Gattuso: Leikmenn AC Milan í dag virða ekki reglurnar eins og við gerðum Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. maí 2015 12:00 Gennaro Gattuso var hluti af sigursælu liði AC Milan. vísir/getty
Gennaro Gattuso, fyrrverandi Ítalíu- og Evrópumeistari með AC Milan, er afar óánægður með hegðun núverandi leikmanna liðsins. Hann segir liðið vanta alvöru karlmenn og hegðunarvandamál séu í klefanum. AC Milan hefur átt slaka leiktíð undir stjórn Pippo Inzaghi, fyrrverandi samherja Gattuso. Liðið er í tíunda sæti deildarinnar og verður líklega ekki í Evrópukeppni næsta vetur. „Milan er eins og friðarsamtökin Unesco á meðan lið eins og Manchester City og PSG eiga sér enga sögu. Aftur á móti er engin framtíðarstefna í gangi hjá liðinu núna,“ segir Gattuso í viðtali við Gazetta TV. „Það er mikilvægt að segja stuðningsmönnunum satt. Það er mikið talað um ungu leikmennina hjá félaginu en svo eru þeir allir lánaðir eða seldir.“ „Þegar ég spilaði fyrir Milan giltu reglur í búningsklefanum sem við fórum eftir. Þannig er það ekki hjá Milan-liðinu í dag,“ segir Gattuso. Einn mesti vandræðagemsinn í Milan-liðinu í dag er Jérémy Ménez sem er jafnframt markahæsti leikmaður þess með 16 mörk. Hann hefur verið gagnrýndur mikið fyrir hegðun sína. „Ménez er búinn að skora mikið af mörkum en hann er enginn leiðtogi. Hann hefur ekki gert nóg,“ segir Gennaro Gattuso.
Ítalski boltinn Mest lesið Ítölsk stelpa ferðaðist 1.800 kílómetra til að sjá Jón Axel Körfubolti „Hætti þessari fortíðarþráhyggju minni með Vestmannaeyjar“ Handbolti Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Enski boltinn Skalf meðan hann lagði Carlsen: „Þetta var algjörlega galið“ Sport Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Enski boltinn „Skil bara ekki að KSÍ leyfi þetta“ Íslenski boltinn „Gott að sjá honum blæða á vellinum“ Körfubolti Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Enski boltinn Dagskráin í dag: Bónus, Besta og Stúkan á sumardaginn fyrsta Sport Pjakkarnir erlendis þegar KR mætir Blikum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Í beinni: ÍBV - Fram | Kemur fyrsta markið á Þórsvelli? Pjakkarnir erlendis þegar KR mætir Blikum „Skil bara ekki að KSÍ leyfi þetta“ Sjáðu hetjumark Höskuldar, kvartettinn í Kaplakrika og öll hin frá því í gær Hættir eftir langan tíma og Orri fær nýjan þjálfara Leicester kveður „geitina“ sem félagið sótti í utandeildina Snýr aftur eftir lungnabólguna Liverpool getur tryggt sér titilinn á sunnudaginn Fór út í dulargervi eftir að Barton byrjaði að bauna á hana Andri Rafn fimmti í þrjú hundruð leikja klúbbinn Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 2-1 | Fyrirliðinn kom heimamönnum til bjargar Öruggt hjá Milan og þrennudraumur Inter úr sögunni Real Madrid pressar á Barcelona en Orri og félagar í vandræðum „Ég fer bara sáttur á koddann“ „Adam Ægir hefði alveg mátt gefa á mig“ Jafnt á Emirates og Liverpool þarf að bíða Uppgjörið: ÍA - Vestri 0-2 | Taplausir Vestramenn sóttu sigur á Skagann „Byrjum ekki leikinn fyrr en eftir 20 mínútur“ „Kærkominn sigur eftir vonbrigðin í fyrstu umferðunum“ „Gæti vel verið en það er bara fókus á næsta leik“ Uppgjörið: FH - KR 2-2 | Bæði lið enn án sigurs Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Jónatan Ingi sýndi sínar bestu hliðar í fyrsta sigri Vals Ari á skotskónum í dramatískum sigri Elfsborg Meistaradeildarvonir Alberts og félaga vænkast Arteta ætlar ekki að hvíla Saka fyrir Meistaradeildina Þórdís Hrönn með stoðsendingu fyrir sjötta félagið í efstu deild Sagan segir að Arsenal vinni Meistaradeildina Real Madrid fer liða verst út úr myndbandsdómgæslunni Rekstur Chelsea: Eins og að tapa sextíu milljónum á dag í tíu ár „Ekki fallegt að sjá hvernig farið er með Ancelotti“ Sjá meira