

Nú sækjum við fram!
Verkefni okkar undanfarin tvö ár hafa verið risavaxin og kallað á róttækar breytingar á flestum sviðum samfélagsins. Um þessi áramót er því hollt að virða fyrir sér þá heildarmynd sem við blasir í efnahagsmálum þjóðarinnar, þann mikla árangur sem náðst hefur og þau spennandi viðfangsefni sem bíða okkar á nýju ári.
Mikill árangur í efnahagsmálumSamdrátturinn hefur verið stöðvaður, hagvöxtur er hafinn, kaupmáttur launa vex og störfum fjölgar á ný. Verðbólgan hefur ekki verið lægri í sjö ár, stýrivextir aldrei lægri, gengið styrkist og fjárlagahallinn hefur minnkað úr rúmum 200 milljörðum í tæpa 40. Skuldir ríkissjóðs eru lægri en reiknað var með, fullnægjandi gjaldeyrisforði hefur verið tryggður og skuldatryggingaálagið er lægra en fyrir hrun.
Vegna þessa góða árangurs getum við nú sótt fram. Við þurfum að halda áfram með þær umfangsmiklu og róttæku samfélagsbreytingar sem settar hafa verið á dagskrá og jafnframt taka veigamiklar ákvarðanir um stöðu Íslands í samfélagi þjóðanna.
Sátt um auðlindirÁ næsta ári verður mótuð ný stjórnarskrá á vettvangi Stjórnlagaþings. Í því ferli verða teknar ákvarðanir um stórmál sem geta varðað veg þjóðarinnar um ókomna tíð: Sameign Íslendinga á auðlindum, framtíð forsetaembættisins, þingræðisins og þjóðkirkjunnar, aukið vægi þjóðaratkvæðagreiðslna og þá hugmynd að landið verði eitt kjördæmi. Stjórnlagaþingið þarf að komast að niðurstöðu um öll þessi mikilvægu mál á næsta ári.
Við þurfum að leiða til lykta áratuga deilur um eignarétt og nýtingu á sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar, m.a. um fiskveiðistjórnunarkerfið. Auðlindir sjávar, orkan í iðrum jarðar og þau verðmæti sem felast í vatninu verða varin og þannig um nýtingu þeirra búið að arðurinn renni með sanngjarnari hætti til þjóðarinnar allrar.
Kraftmikil sókn í atvinnumálumVið verðum að tryggja frið á vinnumarkaði. Slík stöðugleikasátt er forsenda aukins hagvaxtar, kaupmáttar og fjölgunar starfa. Eitt af stóru málunum á nýju ári verður að marka nýja atvinnustefnu sem byggir á traustum grunni og varðar veginn til framtíðar. Þegar hefur verið lagður grunnur að slíkri vinnu. Þá verður fyrir tilstuðlan ríkisstjórnarinnar á komandi ári ráðist í mjög umfangsmiklar framkvæmdir víða um land og hagfellt efnahagsumhverfi, lægri vextir og víðtæk skuldaaðlögun lífvænlegra fyrirtækja gefa fyrirheit um kröftuga viðspyrnu atvinnulífsins. Nefna má framkvæmdir við Búðarhálsvirkjun, einhverjar umfangsmestu vegaframkvæmdir Íslandssögunnar, aukin umsvif ferðaþjónustunnar, m.a. með nýjum framkvæmdasjóði, framkvæmdir við nýtt fangelsi, tónlistarhús og háskólasjúkrahúsið, uppbyggingu gagnavera og umfangsmiklar framkvæmdir við álverin í Straumsvík og á Reyðarfirði. Allir sem vettlingi geta valdið þurfa að leggja hönd á plóg til þess að skapa hér störf, ekki síst smærri fyrirtæki og hinar skapandi greinar sem sífellt öðlast aukið vægi.
Skuldaaðlögun heimila og fyrirtækjaLjúka þarf skuldaaðlögun heimila og fyrirtækja á grundvelli þeirra viðamiklu úrræða sem nú hafa verið innleidd. Hrun krónunnar, hækkun verðlags og hrun eignaverðs hafa legið sem mara á samfélaginu allt frá hruni. En nú eru allar forsendur til staðar til að ganga rösklega til verks og aðlaga skuldabyrðina að þeim raunveruleika sem við búum við. Fyrir mitt næsta ár ættu öll fyrirtæki og heimili landsins að hafa fengið niðurstöðu í sín mál í samvinnu við viðkomandi fjármálastofnanir og á þeim grundvelli ættu þau að geta unnið sig áfram sem virkir þátttakendur í uppbyggingunni sem fram undan er. Í þeim efnum skiptir miklu máli að húsnæðisöryggi fólks sé tryggt og aðstæður hvers og eins séu metnar með sanngjörnum og raunsæjum hætti.
Uppstokkun stjórnarráðsins verður fram haldið og þær fjölmörgu tillögur, sem komið hafa fram verða innleiddar, ein af annarri: Fækkun ráðuneyta, sameining stofnana, ábyrgari stjórnsýsla, aukið gegnsæi og bætt vinnubrögð.
Nú um áramótin hefst síðan vonandi nýtt uppbyggingarskeið í þjónustu við fatlað fólk þegar málefni þess færast frá ríkinu til sveitarfélaga.
Við munum enn fremur stíga frekari skef til að tryggja grundvöll þeirrar efnahagslegu endurreisnar sem nú er hafin. Samkomulag um Icesave er vonandi í augsýn og í kjölfarið getum við stigið markviss skref til að afnema gjaldeyrishöftin. Á árinu 2011 mun farsælu samstarfi okkar við AGS ljúka og Ísland getur á ný staðið eitt og óstutt í ólgusjó alþjóðlegra efnahagsmála, reynslunni ríkara og fullt sjálfstrausts í ljósi árangurs undangenginna ára. Á sama tíma munum við færast nær niðurstöðu í samningaviðræðum okkar við ESB sem að mínu mati skiptir gríðarlegu máli varðandi þá framtíðarsýn og þau lífskjör sem við Íslendingar kjósum að hafa.
Á árinu 2011 höfum við allar forsendur til að sækja fram með jákvæðni, kjark og dug að leiðarljósi. Ég óska Íslendingum öllum gæfu og góðs gengis á komandi ári.
Skoðun

Hanna Katrín og Co, koma til bjargar
Björn Ólafsson skrifar

Villtur lax eða villt græðgi – sveitin í skotlínu
Jóhann Helgi Stefánsson skrifar

Fyrst flúðu þau Reykjavíkurborg…
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Fyrst flúðu þau Reykjavíkurborg…
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Er útlegð á innleið?
Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar

Leiðsögundurinn Gaur gerir mig að betri manneskju
Þorkell J. Steindal skrifar

Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Skólarnir lokaðir - myglan vinnur
Guðmundur Þórir Sigurðsson skrifar

Flokkur fólksins eða flokkun fólksins?
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 2/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Hver ætlar að bera ábyrgð á mannslífi?
Sævar Þór Jónsson skrifar

Horfumst í augu
Kristín Thoroddsen skrifar

Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar
Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar

Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði
Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar

Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar

Er aldur bara tala?
Teitur Guðmundsson skrifar

Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar

Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun
Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar

Frans páfi kvaddur eða meðtekinn?
Bjarni Karlsson skrifar

Lægjum öldurnar
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Að hata einhvern sem þú þarft á að halda?
Katrín Pétursdóttir skrifar

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar