Ný greining sviðsins, Komið þið fagnandi Ferðaþjónusta á Íslandi: Uppgangur og áskoranir, verður kynnt á opnum umræðufundi Samtaka atvinnulífsins í dag. Í greiningunni er lagt til að gjaldtaka verði frjáls fyrir virðisaukandi þjónustu.

„Það er gott að bregðast við áður en í óefni stefnir. Upplifun ferðamanna á Íslandi er ennþá mjög góð og þeir fara mjög sáttir frá landinu. En engu að síður þá er einhver hluti ferðamanna sem finnst of troðið á ferðamannastöðum. Það gefur augaleið að ef þessi fjölgun heldur áfram þá þarf að bregðast við, bæði til að tryggja góða upplifun ferðamanna og til að vernda þessar náttúruperlur,“ segir Óttar.
Í greiningunni eru færð rök fyrir því að gjaldtaka sé eina lausnin sem uppfyllir bæði skilyrði um tekjur og fjöldatakmörkun. Komugjald og gistináttagjald myndu afla ríkissjóði tekna, en myndu engin áhrif hafa á aðsókn á ferðamannastaði. Náttúrupassi myndi einnig afla tekna en ekki stýra ágangi á landsvæði. Tilkoma hans myndi ekki stýra flæði ferðamanna frá stöðum sem væru undir of miklu álagi.
Í greiningunni segir að möguleiki til gjaldtöku hvetji til markaðssóknar, uppbyggingar og skapi um leið tekjur fyrir þjóðarbúið þegar ferðamenn sem njóta landsins greiða fyrir það.
Að mati efnahagssviðsins lítur ferðaþjónusta á Íslandi vel út en glímir við vaxtarverki. Frjáls gjaldtaka væri liður í að takmarka aðgengi og skila tekjum til landeigenda, sem og að tryggja upplifun ferðamanna. Aðrir kostir eru sameiginlegur sjóður fyrir staði sem henta illa til gjaldtöku.
Þessi frétt birtist fyrst í Fréttablaðinu.