Gylfi fékk hvíldarskiptingu í stórsigri Spurs Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 22. ágúst 2013 07:52 Gylfi Þór Sigurðsson. Nordicphotos/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Tottenham sem slátraði Dinamo Tibilisi 5-0 í fyrri leik liðanna í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildar í Georgíu í kvöld. Androw Townsend var í lykilhlutverki hjá Spurs í kvöld. Hinn snöggi og sókndjarfi Englendingur skoraði fyrsta markið og lagði upp tvö þau næstu fyrir Brasilíumanninn Paulinho og Spánverjann Roberto Soldado. Vinstri bakvörðurinn Danny Rose skoraði fjórða mark Spurs og Soldado bætti við öðru marki sínu á 67. mínútu. Ljóst er að síðari leikurinn verður formsatriði fyrir Lundúnaliðið. Þegar staðan var orðin 3-0 byrjaði stjóri Tottenham, Andre Villas-Boas, að skipta lykilmönnum af velli. Fyrstur fór Gylfi, þá Paulinho og loks Soldado. Mikið álag hefur verið á Gylfa undanfarnar vikur enda hefur hann spilað manna mest á undirbúningstímabilinu. Belginn Nacer Chaldi kom inn á fyrir Gylfa á 61. mínútu og lagði upp tvö síðustu mörk Spurs.
Evrópudeild UEFA Mest lesið „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Enski boltinn Fram einum sigri frá úrslitum Handbolti „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” Íslenski boltinn KR sópaði Hamar/Þór og leikur í Bónus deildinni á næstu leiktíð Körfubolti Selfoss jafnaði metin Handbolti „Bara einn leikur og áfram með smjörið“ Körfubolti Þjálfari Nóels Atla rekinn eftir tapið gegn Íslendingaliði Sönderjyske Fótbolti „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” Íslenski boltinn Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 108-100 | Stjarnan skrefinu á undan Körfubolti Uppgjörið: Tindastóll - Álftanes 100-78 | Ótrúlegur sigur Stólanna Körfubolti Fleiri fréttir Reyndi að stela nærfatnaði leikmanna „Munum gefa allt sem við eigum til að enda meðal efstu fimm“ Þjálfari Nóels Atla rekinn eftir tapið gegn Íslendingaliði Sönderjyske „Ekki til nokkur einasta króna á Sauðárkróki í kvennafótbolta” „Kemur einn leikmaður sem við getum staðfest í kringum næsta leik” „Við stóðum af okkur storminn“ Burnley og Leeds United aftur upp í ensku úrvalsdeildina Forest upp í þriðja sætið eftir sigur á Tottenham FCK tímabundið á toppinn Alfons með sitt fyrsta mark fyrir Birmingham Uppgjörið: Þór/KA - Tindastóll 2-1 | Endurkoma í Boganum Uppgjörið: FHL - Valur 0-2 | Valskonur sóttu þrjú stig austur Guðrún og Katla með stoðsendingar í Íslendingaslag Lewandowski frá næstu vikurnar og missir af stórleikjum Enn eitt jafnteflið hjá Lyngby Fimmtán ára bjargaði stigi fyrir Brøndby „Vonandi fáum við fulla stúku í dag“ Fjörutíu mínútna hlé eftir að peningi var kastað í dómara Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Sjá meira