

Höfuðborg og flugvöllur allra landsmanna
En forsendurnar, sem voru í upphafi fyrir þessari andstöðu, hafa breyst. Gildi gömlu hafnarinnar hefur minnkað með tilkomu Sundahafnar en það eru þó smámunir miðað við það að stærstu krossgötur landsins eru nú á svæðinu Smárinn-Mjódd-Ártúnshöfði en ekki í Kvosinni og þangað hafa verslun og þjónusta leitað og munu gera áfram. Um þessar krossgötur liggur frá norðri til suðurs landleiðin frá Vesturlandi og Norðurlandi í gegnum Mosfellsbæ, Reykjavík, Kópavog, Garðabæ og Hafnarfjörð til Suðurnesja og einnig landleiðin frá austri til vesturs frá Austurlandi og Suðurlandi til Reykjavíkur og Suðurnesja. Þungamiðja íbúðabyggðar á Reykjavíkursvæðinu hefur flust í austur um fjóra kílómetra og er nú innst í Fossvogi. Þungamiðja atvinnustarfseminnar hefur líka flust eina þrjá kílómetra í austur.
Reykjavíkurflugvöllur hefur því færst frá því að liggja rétt við miðjuna fyrir 60 árum og er nú um 5 kílómetra frá krossgötunum miklu og 4 kílómetra frá þungamiðju íbúðabyggðarinnar. Skoðum nánar helstu röksemdir fyrir því að leggja flugvöllinn niður og gagnrökin.
1. Flugvöllurinn tekur allt of mikið rými. Svar: Flugvallarsvæðið er 7% af flatarmáli Reykjavíkur vestan Elliðaáa, álíka stórt og Reykjavíkurhafnirnar sem engum dettur í hug að leggja niður. Miklabrautin ein tekur helming rýmis flugvallarins og enginn berst fyrir því að leggja hana niður.
2. Ef flugvöllurinn verður lagður niður verður hægt að endurheimta þá stöðu að miðborg Reykjavíkur verði í og við Vatnsmýrina. Svar: Stærstu krossgötur landsins verða samt áfram á sama stað, 5 kílómetrum austar, og þangað leita áfram verslun og þjónusta. Hvaðan á að flytja allt það fólk, sem á að eiga heima við Vatnsmýrina? Úr úthverfunum og nágrannabæjunum? Eða tæma landsbyggðina? Hvernig ætla menn að leysa samgönguvandamálin sem skapast?
3. Með því að selja lóðir á flugvallarsvæðinu græðast tugir milljarða króna. Svar: Detta þessir milljarðar af himnum ofan eins og Manna í Biblíunni? Einhverjir hljóta að borga þessa peninga og taka þá úr öðru.
4. Það er tilvist Reykjavíkurflugvallar að kenna að byggt var austan Elliðaáa. Svar: Á höfuðborgarsvæðinu austan Elliðaáa og sunnan Fossvogs búa nú um 130 þúsund manns. Hefðu þeir allir komist fyrir í Vatnsmýrinni?
5. Höfuðborgarsvæðið er af völdum flugvallarins miklu strjálbýlla en sambærileg borgarsamfélög erlendis. Svar: Þarna er notaður samanburður við gamlar milljónaborgir í Evrópu. Norræn skýrsla um 16 borgarsamfélög á Norðurlöndum sýnir að þær 9 borgir í þessum samanburði, sem eru álíka stórar og Reykjavík, eru álíka dreifbyggðar og Reykjavík. Skipulag höfuðborgarsvæðisins er hins vegar verst vegna flokkspólitískrar skiptingar þess í upphafi.
6. Það er einstætt að flogið sé yfir þéttbýli í aðflugi að flugvelli eins og gert er í Reykjavík. Svar: Þetta gekk í einhverja fyrir 60 árum en nú vita Íslendingar vegna flugferða sinna erlendis að þetta er ekki rétt. Dæmi: Það er flugvöllur við miðborg London og í Los Angeles eru fjórir flugvellir og aðeins einn flugbrautarendi liggur ekki yfir þéttbýli.
7. Best er að flytja innanlandsflugið til Keflavíkur: Svar: Það myndi þýða að ferðaleið manns sem fer fram og til baka á milli Akureyrar og Reykjavíkur lengdist samtals um 162 kílómetra. Til er alþjóðlegt hugtak, „virkt borgarsamfélag“ eða „FUA, functional urban area“. Ein forsenda þess er sú að það taki minna en 45 mínútur að fara frá jaðri þess inn að miðju. Í raun er Akureyri á höfuðborgarsvæðinu á meðan flugvöllurinn er í Reykjavík. Að leggja flugvöllinn niður samsvarar því að höfuðborgin hendi í burtu 17 þúsund manna úthverfi.
8. Flugvöllurinn er nú miklu nær miðborg en nokkurs staðar annars staðar. Svar: Meðalvegalengd flugvalla heimsins frá borgarmiðju er 7 kílómetrar. Staðsetning innanlandsflugs í Keflavík yrði með eindæmum slæm, með lengstu mögulegu flugleiðum til allra áfangastaða.
9. Flytja má völlinn upp á Hólmsheiði. Svar: Hólmsheiði er álíka langt frá krossgötunum stóru og núverandi flugvöllur og á heiðinni er verra flugveður. Bygging flugvallar á heiðinni þýðir þrjá gerninga: Flugvöllur rifinn, íbúðabyggð reist og flugvöllur byggður. Ef menn vilja endilega reisa nýja byggð í fimm kílómetra fjarlægð frá krossgötunum er hægt að fækka gerningunum niður í einn og reisa íbúðabyggð á Hólmsheiði í stað Vatnsmýrar og málið dautt.
10. Íbúarnir í nýrri Vatnsmýrarbyggð myndu efla mjög verslun í gamla miðbænum og á Laugavegi. Svar: Það er jafnstutt að fara þaðan í Kringluna og jafnbetra veður þar innandyra.
11. Íbúðabyggð í Vatnsmýri myndi minnka umferð í Reykjavík um 40% og fækka umferðarslysum um 40%. Svar: Þetta er fráleit niðurstaða, jafnvel þótt forsendan væri sú að allir íbúar hverfisins stunduðu atvinnu innan þess, sem er ómögulegt í þjóðfélagi þar sem atvinnufrelsi ríkir.
12. Reykjavíkurflugvöllur er málefni Reykvíkinga einna. Svar: Reykjavík er höfuðborg allra landsmanna og flugvöllurinn sömuleiðis. Hægt væri að bæta hann stórlega með því að lengja vestur-austurbrautina, leggja núverandi norður-suðurbraut niður svo að rými losni fyrir vestan Háskólann í Reykjavík og gera í staðinn stutta norður-suðurbraut þar sem Skeljungsstöðin gamla var. Þá myndi líka losna rými í Vatnsmýri, flug yfir Kársnes leggjast af og flug yfir Kvosina verða hverfandi. Flugvöllurinn er á réttum stað og fær vonandi að vera það áfram.
Skoðun

Kveðjur úr Grafarvogi til þeirra sem kasta steinum úr glerhúsi
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Leiðsöguhundurinn Gaur gerir mig að betri manneskju
Þorkell J. Steindal skrifar

Fimmtíu ár frá lokum Víetnamstríðsins
Finnur Th. Eiríksson skrifar

Að undirbúa börnin okkar fyrir heim sem er að hverfa
Halldóra Mogensen skrifar

Hollar skólamáltíðir fyrir loftslagið og líðan barna
Laufey Steingrímsdóttir,Anna Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Bókin er minn óvinur, en mig langar samt í verknám!
Davíð Bergmann skrifar

Ilmurinn af jarðolíu er svo lokkandi
Sævar Helgi Lárusson skrifar

Hvað er að frétta af humrinum?
Jónas Páll Jónasson skrifar

Þeir greiða sem njóta, eða hvað?
Jóhannes Þór Skúlason,Pálmi Viðar Snorrason skrifar

Samskiptasáttmáli; skúffuskjal eða stórgott verkfæri
Helena Katrín Hjaltadóttir,Íris Helga G. Baldursdóttir skrifar

Sigrar og raunir íslenska hestsins
Elín Íris Fanndal skrifar

Reykjavíkurborg á flestar félagslegar íbúðir en Garðabær rekur lestina
Heimir Már Pétursson skrifar

Góðir grannar Landsvirkjunar og við hin
Kjartan Ágústsson skrifar

Hittumst á rauðum sokkum 1. maí
Finnbjörn A. Hermannsson,Kolbrún Halldórsdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Mikilvægi orkuspáa
Ingvar Júlíus Baldursson skrifar

Þegar innflutningurinn ræður ríkjum
Anton Guðmundsson skrifar

Vladímír Pútín: Hvað er að marka hann?
Steinar Björgvinsson skrifar

Örlög Úkraínu varða frið og öryggi á Íslandi
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Vegamál á tímum skattahækkana og vantrausts
Benedikt S. Benediktsson skrifar

Konur og menntun
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar

Aðför ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að flóttafólki
Hópur stjórnarkvenna í Solaris skrifar

Hanna Katrín og Co, koma til bjargar
Björn Ólafsson skrifar

Villtur lax eða villt græðgi – sveitin í skotlínu
Jóhann Helgi Stefánsson skrifar

Fyrst flúðu þau Reykjavíkurborg…
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Fyrst flúðu þau Reykjavíkurborg…
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Er útlegð á innleið?
Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar

Leiðsögundurinn Gaur gerir mig að betri manneskju
Þorkell J. Steindal skrifar

Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Skólarnir lokaðir - myglan vinnur
Guðmundur Þórir Sigurðsson skrifar

Flokkur fólksins eða flokkun fólksins?
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar