

Takk
Vandi stjórnarflokkanna er ekki síst fólginn í því að við, fólkið í landinu, höfum misst yfirsýnina, að einhverju leyti gleymt nýliðnum harmleik í skjóli blekkinga og okkar eigin heimtufrekju. Við lifum á tímum þar sem hlutir eru dæmdir út frá umbúðum en ekki innihaldi, við erum upptekin af magni og hagræðingu en gleymum gæðunum og raunverulegu virði hlutanna. Hvers virði er til dæmis tveggja prósenta lækkun á tekjuskatti ef hún er á kostnað læknisþjónustu eða barnabóta til einstæðs foreldris?
Skattar eru það gjald sem við greiðum fyrir siðmenninguna, sagði einhver. Ef við viljum siðmenningu þá verðum við að borga skatta. Svo einfalt er það. Það gengur ekki upp að heimta lækkun skatta en um leið betri eða sömu þjónustu.
Það má ekki gerast að kosningaloforð verði af sama tagi og megrunarkúrar: skyndilausnir handa lýðnum. Tímabundnar lausnir sem ráðast ekki að rót vandans, lausn sem leysir eitt vandamál en magnar upp annað. Við megum ekki gleyma aðalatriðinu, týna því í ringulreið og uppþotum. Viljum við að auðlindir landsins séu auðlindir þjóðarinnar? Viljum við ljúka aðildarviðræðunum við ESB svo þjóðin hætti að þræta um hugarburð? Óskum við þess að þeir sem standa höllum fæti fái aðstoð og stuðning frá hinu opinbera? Viljum við hafa stuðningsnet þegar áfallið skellur á okkur? Viljum við standa vörð um náttúruna?
Við viljum greiða
Við, undirrituð, viljum greiða sanngjarna skatta ef það þýðir barnabætur til þeirra sem þær þurfa, öflugra heilbrigðiskerfi fyrir okkur öll, óskert menntunartækifæri barnanna okkar, stöðugar undirstöður fyrir fjölbreytt og skapandi atvinnulíf, að hugað sé að foreldrum okkar, ömmum og öfum í ellinni. Hverjir eru líklegastir til að skapa þann grundvöll?
Fjögur ár af fordæmalausum niðurskurði, blóðugum en því miður nauðsynlegum eftir fjárhagslegar hamfarir í þjóðarbúinu. Við finnum auðvitað fyrir því að hér varð hrun en samt fáum við enn þá læknisþjónustu, hærri barnabætur en áður, sértækar vaxtabætur og snjómokstur á milli byggðakjarna. Fimm ár frá hruni og innan við 5% atvinnuleysi, fjöldi fólks fer til sólarlanda, menntakerfið er öflugt, skapandi greinar blómstra og í burðarliðnum eru hátæknisjúkrahús, nýtt fangelsi og veggöng. Auðvitað vill maður alltaf meira, sá sem á heitan pott vill sundlaug, sá sem á sundlaug vill sundlaugagarð og sá sem á sundlaugagarð vill Atlantshafið. En fyrir ríflega fjórum árum gat okkur ekki dreymt um að hafa það þó þetta gott meðan orð fyrrverandi forsætisráðherra bergmáluðu í eyrum okkar: Guð blessi Ísland!
Í ljósi þess ætlum við að endurskoða okkar eigin tilætlunarsemi og reyna að horfa á hlutina í stærra samhengi.
Fjöldi fólks á um sárt að binda, og margir síðan löngu fyrir hrun, en orsaka vandans er hvorki að leita hjá ríkisstjórnarflokkunum, sem hafa styrkt efnahaginn á fáránlega erfiðum tímum, né flokkunum í borgarstjórn Reykjavíkur: Samfylkingu og Besta flokknum, bróðurflokks Bjartrar framtíðar. Borgarstjórnin hefur undið ofan af skuldum Orkuveitunnar sem ætlaði algjörlega að sliga borgarbúa eftir óreiðustjórn margra ára og þar hefur tekist að halda allri lágmarksþjónustu gangandi, auk þess að standa fyrir frjóum lausnum á ýmsum sviðum.
Erum við búin að gleyma?
Það er auðvelt að kenna þessum þremur flokkum um allt sem miður fer, þeim sem hafa setið við stjórnvölinn hjá ríki og borg síðan við fórum að finna fyrir Hruninu á eigin skinni. En notum hugmyndaflugið: Hvernig hefði ástandið verið ef þessara flokka hefði ekki notið við? Erum við búin að gleyma hverjir einkavæddu bankana, byggðu virkjanirnar sem höfðu í för með sér stórtæka eyðileggingu á náttúrunni og þensluna sem fræ Hrunsins uxu af, höfum við gleymt stríðinu í Írak og óráðsíu á húsnæðislánamarkaði, svo fátt eitt sé nefnt.
Stundum þarf að fórna eigin skammtímahagsmunum fyrir betri framtíð heildarinnar, og þá um leið eigin hagsmunum. Við minnumst orða Lao-Tse þegar við skilum inn atkvæðum okkar; að sá sem er ör á loforðin er sjaldan orðheldinn.
Þetta virðast frambjóðendur Vinstri grænna, Samfylkingar og Bjartrar framtíðar vita. Á listum þessara þriggja flokka er fólk sem hefur unnið að því af heilum hug síðustu árin að tjasla saman daglegu gangverki ríkisins og höfuðborgarinnar. Auðvitað er það mannlegt en það vinnur óeigingjarnt starf, fórnar einkalífi og hefur að því er virðist ótakmarkaða starfsorku. Og það hefur ekki bara gert mistök heldur líka kraftaverk. Við allt þetta fólk viljum við systkinin segja nokkuð sem gleymist alltof oft að segja: Takk kærlega.
Skoðun

Styrkleikar barna geta legið í öðru en að fá hæstu einkunnir
Anna Maria Jónsdóttir skrifar

Listin við að fara sér hægt
Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar

Kosningar í stjórn Visku: Þitt atkvæði skiptir máli!
Eydís Inga Valsdóttir skrifar

Ábyrgð yfirvalda á innra mati á skólastarfi
Anna Greta Ólafsdóttir skrifar

Bjánarnir úti á landi
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson skrifar

Hvað kostar EES samningurinn þjóðina?
Sigurbjörn Svavarsson skrifar

En hvað með loftslagið?
Emma Soffía Elkjær Emilsdóttir,Eiríkur Hjálmarsson skrifar

Ráðherra og valdníðsla í hans nafni
Örn Pálmason skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 1/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Er fótbolti að verða vélmennafótbolti?
Andri Hrafn Sigurðsson skrifar

Geðheilbrigðisþjónusta og fiskur – er einhver tenging?
Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar

Fjárfestum í hjúkrun
Ólafur Guðbjörn Skúlason skrifar

Tölum um endurhæfingu!
Laufey Elísabet Gissurardóttir,Steinunn Bergmann,Þóra Leósdóttir skrifar

Dýrafræði hlutabréfamarkaðarins
Baldur Thorlacius skrifar

Alvöru mamma
Anna Margrét Hrólfsdóttir skrifar

Í nafni skilvirkni – á kostnað menntunar
Simon Cramer Larsen skrifar

Var þetta planið í geðheilbrigðisþjónustu?
Berglind Sunna Bragadóttir skrifar

Ef þetta eru hægriöfgaskoðanir, þá er ég stoltur hægriöfgamaður
Davíð Bergmann skrifar

Heimsmet í sjálfhverfu
Friðrik Þór Friðriksson skrifar

Atvinnuleysisbætur sem hluti af velferðarkerfinu
Steinar Harðarson skrifar

Viska þarf að standa vörð um sérfræðinga á vinnumarkaði
Kristjana Mjöll Jónsdóttir Hjörvar skrifar

Hver ber ábyrgð á vanefndum Viðreisnar og Samfylkingar? Inga blessunin Sæland?
Ole Anton Bieltvedt skrifar

Í skugga kalda stríðsins: Svallið, smyglið og leyndarlífið á Miðnesheiði
Steinar Björgvinsson skrifar

Opið bréf til mennta- og barnamálaráðherra
Örn Pálmason skrifar

Tölum aðeins um einhverfu
Trausti Dagsson skrifar

Það sem sést, og það sem ekki sést
Eiríkur Ingi Magnússon skrifar

Hagræðing, aðhald og nýjar áherslur skila besta ársreikningi Kópavogsbæjar í 17 ár
Ásdís Kristjánsdóttir,Orri Hlöðversson skrifar

Gyðjur, góðgæti og gleðistundir um páskana
Jóhanna María Ægisdóttir skrifar

Eru markaðsforsendur fyrir óperu á Íslandi sterkari en margir halda?
Þóra Einarsdóttir skrifar

KSÍ og kvennaboltinn
Árni Guðmundsson skrifar