Bíða í rúma tíu tíma eftir miða á Star Wars-mynd í nístingskulda
Birgir Olgeirsson skrifar
Röðin fyrir utan Nexus-verslunina í Nóatúni í dag. Vísir/Anton
Elskar þú Stjörnustríðsmyndirnar nógu mikið til að bíða í rúmar tíu klukkustundir í röð í nístingskulda eftir miðum á sérsýningu nýjustu myndarinnar? Sigfús Jóhannsson og Ragnar Guðmundsson gera það en þeir mættu klukkan níu í morgun fyrir utan Nexus-verslunina í Nóatúni til vera vissir um að tryggja sér miða á sérsýningu verslunarinnar á sjöundu Stjörnustríðsmyndinni, Star Wars: TheForceAwakens, í næsta mánuði.
Sigfús Jóhannsson og Ragnar Guðmundsson.Vísir/AntonMiðasala í númeruð sæti hefst í Nexus klukkan hálf átta í kvöld á sýningu sem verður haldin í tveimur sölum í Egilshöll 17. desember næstkomandi. Um er að ræða sýningar án hléa, þar sem myndin verður sýnd í þrívídd í sal 1 en tvívídd í sal tvö, og verður Star Wars-búningakeppni á undan með veglegum verðlaunum.
Sá sem er þriðji í röðinni lét lítið á sér bera þegar Vísir kíkti í heimsókn. Vísir/AntonAðstæður til að bíða svona í röð utandyra, eins og þeir Sigfús og Ragnar hafa gert, eru kannski ekki með besta móti í dag. Þó veðrið sé fallegt hefur verið frekar kalt í Reykjavík. Samkvæmt Veðurstofu Íslands hefur meðalhitastigið í dag verið í kringum -3,3 gráður. Samkvæmt spánni mun kólna fremur þegar kvöld tekur, gangi spáin eftir verður frostið komið niður í mínus 5 gráður um klukkan sjö í kvöld.
„Við erum bara búnir að reyna að finna leiðir til að halda á okkur hita í eiginlega allan dag,“ sagði Sigfús þegar Vísir kíkti á stemninguna í röðinni. Félagarnir hafa haft þann háttinn á að passa upp á plássið á meðan annar þeirra fer inn í Nexus-verslunina til að ylja sér. Þeir voru vel nestaðir fyrir átök dagsins og höfðu með sér lítið taflborð til að drepa tímann.
„Við gefumst ekkert upp á þessu, bara nokkrir tíma eftir,“ sagði Ragnar þegar fimm tímar voru í að miðasalan myndi hefjast.