„Þau hjá Emmessís sáu viðtal við mig í Fréttablaðinu í vor, höfðu samband og báðu mig um að búa til auglýsingu fyrir sig. Þau voru með grófa hugmynd um hvernig hún ætti að vera en svo átti ég að sjá um allt saman. Vinna hugmyndina betur, finna krakka til að leika, leikstýra og finna tökustað. Svo þurfti að útvega græjur og fleira,“ segir Tómas. Þetta hafi verið hörkuvinna.
„Ég var mikið í útlöndum með fjölskyldunni í sumar svo ég þurfti að klára þetta verkefni allt á einni viku. Það er auðvitað best að vinna við það sem manni þykir skemmtilegast en þetta var erfitt – að undirbúa allt, taka upp og klippa. Dagarnir voru dálítið langir,“ segir Tómas en það fylgi kvikmyndabransanum.
„Já, maður bara reddaði þessu,“ segir hann hress.

Hann segir þetta þó fyrsta stóra verkefnið en vonandi upphafið að því sem koma skal.
Hver var helsta áskorunin í verkefninu?
„Erfiðast var sennilega að finna tökustað. Ístrukkurinn átti að keyra um svo við þurftum stóran gólfflöt og mikið pláss. Það þýddi ekkert að vera í lítilli íbúð og ég eyddi mörgum klukkutímum í að finna nógu stórt pláss,“ segir Tómas.
„Þetta er það langstærsta sem ég hef gert og það skemmtilegasta. Ég lærði helling á þessu og ég vona að fleiri verkefni fylgi í kjölfarið; tónlistarmyndbönd eða fleiri auglýsingar. Ég er búinn að smala saman nokkrum strákum í teymi og einn er mjög góður klippari. Ég er meira að segja kominn með smá fyrirtæki í kringum þetta, Stúdíó Blönduhlíð og er að setja Facebooksíðu í gang,“ segir Tómas Nói.
Hér með fréttinni má sjá auglýsinguna og einnig myndband þar sem skyggnst er á bak við tjöldin við tökur.