
Sæstrengur og náttúra Íslands
En þrátt fyrir að sæstrengur feli í sér þetta mikla tækifæri eru margir andvígir eða að minnsta kosti tvístígandi gagnvart þessum möguleika. Eitt af því sem margir hafa áhyggjur af er að lagning sæstrengs kalli á umfangsmiklar nýjar virkjanir og þar með mikil náttúruspjöll.
40% orkunnar eru fyrir hendi
Þessar áhyggjur eru meiri en efni standa til. Fyrir því eru tvær ástæður. Sú fyrri er að unnt er að bæta nýtingu þeirra virkjana sem nú þegar eru fyrir hendi umtalsvert ef sæstrengur er lagður til Bretlands. Í lokuðu orkukerfi Íslands er nauðsynlegt að byggja upp umframafkastagetu til þess að geta tekist á við sveiflur í vatnsbúskap og tryggt afhendingaröryggi á rafmagni í slæmu vatnsári. Alla jafna er því talsverð umframorka í kerfinu sem í dag er óbeisluð (lónin fyllast og vatnið rennur fram hjá virkjununum). Þessa umframorku er unnt að selja um strenginn án þess að nokkuð sé virkjað. Samtals eru þetta um 40% af þeirri orku sem þarf í sæstrenginn eða um 2 TWst á ári.
Rafmagn á lager
Hitt sem dregur mjög úr umfangi þeirra virkjana sem ráðast þarf í samfara sæstreng er að sæstrengurinn gerir okkur kleift að flytja inn ódýra raforku á næturnar. Slíkur innflutningur er líklega einn þáttur í hagkvæmri nýtingu strengsins. Rafmagn fæst nánast ókeypis að nóttu til í Bretlandi. Ástæða þessa er að það svarar ekki kostnaði að slökkva á kjarnorkuverum og kolaorkuverum á nóttunni og vindorkuver framleiða rafmagn jafnt að nóttu sem á degi. Þar sem eftirspurn er minni en framboð á nóttunni fellur verðið á rafmagni niður undir núll (og stundum niður fyrir núll).
Ólíkt kola- og kjarnorkuverum Breta er unnt að skrúfa fyrir og skrúfa frá vatnsaflsvirkjunum Landsvirkjunar á örfáum mínútum. Við gætum því slökkt á stórum hluta af vatnsaflsvirkjunum Landsvirkjunar á nóttunni og keyrt álverin og götuljósin á nánast ókeypis innfluttri raforku. Vatn myndi þá safnast upp á næturnar í uppistöðulónunum okkar og við gætum síðan keyrt vatnsaflsvirkjanirnar sem nú þegar eru til staðar af meira afli á daginn. Það eina sem þyrfti að gera væri að bæta túrbínum í núverandi virkjanir.
Gefum okkur að við flyttum inn rafmagn um strenginn í tæpar sex klukkustundir á næturnar. Það gera um 1,5 TWst á ári. Það sparar nægilega mikið vatn í uppistöðulónunum til þess að unnt sé að flytja út 1,5 TWst á daginn án þess að nokkuð sé virkjað.
Hversu mikið þarf að virkja?
Þessir tveir þættir gefa samanlagt 3,5 TWst á ári sem unnt væri að flytja út um sæstreng án þess að nokkuð sé virkjað. Flestar áætlanir gera ráð fyrir að um 5 TWst væru fluttar út um strenginn á ári. Af þessu sést að sæstrengur kallar einungis á nýjar virkjanir sem nema um 1,5 TWst á ári. Til samanburðar framleiðir Kárahnjúkavirkjun um 5 TWst á ári og heildarorkuframleiðsla Landsvirkjunar er um 13 TWst á ári.
Í rammaáætlun um orkunýtingu sem Svandísi Svavarsdóttir, umhverfisráðherra Vinstri-grænna, lagði fram og samþykkt var á Alþingi árið 2013 eru virkjunarkostir upp á 5-8 TWst í nýtingarflokki. Sú rammaáætlun var talsvert gagnrýnd fyrir að vera of höll undir náttúruvernd. Þó kallar sæstrengur einungis á að ráðist verði í langt innan við helming af þeim virkjunarkostum sem eru í nýtingarflokki í þessari rammaáætlun.
Náttúra Íslands er svo sannarlega mikils virði. Við eigum því að gera miklar kröfur til þeirra verkefna sem kalla á frekari virkjanir. Margt bendir hins vegar til þess að lagning sæstrengs til Bretlands muni hafa minni áhrif á náttúruna en oft er talað um. Á sama tíma gæti slíkt verkefni haft mikil áhrif á hagsæld íslensku þjóðarinnar og verið kærkomið tækifæri til að skapa tekjur sem nýst gætu til að styrkja nauðsynlega innviði samfélagsins. Af þessum sökum tel ég að jafnvel þeir, sem mest er umhugað um náttúru Íslands, eigi að skoða þetta tækifæri af opnum hug.
Skoðun

Hollar skólamáltíðir fyrir loftslagið og líðan barna
Laufey Steingrímsdóttir,Anna Sigríður Ólafsdóttir skrifar

Bókin er minn óvinur, en mig langar samt í verknám!
Davíð Bergmann skrifar

Ilmurinn af jarðolíu er svo lokkandi
Sævar Helgi Lárusson skrifar

Hvað er að frétta af humrinum?
Jónas Páll Jónasson skrifar

Þeir greiða sem njóta, eða hvað?
Jóhannes Þór Skúlason,Pálmi Viðar Snorrason skrifar

Samskiptasáttmáli; skúffuskjal eða stórgott verkfæri
Helena Katrín Hjaltadóttir,Íris Helga G. Baldursdóttir skrifar

Sigrar og raunir íslenska hestsins
Elín Íris Fanndal skrifar

Reykjavíkurborg á flestar félagslegar íbúðir en Garðabær rekur lestina
Heimir Már Pétursson skrifar

Góðir grannar Landsvirkjunar og við hin
Kjartan Ágústsson skrifar

Hittumst á rauðum sokkum 1. maí
Finnbjörn A. Hermannsson,Kolbrún Halldórsdóttir,Magnús Þór Jónsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Mikilvægi orkuspáa
Ingvar Júlíus Baldursson skrifar

Þegar innflutningurinn ræður ríkjum
Anton Guðmundsson skrifar

Vladímír Pútín: Hvað er að marka hann?
Steinar Björgvinsson skrifar

Örlög Úkraínu varða frið og öryggi á Íslandi
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Vegamál á tímum skattahækkana og vantrausts
Benedikt S. Benediktsson skrifar

Konur og menntun
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar

Aðför ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að flóttafólki
Hópur stjórnarkvenna í Solaris skrifar

Hanna Katrín og Co, koma til bjargar
Björn Ólafsson skrifar

Villtur lax eða villt græðgi – sveitin í skotlínu
Jóhann Helgi Stefánsson skrifar

Fyrst flúðu þau Reykjavíkurborg…
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Fyrst flúðu þau Reykjavíkurborg…
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Er útlegð á innleið?
Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar

Leiðsögundurinn Gaur gerir mig að betri manneskju
Þorkell J. Steindal skrifar

Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Skólarnir lokaðir - myglan vinnur
Guðmundur Þórir Sigurðsson skrifar

Flokkur fólksins eða flokkun fólksins?
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 2/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Hver ætlar að bera ábyrgð á mannslífi?
Sævar Þór Jónsson skrifar

Horfumst í augu
Kristín Thoroddsen skrifar