Handboltaveisla í Strandgötu í dag Anton Ingi Leifsson skrifar 27. desember 2015 06:00 Úr leik Fram og Gróttu fyrr á tímabilinu. vísir/vísir
Það verður sannkölluð handboltaveisla í íþróttahúsinu við Strandgötu þegar Flugfélags Íslands deildarbikarinn 2015 fer fram, en fjögur efstu lið Olís-deildar karla og kvenna etja þar kappi. Í dag hefst handbolta-hátíðin í hádeginu eða klukkan 12.00 þar sem Grótta og Fram mætast í kvennaflokki. Þetta eru liðin í fyrsta og fimmta sæti, en Haukarnir, sem eru í fjórða sætinu, taka ekki þátt að þessu sinni. Það er Fram-tvíhöfði í Strandgötunni í dag, en Valur og Fram mætast í karlaflokki klukkan 14.00. Valur er í öðru sæti og Fram í því þriðja, en EM-pása er nú í Olís-deild karla. Í hinum undanúrslitaleiknum kvennamegin mætast Valur og ÍBV klukkan 16.00. ÍBV hefur spilað afar vel það sem af er tímabili; sitja í öðru sæti, en Valur hefur einnig komið einhverjum á óvart og er í því þriðja. Tvö stig skilja liðin að, en Valur á leik til góða. Lokaleikurinn verður svo milli Hauka og Aftureldingar. Sá leikur hefst klukkan 18.00, en liðin í fyrsta og fjórða sæti Olís-deildar karla. Liðin mættust á dögunum og þá höfðu Haukarnir betur; 26-19. Allir leikir dagsins verða að sjálfsögðu í beinni textalýsingu í Boltavaktinni þar sem fólk getur fylgst með gangi mála í allan dag.Leikir dagsins: 12.00 Grótta - Fram (kvenna) 14.00 Fram - Valur (karla) 16.00 Valur - ÍBV (kvenna) 18.00 Haukar - Afturelding (karla)
Íslenski handboltinn Mest lesið Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Íslenski boltinn „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Íslenski boltinn „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ Fótbolti Dagskráin í dag: Íslenskt góðgæti með erlendu kryddi Sport Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Enski boltinn Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Enski boltinn Leik Alberts og öllum öðrum á Ítalíu frestað vegna andláts páfa Fótbolti Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Saka ekki alvarlega meiddur Enski boltinn Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Einar Þorsteinn hafði betur gegn Guðmundi Braga Elvar Örn öflugur þegar Melsungen jafnaði toppliðið að stigum Haukar í undanúrslit á meðan ÍR og Selfoss þurfa oddaleik Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Lena Margrét til Svíþjóðar Orri Freyr skaut Sporting í undanúrslitin Dramatík á Hlíðarenda Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Rekinn út af eftir 36 sekúndur Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Færeyjar fylgja Íslandi á sitt fyrsta HM Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Elvar markahæstur hjá Melsungen í úrslitaleiknum Íslendingalið leika til úrslita í bikarkeppnum Fimmti sigur strákanna hans Arnórs í röð Haukur bikarmeistari í Rúmeníu Kolstad í undanúrslit eftir annan risasigur Hugurinn hjá hinum raunverulegu fórnarlömbum Dagur með markahæstu mönnum í stórsigri Yfirlýsing frá landsliðinu: „Förum fram á að Ísrael verði meinuð þátttaka“ Stelpurnar földu auglýsingu Rapyd eftir sigurinn Myndasyrpa: Tryggðu HM-sætið og kvöddu Steinunni „Alsæl með að skilja við liðið á leiðinni á HM“ „Þungu fargi létt eftir afar tilfinningaþrungna viku“ Steinunn hætt í landsliðinu Uppgjörið: Ísrael - Ísland 21-31 | Íslenska liðið á leið á sitt þriðja stórmót í röð Sjá meira