Korn ýtir á reset-takkann [email protected] skrifar 1. júlí 2010 11:00 Það erfitt að trúa því að hljómsveitin Korn sé búin að vera til í meira en sextán ár. fréttablaðið/getty
Von er á níundu plötunni frá hljómsveitinni Korn í júlí. Fyrsta platan kom út fyrir sextán árum og nú vilja meðlimir Korn byrja upp á nýtt og finna gamla hljóminn aftur. „Hvers vegna læturðu mig ekki í friði?“ öskrar söngvarinn Jonathan Davis örvinglaður í fyrsta smáskífulagi væntanlegrar plötu Korn. Platan er númer níu í röðinni, heitir Korn III: Remember Who You Are og lagið heitir Oildale (Leave Me Alone). Meðlimir Korn líta svo á að þeir séu að endurræsa hljómsveitina með plötunni og hverfa aftur til tónlistarinnar sem heyrðist á fyrstu plötunni frá 1994 og Life is Peachy frá 1996. Söngvarinn Jonathan Davis og félagar eru ekkert að grínast með endurræsinguna. Þeir fengu til liðs við sig upptökustjórann Ross Robinson, sem vann með þeim á fyrstu tveimur plötunum. Þá kusu þeir að taka plötuna upp á segulband og sniðganga nýjustu tækni og tól sem upptökubransinn hefur upp á að bjóða. Davis hefur látið hafa eftir sér að platan sé einföld að því leyti að hún sé ekki eins hlaðin og fyrri plötur og að andrúmsloftið skipti mestu. Ýmislegt gekk á við upptökur á plötunni. Ross Robinson er þekktur fyrir brjálað skap sitt og hann lét nýjan trommara Korn, Ray Luzier, oft heyra það. Robinson átti til að öskra, sparka og berja í trommusettið þegar hann var ekki sáttur við Luzier, en trommarinn hefur látið hafa eftir sér að hann hafi langað að kyrkja upptökustjórann. Luzier fékk ekki að nota taktmæli við upptökurnar og var það gert til að láta hann skynja hindranirnar sem Korn hefur þurft að yfirstíga. Furðuleg krafa. Korn III: Remember Who You Are átti upprunalega að vera konseptplata. Textarnir áttu að snúast um fimm merki um hnignun mannsins: trúarbrögð, eiturlyf, peninga, völd og tíma. Það gekk hins vegar ekki sem skyldi og Davis samdi því texta um hvernig líðan hans var hverju sinni. Eins og gefur að skilja eru því textarnir ekkert sérstaklega jákvæðir, enda Davis alltaf verið hálfgerður fýlupúki. Davis segir að hljómsveitin hafi ekki reynt að gera framhald af fyrstu og annarri plötu Korn. „Við viljum bara ná andrúmsloftinu aftur og að tónlistin sé ekki ofunnin,“ segir hann. „Við viljum bara lemja tónlistinni í andlitin á fólki eins og við gerðum 94, 95 og 96.“
Erlent Mest lesið Einn huggulegasti leikari landsins á lausu Lífið Uppfyllti hinstu ósk ömmu sinnar Lífið Geimferðin gagnrýnd: „Mér býður við þessu“ Lífið Sexfaldur Íslandsmeistari fékk ráð frá rándýru teymi og fór heim með eina milljón Lífið Alls ekki öll von úti fyrir Væb-bræður Lífið Unnur Eggerts afhjúpar nafn dótturinnar Lífið Greiddi niður 16 milljón króna skuldir á tæpu ári Lífið Ítalskur heilafúi dreifir sér um heimsbyggðina Lífið Skuggavaldið: Dýrð og dauði dansa saman í blóði og bjarma Lífið Páskaleg og fersk marengsbomba Lífið Fleiri fréttir Erfitt að njóta kynlífs í líkama sem við höfum lært að hata Einn huggulegasti leikari landsins á lausu Unnur Eggerts afhjúpar nafn dótturinnar Skuggavaldið: Dýrð og dauði dansa saman í blóði og bjarma Sexfaldur Íslandsmeistari fékk ráð frá rándýru teymi og fór heim með eina milljón Geimferðin gagnrýnd: „Mér býður við þessu“ Kastaði Pétri og Sveppa fram og til baka í indverskri glímu Páskaleg og fersk marengsbomba Alls ekki öll von úti fyrir Væb-bræður Uppfyllti hinstu ósk ömmu sinnar „Afhverju myndi maður ekki vilja fara alla leið?“ Tilkynna leikara fyrir nýja Harry Potter þáttaröð Logi Þorvalds, Timothée Chalamet og Kylie í stuði á Coachella Bein útsending: Katy Perry fer út í geim Skandall sigraði í Söngkeppni framhaldsskólanna Blómin í veisluskreytingunni fara svo út í garð og blómstra áfram Stóra stundin runnin upp hjá Sigrúnu Ósk Stjörnulífið: Skvísurnar stálu senunni Sendi syninum stöðugt óbein skilaboð um að hann elskaði hann ekki Fékk afsökunarbeiðni frá SNL eftir „illkvittinn og ófyndinn“ skets Ítalskur heilafúi dreifir sér um heimsbyggðina Laufey tróð upp á Coachella Sjóðheit stemning og fróunarklefinn frumsýndur Bein útsending: Páskabingó Blökastsins Greiddi niður 16 milljón króna skuldir á tæpu ári Krakkatían: Gaulverjabær, páskaegg og hljóðfæri „Þeir ætluðu að kála okkur og ræna okkur“ Var kölluð „kúkur“ og „súkkulaði“ Fréttatía vikunnar: Esjan, Icelandair og enski boltinn „Ég persónulega fílaði þetta ekkert í botn“ Sjá meira