
Færeyingar bjóða upp veiðiheimildir
Það var ákaflega vel að þessari tilraun staðið. Veiðiheimildunum sem til stóð að bjóða upp var skipt niður og haldin nokkur smærri uppboð í hverri tegund yfir nokkurra vikna skeið. Mismunandi uppboðsaðferðir voru prófaðar til þess að fá reynslu á það hvort ein aðferð gengi betur en önnur.
Uppboðin tókust vel
Það er skemmst frá því að segja að uppboðin tókust mjög vel. Færeysk stjórnvöld fengu hátt verð fyrir veiðiheimildirnar ef verðið er borið saman við þau veiðigjöld sem íslenskar útgerðir greiða í dag. Fyrir þorskkvóta í Barentshafi fengu Færeyingar að meðaltali 3,42 danskar krónur á kíló sem gera um það bil 62 íslenskar krónur. Til samanburðar munu íslenskar útgerðir greiða rúmar 11 kr. í veiðigjald af þorskkvóta á næsta fiskveiðiári. Munurinn er því meira en fimmfaldur.
Færeyingar fengu að meðaltali 3,66 danskar krónur á kíló fyrir makrílkvóta (u.þ.b. 66 íslenskar krónur). Til samanburðar verður veiðigjald á makríl á Íslandi einungis 2,78 kr. á næsta fiskveiðiári. Hér er færeyskur almenningur því að fá um 24 sinnum hærri upphæð en við Íslendingar. Í síld var meðalverðið á uppboðunum í Færeyjum 3,57 danskar krónur (u.þ.b. 64 íslenskar krónur) en veiðigjaldið á síld á Íslandi verður einungis 2,56 kr. á næsta ári. Almenningur í Færeyjum fær því um 25 sinnum meira í auðlindaarð fyrir síldarkvóta en Íslendingar.
Talsmenn SFS (sem eitt sinn kallaði sig LÍÚ) hafa haldið því fram að þessi samanburður sé villandi þar sem aðstæður séu aðrar á Íslandi en í Færeyjum. Það er nokkuð til í því þegar kemur að makríl. Færeyingar geti veitt makrílinn þegar hann er í betra ástandi en við Íslendingar. Ef til vill skýrir það að hluta þennan 24-falda mun. En þessi sömu rök eiga ekki við um síldina og þar er munurinn jafn mikill. Varðandi þorskinn er líklegt að samanburðurinn við Færeyjar sé villandi í hina áttina. Færeyingar þurfa að sigla alla leið í Barentshaf til þess að sækja þann fisk á meðan íslenski þorskurinn heldur til við okkar eigin strendur.
Talsmenn SFS halda því einnig fram að hér sé um jaðarverð að ræða sem endurspegli ekki verðið ef allur kvótinn væri boðinn upp. Í því sambandi er vert að minna á að flestir sem tala fyrir uppboði á veiðiheimildum á Íslandi telja einmitt skynsamlegt að kerfisbreytingin eigi sér stað hægt og bítandi yfir nokkurra ára skeið með þeim hætti að 10-20% af veiðiheimildum hverrar tegundar séu boðnar út ár hvert til fimm eða tíu ára. Það væri því hlutfallslega svipað magn á uppboði í slíku kerfi og Færeyingar buðu út nú í júlí.
Hátt leiguverð á Íslandi
Einnig er gagnlegt að bera verðið sem Færeyingar fengu í uppboðunum saman við leiguverð á kvóta á Íslandi. Á síðasta fiskveiðiári var meðalleiguverð á þorskkvóta tæpar 200 kr. á kíló (þegar það er umreiknað í óslægðan fisk) og um 15% af öllu aflamarki var leigt. Annar samanburður er við verð á „varanlegum veiðiheimildum“. Nú fyrir skemmstu keypti HB Grandi 1600 þorskígildistonn fyrir 3.950 milljónir króna. Það gera um 2.500 kr. á kíló. Ef við notum 8% ávöxtunarkröfu til þess að umreikna þetta verð í ársleiguverð gera það einnig um 200 kr. á kíló.
Þessi samanburður sýnir að verðið sem Færeyingar fengu er mun lægra en það sem íslenskar útgerðir eru tilbúnar að greiða fyrir þorskkvóta á Íslandi. Eins og fyrr segir er líklegt að hluti af skýringunni á þessum mun sé að þorskkvóti úr íslenska þorskstofninum sé meira virði en þorskkvóti í Barentshafi. En þessi munur bendir einnig til þess að uppboð gæti leitt til þess að hið himinháa verð á kvóta sem viðgengist hefur á Íslandi myndi lækka. Það myndi bæta stöðu nýliða og minni útgerða á Íslandi.
Hinn stóri vandi við veiðigjald er að skiptar skoðanir eru um það hversu hátt fullt gjald er. Útgerðin getur nýtt sér þessa óvissu til þess að halda gjaldinu í algjöru lágmarki. Stærsti kosturinn við uppboð er að gjaldið sem tekið er ræðst af boðum fyrirtækjanna sjálfra. Uppboð leiðir til þess að útgerðirnar neyðast til þess að gefa það upp hversu mikils virði veiðiheimildirnar í rauninni eru. Ráðamenn hafa oft skýlt sér á bak við það að uppboð á veiðiheimildum hafi ekki verið notuð annars staðar. En nú hafa Færeyingar sýnt okkur að þessi leið er vel fær. Ef frændur okkar Færeyingar geta þetta, af hverju ættum við ekki að geta farið þessa leið?
Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 16. ágúst 2016
Skoðun

Fyrst flúðu þau Reykjavíkurborg…
Diljá Mist Einarsdóttir skrifar

Er útlegð á innleið?
Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar

Leiðsögundurinn Gaur gerir mig að betri manneskju
Þorkell J. Steindal skrifar

Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Skólarnir lokaðir - myglan vinnur
Guðmundur Þórir Sigurðsson skrifar

Flokkur fólksins eða flokkun fólksins?
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 2/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Hver ætlar að bera ábyrgð á mannslífi?
Sævar Þór Jónsson skrifar

Horfumst í augu
Kristín Thoroddsen skrifar

Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar
Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar

Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði
Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar

Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar

Er aldur bara tala?
Teitur Guðmundsson skrifar

Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar

Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun
Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar

Frans páfi kvaddur eða meðtekinn?
Bjarni Karlsson skrifar

Lægjum öldurnar
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Að hata einhvern sem þú þarft á að halda?
Katrín Pétursdóttir skrifar

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar