New York Times hefur þetta eftir embættismönnum í Hvíta húsinu. Samband McMaster og Trump hefur verið stirt undanfarna mánuði og hafa miklar vangaveltur verið um mögulegt brotthvarf þess fyrrnefnda. McMaster hefur meðal annars verið ósammála Trump um alþjóðlegan samning um kjarnorkuáætlun Írans sem forsetinn vill rifta. Hann hafi flýtt afsögn sinni vegna þess að hann taldi vangavelturnar um framtíð sína hafa skaðleg áhrif á viðræður við fulltrúa annarra ríkja.
Heimildir blaðsins herma að ákvörðunin um afsögnina hafi verið tekin í góðu. Hún tengist ekki leka um minnisblað sem ráðgjafar Trump undirbjuggu fyrir símtal hans við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, á þriðjudag. Trump hunsaði þá ráðleggingar um að óska Pútín ekki til hamingju með endurkjör sitt og fordæmdi heldur ekki taugaeitursárásina í Bretlandi sem bresk og bandarísk stjórnvöld hafa kennt Rússum um.
McMaster tók við stöðu þjóðaröryggisráðgjafa eftir að Trump rak Michael Flynn, fyrsta þjóðaröryggisráðgjafa sinn, eftir innan við mánuð eftir valdatökuna. Flynn hafði þá ekki sagt rétt frá samskiptum sínum við rússneskan sendiherra. Flynn er einn þeirra sem hefur verið ákærður í rannsókn Roberts Mueller, sérstaks rannsakanda dómsmálaráðuneytisins, á afskiptum Rússa af forsetakosningunum árið 2016.
Náðu aldrei saman
Það var ekki aðeins í málefnum Írans sem kastast hafði í kekki á milli Trump og McMaster. Trump setti ofan í við McMaster á Twitter í febrúar eftir að þjóðaröryggisráðgjafinn hafði sagt opinberlega að sannanirnar fyrir því að Rússar hefðu reynt að hafa áhrif á kosningarnar væru óvefengjanlegar.
Trump tísti um að McMaster hefði gleymt að segja að þau afskipti hefðu ekki haft nein áhrif á niðurstöður kosninganna og sakaði demókrata um hafa raunverulega átt í samráði við Rússa.

Vill hefja stríð við Íran og Norður-Kóreu
Eftirmaður McMaster verður John Bolton. Honum er lýst sem einum róttækasta harðlínumanni í utanríkismálum í Bandaríkjunum.
Bolton fór meðal annars með vopnaeftirlitsmál fyrir ríkisstjórn George W. Bush í aðdraganda innrásarinnar í Írak árið 2003. Fullyrti hann afdráttarlaust að Írak byggi yfir gereyðingarvopnum, þvert á það sem síðar kom í ljós.
Í seinni tíð hefur Bolton meðal annars lýst því yfir að Bandaríkin ættu að hefja stríð gegn bæði Íran og Norður-Kóreu. Hann hefur undanfarið verið áberandi álitsgjafi á Fox News-sjónvarpsstöðinni sem Bandaríkjaforseti fylgist með nær daglega.