Naprapati er árangursrík meðhöndlun við verkjum 1. desember 2016 11:00 VÍSIR/ERNIR
KYNNING. Guttormur Brynjólfsson er menntaður naprapat (Doctor of Naprapathy) en naprapati-meðhöndlun felst meðal annars í hnykkingum, meðhöndlun á band- og stoðvef og sérsniðnum æfingum fyrir hvers kyns stoðkerfisvandamál. Naprapat meðhöndlar og leiðréttir orsök verkja. Bein þýðing á orðinu naprapati er ,,að leiðrétta orsökina“. Í naprapati-meðferðinni er litið á stoð- og taugakerfið sem eina heild og naprapat leitast við ná fólki sársaukalausu sem fyrst, ásamt því að finna og rétta til ástæðuna fyrir verkjunum,“ útskýrir Guttormur Brynjólfsson, naprapat eða doctor of naprapathy.Hnykkir, nuddar og teygir Starf naprapats snýst um greiningu, meðhöndlun og endurhæfingu stoðkerfisins, naprapatinn leggur mikla áherslu á að finna og lagfæra orsök verkja, en orsökin getur leynst meðal annars í stoð- eða taugakerfi. „Þegar vandinn hefur verið greindur hefst meðferðin sem getur meðal annars falist í hnykkingum, meðhöndlun á band- og stoðvef með nuddi og teygjum og sérsniðnum æfingum fyrir stoðkerfið svo koma megi í veg fyrir þjáningu og sársauka.“ Naprapati varð löggild starfsgrein í Svíþjóð árið 1994 og tilheyrir sænska heilbrigðiskerfinu. „Þriðji hver Svíi hefur leitað til naprapats með stoðkerfisvandamál sín sem gerir naprapati að vinsælustu stoðkerfismeðhöndlun landsins. Rannsóknir hafa verið gerðar í samvinnu við meðal annars Karolinska Institutet í Stokkhólmi, og hafa bent til að naprapati sé ein af áhrifaríkustu meðhöndlunum á stoðkerfinu sem völ er á. Í því samhengi má benda á rannsókn sem var birt í ,,Clinical Journal of Pain“, einu af virtustu læknaritum heims, ,,Naprapathic manual therapy or evidence-based care for back and neck pain“,“ segir Guttormur, sem útskrifaðist sem naprapat árið 1996 og hefur allt frá útskrift átt og rekið sína eigin naprapatistöð í Madrid á Spáni, Natt Center, og rekur enn.Jafnvægi heilans mikilvægt Ástæðu bak- og hálsverkja má oft rekja til starfsemi heilans að sögn Guttorms og til dæmis megi nefna að um sjötíu prósent af hryggskekkjum séu sennilega tilkomnar vegna ójafnvægis í heilanum. „Heili og mæna, einu nafni miðtaugakerfi, stjórna allri starfsemi líkamans. Ójafnvægi heilahvelanna getur valdið spennu í vöðvum og leitt til endurtekinnar rangrar beitingar sem getur leitt til meiðsla eða eymsla í líkamanum. Ýmsar ástæður geta leitt til þess að heilinn vinni ekki eins og best verður á kosið, til dæmis ef litli heilinn fær mismunandi skilaboð frá hægri eða vinstri hlið líkamans. Ástæður fyrir því geta verið læsingar og minnkuð hreyfigeta í liðum eða jafnvel eitthvað í miðtaugakerfinu, sem veldur mismunandi vöðvastyrk eða hreyfigetu í hliðum líkamans og getur valdið rangri líkamsstöðu,“ lýsir hann.Stofur á Spáni og Íslandi Guttormur hefur síðastliðin tuttugu ár byggt upp gott orðspor á Spáni og víðar, meðal annars hafa komið til hans í meðhöndlun fótboltamenn úr ensku úrvalsdeildinni og var Guttormur einnig fenginn til Liverpool FC til þess að meðhöndla leikmenn. Fyrir honum eru þó allir sjúklingar jafnir og er það honum kappsmál að geta hjálpað sem flestum. Nú er Guttormur fluttur heim til Íslands og hefur hann opnað stofu í Orkuhúsinu á Suðurlandsbraut 34 þar sem hann meðhöndlar alla þá sem eiga við meiðsli eða verki að stríða, eða vilja bara fyrirbyggja stoðkerfisvandamál og hámarka vellíðan sína. „Naprapat býr yfir mikilli þekkingu og tækni til að tryggja það að líkaminn virki sem allra best.“ Stofa Guttorms er í Orkuhúsinu Suðurlandsbraut 34, sími: 6250011. Frekari upplýsingar má fá á www.naprapat.is, á Facebook undir Naprapat – Orkuhúsið eða senda tölvupóst á [email protected].
Mest lesið Seldist upp daginn eftir kosningasigur Kristrúnar Tíska og hönnun „Risa tilkynning“ Lífið „Ég myndi ekki vilja fá þetta í andlitið“ Lífið Gleðilegir gestir í hátíðarskapi á safninu Menning Laufey Lín og Bjarki á lista Forbes Lífið Birgitta prinsessa er látin Lífið Þetta hlustaði heimsbyggðin á árið 2024 Lífið Taka sér hlé hvort frá öðru Lífið 40 ára kona: Er of seint að deita konur? Lífið Til að fá listamannalaun þarftu að vera í náðinni Lífið Fleiri fréttir Ein ákvörðun getur miklu breytt - ritdómur Jülevenner er jólasýning sem fer alltaf úr böndunum Nýtt íslenskt tískuvörumerki opnar glæsilega verslun Jólatrjáasala til styrktar góðu málefni Gjöfin fyrir grillarann og pizzagerðina fæst hjá Grillkofanum Yerma er jólasýning Þjóðleikhússins Sparitímabilið er að hefjast, er fataskápurinn klár? Hópkaup hefur sparað þjóðinni 4,5 milljarða Kláraðu allar jólagjafirnar á einu bretti Síðasti Bókakonfektmolinn - Höfundar lesa í kvöld Ritdómur: ,,Þú hatar ekki að vera með píku, er það?“ Gleði á forsýningu Sambíóanna og Bylgjunnar á Vaiana 2 Ritdómur Lestrarklefans: Eins konar dans Smáralindin fylltist af bókþyrstum gestum Bókaumfjöllun: Einlæg og íhugul skáldævisaga Höfundar lesa upp úr bókum sínum í beinni í kvöld Bókadómur: Þörf bók um missi Frábært gjafakort sem gleymist ekki ofan í skúffu Skautadiskó til styrktar góðu málefni Vestfjarðaglæpasaga sem kemur á óvart Bókakonfekt Forlagsins: Níu höfundar lesa upp í kvöld Ritdómur: Naskar mannlýsingar í misjöfnu verki Troðfull Smáralind af krökkum að fylgjast með Birgittu Bókaumfjöllun: Að hverfa í tómið Bókaumfjöllun: Kjarkmiklar og áræðnar konur Rauðvínsgljáður sviðakjammi og mysuglassúr á kleinu Höfundar lesa upp í beinni Upplifun og dýrmætar minningar í jólagjöf Bókaumfjöllun: Netflix áhrif í ljúfri jólaástarsögu Bókaumfjöllun: „Allt sem rafmagnið huldi“ Sjá meira