Kraftakarlinn Hafþór Júlíus Björnsson fer í dag til Los Angeles þar sem hann verður meðal 30 kraftajötna sem berjast um titilinn sterkasti maður heims.
Hafþór Júlíus er tröll að burðum, 180 kíló og tveir metrar og 6 sentimetrar. Hann sigraði á móti í Ástralíu fyrir viku.
Arnar Björnsson ræddi við hann um væntingar hans fyrir keppnina um sterkasta mann heims og hvort að hann telji sig eiga möguleika á að komast í flokk með Jóni Páli Sigmarssyni og Magnús Ver Magnússyni.
Á mótinu í Los Angeles keppa 30 kraftajötnar í 5 riðlum og komast tveir áfram úr hverjum riðli í 10 manna úrslit. Undanfarin þrjú ár hefur Hafþór hafnað í 3. sæti, fyrst 2012 þegar Litháinn, Zydrunas Savickas vann titilinn í þriðja sinn. Í fyrra varð þriðja sætið einnig hlutskipti íslenska víkingsins en þá varð Litháinn annar og en Bandaríkjamaðurinn Brian Shaw sigraði.
Hafþór Júlíus er 25 ára og yngstur þessara þriggja trölla. Litháinn er 38 ára og hefur unnið fjölmarga titla á ferlinum. Takist honum að vinna titilinn jafnar hann árangur Jóns Páls Sigmarssonar og Magnúsar Ver Magnússonar sem fjórum sinnum unnu titilinn sterkasti maður heims. Hafþór Júlíus er staðráðinn í því að vinna í Los Angeles.
Hér fyrir ofan má sjá viðtalið sem Arnar Björnsson tók við Hafþór Júlíus Björnsson og það er ljóst að öllu að okkar maður ætlar sér risastóra hluti í LA.
Ætlar að vinna titilinn sterkasti maður heims
Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mest lesið


Bjarki um gjaldþrotið: „Þú ert niðurlægður á ákveðinn hátt“
Íslenski boltinn



Stúkan um Stjörnuna: „Er algjört kjaftæði“
Íslenski boltinn

„Held að Víkingar hafi keypt rangan framherja úr HK“
Íslenski boltinn




ITV styður Ian Wright og gæti losað sig við Eni Aluko
Enski boltinn