfinningar sínar þegar að þessum degi kemur – en svo er ekki. Þetta hefur svo miklu meiri áhrif en maður heldur,” segir Tiger.
Tiger giftist hinni sænsku Elin Nordegren í október 2004 og hefur hann ákveðið að hætta við að keppa á Opna Mercedes mótinu á Hawaii í næstu viku til að geta eytt meiri tíma með fjölskyldu sinni á þessum merku tímamótum.