
Nýr Landspítali á efri lóð eða RISASPITAL á neðri?
Grein mín fjallar um það, að Landspítali eigi ANNAN BYGGINGARVALKOST heldur en SPITAL planið, þ.e. á efri hluta Hringbrautarlóðarinnar. Ég og Magnús Skúlason arkitekt höfum ítrekað bent á þessa lausn (sem líkist reyndar gamalli hugmynd White arkitekta). Grein mín var ætluð borgarbúum og kjörnum fulltrúum þeirra til kynningar á hugmynd okkar. Greinin fjallar í raun lítið um fyrirætlanir SPITAL þótt skilja megi að mér finnist hugmynd okkar Magnúsar vera miklu betri. Hins vegar nefni ég í greininni, að ekki sé að búast við því að SPITAL hópurinn sé óhlutdrægur dómari um tillögu okkar Magnúsar. Hvernig mætti það vera?
SPITAL tillagan er risavaxin og dýr. Fjórföldun verður á byggingarmagni á lóðinni og tillagan nýtir illa gömlu húsin á Landspítalalóð nema til fárra ára, en áframhaldandi nýting gömlu húsanna (60 þús. fermetra) var forsenda staðarvalsins. SPITAL byggingarnar tengjast einnig illa öðrum byggingum, m.a. vegna verulegs hæðarmunar því byggt er í brekku. Hún veldur auk þess, að áliti okkar Magnúsar og fleiri, verulegum ásýndarskaða á borginni vegna byggingarmagnsins og staðsetningar á lóðinni. Tillaga okkar Magnúsar með tvöföldun núverandi byggingarmagns gæti verið hóflegri lausn. Við teljum hana vera hentugri og með betri innanhústengingar á öllum hæðum – og í miklu betri sátt við borgina. Á Landspítala hefur tillagan ekki verið rædd okkur vitanlega – og hafi hún verið rædd þá hefur ekki verið leitað skýringa höfunda hennar. Samt er hugmyndin algerlega í samræmi við forsögn skipulagsráðs Reykjavíkurborgar í auglýsingu enda hefur hún verið kynnt þar að ósk ráðsins sjálfs og bókuð þar sem formleg athugasemd við SPITAL hugmyndina. Okkur Magnúsi hafa aldrei verið kynnt nein málefnaleg rök gegn tillögunni þrátt fyrir eftirgrennslan.
Grein mín gefur Helga Má ekkert tilefni til bræði eða ásakana um „dylgjur" í sinn garð. Hann fellur í þann forarpytt, sem Kínverjar hið forna vöruðu við, sem er að „skrifa bréf reiður". Og hverju reiddist þá Helgi Már? Ég finn aðeins eina setningu í grein minni, sem gæti hafa farið fyrir brjóstið á Helga Má en hún er svona: „Forsvarsmaður SPITAL-hópsins segir hugmyndina (innskot: þ.e hugmynd okkar Magnúsar) „galna", sem er ekki málefnalegt orðbragð og gæti bent til rökþrots eða hagsmunaáreksturs". Þar var vitnað beint í hann sjálfan. Það er augljóst, að þegar einhver fullyrðir án röksemda, að hugmynd sé galin, þá búi eitthvað annað að baki. Ég benti aðeins á að andstaða SPITAL hópsins gegn hugmynd okkar Magnúsar „gæti" stafað af því að þeir hjá SPITAL hafi eðlilega hag af því að vinna að sinni tillögu. Það er líka augljóst, að SPITAL arkitektar eru ekki „óvilhallir aðilar" í umsögn sinni um tillögu, sem gengur gegn þeirra eigin. Því getur t.d. skipulagsráð ekki leitað málefnalegra ráða hjá SPITAL um hugmynd okkar Magnúsar.
Í grein Helga Más örlar þó á tilraun til rökfærslu, sem ég hef aldrei heyrt fyrr. Í fyrsta lagi að hugmyndin sé slæm af því gömlu byggingarnar stýri nýbyggingunum. Það er ekki endilega slæmt og heitir „kúltúr" og minjavarsla, sem er eftirsóknarverð kunnátta góðra arkitekta og smiða. Hvernig hús myndu menn byggja í námunda við Eiffel turninn? Í öðru lagi fullyrðir Helgi Már, að ekki sé hægt að byggja á efri lóðinni ef spítalinn eigi að vera starfandi á meðan, sem er beinlínis rangt þótt Helgi Már, sem aldrei hefur starfað á spítala, sjái ekki lausnirnar. Við sem erum sérfræðingar í að starfa við spítala til áratuga og að leita lausna við sjúkdómum erum e.t.v. ekki síðri ráðgjafar heldur en arkitektar verslanamiðstöðva við byggingu sjúkrahúsa.
Að lokum vil ég þó þakka Helga Má fyrir að vekja athygli á hugmynd okkar Magnúsar. Hún er nefnilega ekki svo galin. Skora ég nú á fólk að nota tækifærið til þess að kynna sér hugmyndina og uppdráttinn (sjá http://vefblod.visir.is/index.php?s=5997&p=130700). Vilji borgarfulltrúar eða skipulagsyfirvöld frekari skýringar þá væri sjálfsagt að verða við þeirri ósk. Í leiðinni vek ég þó athygli Helga á því, að hugmynd SPITAL hópsins virðist vera haldin þeim álögum að skapa vaxandi efasemdir um sjálfa sig í hvert sinn, sem hún er kynnt. Þær efasemdir gætu leitt til þess, að stjórnmálamenn vilji ekki byggja, sem væri mikill skaði fyrir spítalann og landsmenn.
Skoðun

Fyrst flúðu þau Reykjavíkurborg…
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Er útlegð á innleið?
Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar

Leiðsögundurinn Gaur gerir mig að betri manneskju
Þorkell J. Steindal skrifar

Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Skólarnir lokaðir - myglan vinnur
Guðmundur Þórir Sigurðsson skrifar

Flokkur fólksins eða flokkun fólksins?
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 2/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Hver ætlar að bera ábyrgð á mannslífi?
Sævar Þór Jónsson skrifar

Horfumst í augu
Kristín Thoroddsen skrifar

Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar
Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar

Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði
Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar

Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar

Er aldur bara tala?
Teitur Guðmundsson skrifar

Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar

Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun
Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar

Frans páfi kvaddur eða meðtekinn?
Bjarni Karlsson skrifar

Lægjum öldurnar
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Að hata einhvern sem þú þarft á að halda?
Katrín Pétursdóttir skrifar

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar