

Loksins, loksins
Ákvörðun Kaupþings um að nýta sér kauprétt að hlut ríkisins í Arion banka þarf ekki að koma á óvart. Það er enda fremur til þess fallið að ýta undir áhuga erlendra fjárfesta á þátttöku í útboðinu að ríkið sé þar ekki fyrir í hluthafahópnum. Ákvæði kaupréttarins, sem grundvallast á hluthafasamkomulagi frá 2009, er afar skýrt en Kaupþing getur einhliða, hvenær sem er, leyst til sín hlutinn á fyrirfram ákveðnu verði. Kaupþing greiðir nú 23,4 milljarða fyrir eignarhlutinn en ríkið eignaðist hann samhliða því að leggja bankanum til 9,8 milljarða í hlutafé við stofnfjármögnun hans í árslok 2009. Ríkissjóður hefur því fengið um ellefu prósenta árlega ávöxtun á eign sína og getur vel við unað.
Hið sama verður ekki sagt um Kaupþing sem lagði til 66 milljarða þegar félagið gerðist eigandi að bankanum á sínum tíma með 87 prósenta hlut. Fyrir liggur að kröfuhafar þess hafa stórtapað á þeirri fjárfestingu og munu einungis endurheimta í kringum 40 milljarða eftir að búið verður að ganga frá sölu á öllum hlut félagsins í bankanum. Sökum stöðugleikaskilyrða og afkomuskiptasamnings sem kröfuhafar þurftu að undirgangast er það íslenska ríkið sem fær langstærstan hluta söluandvirðis hlutarins í sinn hlut, líklega samtals rétt yfir 100 milljarða. Þótt ríkið sé nú farið úr hluthafahóp bankans þá hefur það því eftir sem áður ríka hagsmuni af að vel takist til við sölu á þeim hlut Kaupþings sem eftir stendur.
Aðkoma ríkisins að fjármögnun bankanna 2009 kom til af nauðsyn. Öll þau ríki í Evrópu sem komu bönkum til aðstoðar í kjölfar fjármálakreppunnar hafa fyrir löngu hafist handa við að selja þá. Á Íslandi hefur því verið þveröfugt farið. Umsvif ríkisins á bankamarkaði hafa þvert á móti aukist. Það er því fagnaðarefni að nú loksins, í samræmi við yfirlýst markmið ríkisstjórnarinnar, sé verið að draga úr eignarhaldinu. Eigi bankarnir að standa af sér þá byltingu sem er að verða á fjármálaþjónustu, með uppgangi fjártæknifyrirtækja og aukinni samkeppni, þarf virka eigendur að þeim, rétt eins og nú er að gerast með Arion banka, með skýra sýn á hverju þurfi að breyta og hvað þurfi að bæta. Ríkið hefur þar engu hlutverki að gegna heldur er salan á hlut þess í bankanum upphafið að lokahnykknum í endurreisn fjármálakerfisins.
Skoðun

Er útlegð á innleið?
Reyn Alpha Magnúsdóttir skrifar

Leiðsögundurinn Gaur gerir mig að betri manneskju
Þorkell J. Steindal skrifar

Börn á flótta – nýtt líf, nýtt tungumál og nýtt tækifæri í íslenskum grunnskólum
Friðþjófur Helgi Karlsson skrifar

Skólarnir lokaðir - myglan vinnur
Guðmundur Þórir Sigurðsson skrifar

Flokkur fólksins eða flokkun fólksins?
Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar

Betri nýting á tíma og fjármunum Reykjavíkurborgar 2/3
Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar

Hver ætlar að bera ábyrgð á mannslífi?
Sævar Þór Jónsson skrifar

Horfumst í augu
Kristín Thoroddsen skrifar

Opið bréf til heilbrigðisráðherra: Iðjuþjálfar – mikilvægur mannauður í geðheilbrigðisþjónustu framtíðarinnar
Erna Rut Elvarsdóttir,Lilja Logadóttir, Rebekka Lind Hjaltadóttir,Sandra Dís Sigurðardóttir skrifar

Saga Israa á Gaza og hvernig hægt er að verða að liði
Katrín Harðardóttir,Israa Saed skrifar

Fordómar frá sálfélagslegu sjónarhorni
Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar

Er aldur bara tala?
Teitur Guðmundsson skrifar

Íslendingar flytja út fisk og líka ofbeldismenn
Guðný S. Bjarnadóttir skrifar

Iðjuþjálfar í leik- og grunnskólum: Tækifæri í baráttunni gegn agavanda og skólaforðun
Hekla Björt Birkisdóttir,Hrefna Dagbjört Arnardóttir,Inga Fríða Guðbjörnsdóttir,Íris Kristrún Kristmundsdóttir skrifar

Frans páfi kvaddur eða meðtekinn?
Bjarni Karlsson skrifar

Lægjum öldurnar
Halla Hrund Logadóttir skrifar

Að hata einhvern sem þú þarft á að halda?
Katrín Pétursdóttir skrifar

Íslenskar pyndingar
Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar

SFS, Exit og norska leiðin þeirra
Jón Kaldal skrifar

Friður - í framsöguhætti eða viðtengingarhætti?
Bryndís Schram skrifar

Næringarfræði er lykillinn að betri heilsu, viltu vera með?
Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar

Löngu þarft samtal um hóp sem gleymist!
Katarzyna Kubiś skrifar

Menntun fyrir öll – nema okkur
Haukur Guðmundsson skrifar

Það er ekki hægt að loka augunum fyrir þessum veruleika
Davíð Bergmann skrifar

Kirkjugarðsballið: Eiga Íslendingar að mæta þar?
Birgir Dýrfjörð skrifar

Að sækja gullið (okkar)
Þröstur Friðfinnsson skrifar

Til hamingju blaðamenn!
Hjálmar Jónsson skrifar

Stormur í Þjóðleikhúsinu
Bubbi Morthens skrifar

Börn í skugga stríðs
Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar