

Eigum við að loka SÁÁ og Hjartavernd?
Íslenskir sósíalistar hafa á öllum tímum skrifað og talað svona um Sjálfstæðisflokkinn. Auðvelt er að skoða gömul eintök af Þjóðviljanum eða fletta Þingtíðindum ef menn vilja rifja það upp.
Einn helsti hugmyndafræðingur íslenskra vinstrimanna, prófessor Stefán Ólafsson, hefur verið duglegur við að halda þessu á lofti og skrifaði nýlega enn eina greinina á Eyjuna um hvað forystumenn í Sjálfstæðisflokknum eru vont fólk og taldi þá „villutrúar og vilja bara græða“.
Hann fullyrti að sjálfstæðismenn vildu grafa undan opinbera samtryggingakerfinu og koma á bandarísku kerfi í heilbrigðismálum og vildu bara einkarekstur. Einhver kynni að segja að slíkur málflutningur væri svo galinn að það skyldi ekki taka hann alvarlega og það er mikið til í því en ekki verður fram hjá því horft að oft er vitnað í manninn í fjölmiðlum eins og um sé að ræða faglegt mat fræðimanns.
Einkavæðing VG og Samfylkingarinnar
En að kjarna máls. Eru Stefán og e.t.v. vinstrimenn almennt andsnúnir einkarekstri í heilbrigðiskerfinu?
Af hverju samdi þá hreina vinstristjórnin við einkaaðila? T.d. um sjúkrahótel og tannlækningar?
Stefán Ólafsson var innsti koppur í búri hjá þeirri ríkisstjórn og var m.a. í sérverkefnum fyrir hana í heilbrigðismálum.
Ef við notum orðalag vinstrimanna þá stóð ríkisstjórn VG og Samfylkingarinnar, ríkisstjórn Jóhönnu og Steingríms, að stærstu „einkavæðingu“ í heilbrigðisþjónustu á Íslandi.
Og er það virkilega svo að prófessorinn þekki ekki muninn á bandarísku heilbrigðiskerfi og því skandinavíska? Það eitt og sér hlýtur að teljast mjög alvarlegt mál.
Eigum við að banna einkarekstur?
Er hann á móti einkarekstri í heilbrigðismálum? Á ríkið að taka yfir rekstur einkaaðila? Það myndi þýða að eftirfarandi rekstrareiningum yrði lokað:
SÁÁ
Reykjalundi
Grund
Hrafnistu
Sóltúni (reyndar nær öllum hjúkrunarheimilum landsins)
Tannlæknastofum
Sérfræðilæknastofum
Heilsugæslu Salahverfis
Sjálfstæðum heimilislækningastofum
Krabbameinsfélaginu
Rauða krossi Íslands
Hjartavernd
o.s.frv.
Með öðrum orðum erum við að tala um að taka upp fyrirkomulag sem hvergi þekkist í þeim löndum sem við berum okkur saman við.
Trúir einhver því að heilbrigðisþjónustan á Íslandi verði betri ef við bönnum einkarekstur?
Að veita góða heilbrigðisþjónustu er eilífðarverkefni. Við sjálfstæðismenn höfum forgangsraðað í þágu þeirrar þjónustu, það sama verður ekki sagt um íslenska vinstrimenn.
Ef við ætlum að ná betri árangri verður umræðan að vera byggð á staðreyndum og án öfga. Það er mikilvægt að nýta reynslu nágrannaþjóða okkar til að bæta núverandi þjónustu.
Norðurlandaþjóðirnar eru með blandað kerfi og eru óhræddar við að nýta kosti einkareksturs, horfum til þeirra og höfnum þessum öfgasjónarmiðum.
Skoðun

Mikilvægi orkuspáa
Ingvar Júlíus Baldursson skrifar

Þegar innflutningurinn ræður ríkjum
Anton Guðmundsson skrifar

Vladímír Pútín: Hvað er að marka hann?
Steinar Björgvinsson skrifar

Örlög Úkraínu varða frið og öryggi á Íslandi
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar

Vegamál á tímum skattahækkana og vantrausts
Benedikt S. Benediktsson skrifar

Konur og menntun
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,Steinunn Bragadóttir skrifar

Aðför ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur að flóttafólki
Hópur stjórnarkvenna í Solaris skrifar

Hanna Katrín og Co, koma til bjargar
Björn Ólafsson skrifar

Villtur lax eða villt græðgi – sveitin í skotlínu
Jóhann Helgi Stefánsson skrifar

Fyrst flúðu þau Reykjavíkurborg…
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Fyrst flúðu þau Reykjavíkurborg…
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Er útlegð á innleið?
Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar

Leiðsögundurinn Gaur gerir mig að betri manneskju
Þorkell J. Steindal skrifar

Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Skólarnir lokaðir - myglan vinnur
Guðmundur Þórir Sigurðsson skrifar

Flokkur fólksins eða flokkun fólksins?
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 2/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Hver ætlar að bera ábyrgð á mannslífi?
Sævar Þór Jónsson skrifar

Horfumst í augu
Kristín Thoroddsen skrifar

Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar
Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar

Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði
Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar

Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar

Er aldur bara tala?
Teitur Guðmundsson skrifar

Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar

Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun
Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar

Frans páfi kvaddur eða meðtekinn?
Bjarni Karlsson skrifar

Lægjum öldurnar
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Að hata einhvern sem þú þarft á að halda?
Katrín Pétursdóttir skrifar

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar