
Sjálfsákvarðanatökuréttur og borgararéttindi
Við höfum horft upp á hluti eins og bann við sölu á heimaelduðu bakkelsi, reykingafrumvarp þar sem banna átti tóbaksreykingar á almannafæri, bann við klámi (hvernig sem það er skilgreint), bann við „hatursræðum", bann við notkun á kannabisefnum sem svo margir eru farnir að vilja lögleiða og skattleggja, hér eitt sinn var líka allsherjarbann við bjórnum og eins og staðan er í dag horfum við upp á bann við sölu á léttvíni og bjór í matvöruverslunum – annað en það sem gengur og gerist í nágrannalöndum okkar.
Lengi mætti telja upp öll þau boð og bönn sem hafa sprottið upp eins og gorkúlur í gegnum árin, sérstaklega eftir efnahagshrunið 2008. Allt virðist eiga að banna undir því yfirskyni að passa upp á okkur. Það er varla neitt annað eftir að banna nema ákveðinn þankagang almennings sem gæti mögulega orðið honum skaðlegur, forsjárhyggjan er orðin það mikil finnst manni stundum. Veröldin er dag frá degi farin að minna mann skuggalega mikið á martraðarframtíðarsýn George Orwell (öðru nafni Eric Blair) sem hann skrifaði um í bókinni 1984, þar sem sjálfsákvarðanatökurétturinn var nánast enginn og almenningur var undir stanslausu eftirliti. Slíka veröld þurfum við að forðast af öllu alefli og verður það erfiðara og erfiðara látum við þessa aðför að okkur viðgangast mikið lengur.
Hafa skal í huga að sjálfsákvarðanatökuréttur á sér mörg andlit, við gætum jafnvel skipt honum niður í nokkra flokka: Málfrelsisrétt eða tjáningarfrelsi, eignarrétt eða réttinn til þess að nærast, eiga heimili o.s.frv., líkamsrétt eða sjálfsákvarðanatökufrelsi, ferðarétt eða ferðafrelsi eins og það er oft kallað og skoðanarétt eða trúfrelsi.
Þrátt fyrir þessa krufningu er mikilvægt að skilja að sjálfsákvarðanatökuréttur er mjög einfaldur í eðli sínu, við gætum kallað þessa einföldun frelsi, en maður er samt farinn að forðast þetta orð þar sem þetta hugtak hefur meira og meira verið bendlað við einhvers konar einokunarkapítalisma sem hefur ekkert með frelsi að gera. Þessi flokkun sem ég útlistaði hérna að framan var aðeins til þess að gefa hugmynd um það hvað við erum að tala um hérna.
En af hverju nefni ég eignarrétt? Svarið er einfalt: Við erum lífrænar, efnafræðilegar og rafsegulmagnaðar verur. Við höfum ákveðnar grunnþarfir í þeim veruleika sem við búum í núna. Við þurfum lífsnauðsynlega húsaskjól, vatn og mat. Þetta er grundvallaröryggið sem er fólgið í því að geta sagt: „Þetta er mitt, ég á þetta og enginn getur tekið þetta af mér vegna þess að ég þarf á þessu að halda lífsnauðsynlega." Það er ástæða fyrir því að eignarréttur er varinn í stjórnarskrá, ekki bara hérlendis heldur í nánast öllum stjórnarskrám þjóða víðs vegar um heiminn. Auðvitað þarf eignarréttur að eiga sér takmörk svo að menn geti ekki sölsað undir sig allt í þessari veröld eins og gerst hefur, en þetta er að minnsta kosti grundvöllurinn sem hann er byggður á.
Eftir efnahagshrunið höfum við horft á einu stærstu aðför að eignarréttinum sem Íslendingar hafa þurft að sitja undir, fyrir utan arðrán kvótagreifanna að sjálfsögðu, þar sem eignum hefur verið rakað í þúsundavís til banka og fjármálastofnana. Bifreiðar og annað sem hefur verið tínt til hefur verið hrifsað af almenningi með kolólöglegum hætti og fjölmargir hafa átt gríðarlega erfitt með að ná endum saman þar sem verðmæti vinnuframlags þeirra hefur verið fórnað á efnahagslegum forsendum. Þetta er klassískt dæmi um hvernig fjármagnseigendur grafa undan eignarrétti þeirra sem eiga minna.
Svo er það líkamsrétturinn, þetta er kjarnarétturinn til þess að ráða yfir því hvað fer inn og út um líkama þinn, s.s. hvað maður borðar, hvaða lyf maður notar o.s.frv. Þetta frelsi má aldrei skerða, sérstaklega ekki í ljósi þess að matvæli og lyf eru meira og meira farin að verða vafasöm í ljósi erfðabreytingarstefnu voldugra stofnana eins og t.d. Monsanto í Bandaríkjunum. Meira og meira hefur verið lagt til að lögfesta sumar lyfjatökur og að sama skapi hefur lyfjanotkun ungra barna farið stigvaxandi. Nú svo er það málfrelsisrétturinn, valdhafar hafa ávallt haft það að markmiði að takmarka upplýsingar svo viðhalda megi ákveðnu hugsanamynstri almennings. Upplýsingar hafa áhrif á þetta hugsanamynstur. Með auknu aðgengi að upplýsingum sem internetið hefur boðið upp á hafa gömul pólitísk trúarkerfi farið að hrynja og fólk er farið að kalla eftir einhverju öðru.
Píratar eru eina pólitíska aflið í komandi kosningum sem hefur það að meginmarkmiði að tryggja og verja þessi borgaralegu réttindi og þann sjálfsákvarðanatökurétt sem ég hef verið að útlista. Sú alræðisátt sem veröldin hefur verið að stefna að, þá sérstaklega eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001 í New York á alþjóðavísu, hefur ekki fært okkur meira öryggi. Það er ekki hægt að fórna frelsi fyrir öryggi, þessir tveir þættir eru órjúfanlegir. Án frelsis höfum við ekkert öryggi, og án öryggis höfum við ekkert frelsi. Almenningi stafar ógn af alræðiseftirliti og sviptingu borgararéttinda á 21. öldinni. Þessi réttindi þurfum við að vernda, hér á Íslandi líka ef við viljum tryggja sjálfstæði okkar til framtíðar.
Skoðun

En hvað með loftslagið?
Emma Soffía Elkjær Emilsdóttir,Eiríkur Hjálmarsson skrifar

Ráðherra og valdníðsla í hans nafni
Örn Pálmason skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 1/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Er fótbolti að verða vélmennafótbolti?
Andri Hrafn Sigurðsson skrifar

Geðheilbrigðisþjónusta og fiskur – er einhver tenging?
Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar

Fjárfestum í hjúkrun
Ólafur Guðbjörn Skúlason skrifar

Tölum um endurhæfingu!
Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir skrifar

Dýrafræði hlutabréfamarkaðarins
Baldur Thorlacius skrifar

Alvöru mamma
Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar

Í nafni skilvirkni – á kostnað menntunar
Simon Cramer Larsen skrifar

Var þetta planið í geðheilbrigðisþjónustu?
Berglind Sunna Bragadóttir skrifar

Ef þetta eru hægriöfgaskoðanir, þá er ég stoltur hægriöfgamaður
Davíð Bergmann skrifar

Heimsmet í sjálfhverfu
Friðrik Þór Friðriksson skrifar

Atvinnuleysisbætur sem hluti af velferðarkerfinu
Steinar Harðarson skrifar

Viska þarf að standa vörð um sérfræðinga á vinnumarkaði
Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Hver ber ábyrgð á vanefndum Viðreisnar og Samfylkingar? Inga blessunin Sæland?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Í skugga kalda stríðsins: Svallið, smyglið og leyndarlífið á Miðnesheiði
Steinar Björgvinsson skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Örn Pálmason skrifar

Tölum aðeins um einhverfu
Trausti Dagsson skrifar

Það sem sést, og það sem ekki sést
Eiríkur Ingi Magnússon skrifar

Hagræðing, aðhald og nýjar áherslur skila besta ársreikningi Kópavogsbæjar í 17 ár
Ásdís Kristjánsdóttir,Orri Hlöðversson skrifar

Gyðjur, góðgæti og gleðistundir um páskana
Jóhanna María Ægisdóttir skrifar

Eru markaðsforsendur fyrir óperu á Íslandi sterkari en margir halda?
Þóra Einarsdóttir skrifar

KSÍ og kvennaboltinn
Árni Guðmundsson skrifar

Engin heilbrigðisþjónusta án þeirra sem veita hana
Sandra B. Franks skrifar

Gervigreindin tekur yfir vinnustaðinn; 15 dæmi
Björgmundur Örn Guðmundsson skrifar

Sterkari saman: Flokkur í þjónustu þjóðar
Kristrún Frostadóttir skrifar

Magnaðar framfarir leikskólastarfs í Vík
Einar Freyr Elínarson skrifar

Skattahækkun
Bryndís Haraldsdóttir skrifar

Handtöskur og fasistar
Ásgeir K. Ólafsson skrifar